Forsíðufréttir

Undirritun þjónustusamnings menntamálaráðuneytisins og Menntafélagsins

29.2.2008 Menntun og fræðsla : Menntafélagið bakhjarl stærsta framhaldsskóla landsins

Í dag var undirritaður þjónustusamningur milli Menntamálaráðuneytisins og Menntafélagsins í Iðnskólanum í Reykjavík. Samtök iðnaðarins, LÍÚ, Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík, Samorka og SÍK mynda Menntafélagið sem nú hefur tekið yfir rekstur Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskólans og sameinað þá í stærsta framhaldsskóla landsins.

Lesa meira
 

28.2.2008 Líftækni : ORF Líftækni hlýtur Nýsköpunarverðlaun 2008

ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs sem veitt voru við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í morgun.

Lesa meira
 

25.2.2008 Efni tengt Iðnþingi 2008 : Í framboði til stjórnar SI

Eftirtaldir aðilar eru í framboði til stjórnar Samtaka iðnaðarins á Iðnþingi 2008. Lesa meira
 

20.2.2008 Alþjóðlegt samstarf : Dagur ungra fræðimanna í Evrópumálum 21. febrúar

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og SI efna til Dags ungra fræðimanna fimmtudaginn 21. febrúar næstkomandi, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 10.00-16.00. Þarna gefst ungum og/eða nýútskrifuðum fræðimönnum tækifæri til að kynna rannsóknarverkefni sín á sviði Evrópufræða. Þetta er í annað sinn sem málþingið er haldið.
Lesa meira
 

20.2.2008 Líftækni : Málstofa um markaðsmál í líftækni

Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja – SÍL – bjóða til málstofu um markaðsmál í líftækni að Hilton Nordica í H sal 2. hæð þann 14. mars nk. kl. 08.30 – 15.00.

Lesa meira
 
Raforka

18.2.2008 Orku- og umhverfismál : Skipulagður markaður fyrir raforku

Nokkur áhugi er á að skoða hvort til greina kemur að starfrækja hérlendis skipulagðan raforkumarkað sem m.a. býður raforku til sölu á skyndimarkaði en vonir standa til þess að hann örvi samkeppni á raforkumarkaði. Landsnet hefur haft forgöngu um undirbúning slíks markaðar hérlendis og hélt á dögunum ráðstefnu um málið. Lesa meira
 

14.2.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Samtök iðnaðarins komu skattalækkun til neytenda

Samtök iðnaðarins beittu sér fyrir því að tryggja að lækkun virðisaukaskatts og vörugjalda á matvæli þann 1. mars 2007 skilaði sér frá fyrsta degi til neytenda. Samkeppniseftirlitið gerði athugasemdir við aðferðafræðina sem beitt var og hefur náðst sátt í málinu. Lesa meira
 

13.2.2008 Samstarf : Samtök heilsuræktarstöðva stofnuð

Stofnfundur Samtaka heilsuræktarstöðva – SHS var haldinn í lok janúar. SHS mun starfa sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins.

Lesa meira

 

13.2.2008 Sprotafyrirtæki : Vaxtarsproti ársins valinn í annað sinn í apríl 2008

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins/SSP, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands um val á vaxtarsprota ársins. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Lesa meira
 
Íslenska ánægjuvogin

6.2.2008 Nýsköpun og þróun : Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2007

Í dag voru kynntar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar en þetta er í níunda sinn sem ánægja íslenskra viðskiptavina fjölda fyrirtækja er mæld. Úrtakið var um 28.500 manns úr þjóðskrá á aldrinum 16 til 79 ára. Lesa meira
 

5.2.2008 Orku- og umhverfismál : Hagsmunir Íslands í loftslagsmálum

Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar um hagsmuni Íslands í loftslagsmálum, föstudaginn 8. febrúar á Grand Hótel Reykjavík. Lesa meira
 

5.2.2008 Menntun og fræðsla : Verðlaunahátíð nýsveina 2008

Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hélt nýverið verðlaunahátíð nýsveina. Níu iðnnemum var veitt viðurkenning fyrir góðan árangur á sveinsprófi. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti nýsveinum verðlaunapening og viðurkenningarskjal. Lesa meira
 

1.2.2008 Umsagnir um frumvörp : Frumvarp til laga um framhaldsskóla, 286. mál

SI telja að nýtt frumvarp til laga um framhaldsskóla horfi til framfara en gera athugasemdir við ýmsa liði þess. Sjá sameiginlega umsögn SI, SA og annarra atvinnurekendasamtaka. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica