Forsíðufréttir

Þorsteinn Víglundsson

30.4.2008 Fréttir af SI : Tímabært að leita nýrra leiða

Þorsteinn Víglundsson, varaformaður SI skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu 26. apríl sl. þar sem hann segir að tímabært sé að leita nýrra leiða við stjórn peningamála á Íslandi og svarar andstæðingum aðildar sem haldið hafa því fram að með brotthvarfi sjálfstæðrar peningamálastefnu myndu Íslendingar missa tökin á efnahagsstjórninni. Greinina má lesa í heild sinni hér. 

Lesa meira

 
Mentor hlýtur Vaxtarsprotann

30.4.2008 Sprotafyrirtæki : Mentor ehf. hlýtur Vaxtarsprotann 2008

Fyrirtækið Mentor ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2008 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Mentor jók veltu sína milli áranna 2006 og 2007 um 48,6%, sem var mesti vöxtur sprotafyrirtækis á síðasta ári sem uppfyllir viðmið dómnefndar. Jafnframt hlutu fyrirtækin Betware, Valka og Kine viðurkenningu fyrir góðan vöxt á síðasta ári.

Lesa meira

 
Myllan

29.4.2008 Gæðastjórnun og rekstur : Myllan ehf. hlýtur gæðavottun SI

Myllan ehf. er enn eitt fyrirtækið sem stenst kröfur Samtaka iðnaðarins varðandi D- áfanga í áfangaskiptri gæðavottun SI. Þann 25. apríl var framkvæmdastjóranum, Unnari Elíssyni, afhent viðurkenningarskjal til staðfestingar á árangrinum. Stjórnendur stefna á að taka næsta skref sem fyrst og eru nú þegar komnir vel á veg í undirbúningnum.

Lesa meira

 
Afhending námsstyrks

29.4.2008 Alþjóðlegt samstarf : Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Samtök iðnaðarins veita styrki til rannsókna á sviði Evrópufræða

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Samtök iðnaðarins veittu í dag tveimur meistaranemum styrki til rannsókna á sviði Evrópufræða. Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI afhenti styrkina. Lesa meira
 
Sproti

25.4.2008 Sprotafyrirtæki : VAXTARSPROTINN 2008 afhentur 30. apríl

Viðurkenningar fyrir góðan vöxt sprotafyrirtækja á síðasta ári verða veittar við hátíðlega athöfn í Grasagarðinum Laugardal (Kaffihús Flóran) miðvikudaginn 30. apríl kl. 8.30.

Lesa meira
 

21.4.2008 Menntun og fræðsla : Frumgreinadagur Háskólans í Reykjavík

Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir kynningu á Frumgreinasviði skólans þriðjudaginn 22. apríl að Höfðabakka 9. Dagskrá hefst klukkan 15.30 og stendur til 17.30. Allir velkomnir. Lesa meira
 
kristjan-moller-opnar-Vogv1-

18.4.2008 Mannvirkjagerð : Verk og vit 2008 í fullum gangi í Laugardalshöll

Fjölmenni var á opnunarhátíð sýningarinnar Verks og vits 2008 í gær í Laugardalshöllinni. Kristján L. Möller samgönguráðherra klippti á borða og leiddi gesti inn á sýningarsvæðið þar sem hver stórviðburðurinn rak annan. Lesa meira
 
SÍL ICEBIO

17.4.2008 Líftækni : Fjallað um markaðsmál líftækni

Haldin var á dögunum málstofa um markaðsmál í líftækni. Bernhard Pálsson, UCSD og Hilmar Janusson hjá Össuri deildu reynslu sinni af stofnun sprotafyrirtækja og samstarfi við þau. Lesa meira
 
GoPro

17.4.2008 Upplýsingatækni : GoPro hlýtur æðstu verðlaun IBM

Höfðuðstöðvar IBM í Armonk, New York, tilkynntu í síðustu viku að GoPro ehf. hafi hlotið æðstu verðlaun sem IBM veitir fyrir hugbúnaðarlausn. Lesa meira
 
áhættar í verktöku

14.4.2008 Mannvirkjagerð : Áhætta í verktöku - hver er sinnar gæfu smiður!

Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnunni Áhætta í verktöku í tengslum við Verk og vit 2008 í Íþrótta- og sýningarhöllinni 17. apríl kl. 13.00 - 16.00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. Lesa meira
 

14.4.2008 Alþjóðlegt samstarf : Breytt ESB án Íslands

Fimmtudaginn 17. apríl næstkomandi heldur Diana Wallis, þingmaður Evrópuþingsins, opinn fyrirlestur um tengsl Íslands og Evrópusambandsins í Odda 101 kl. 8.30 – 9.30.

Lesa meira
 

14.4.2008 Sprotafyrirtæki : Eff2 technologies hlutu Gulleggið 2008

Úrslit hafa nú ráðist í fyrstu Frumkvöðlakveppni Innovit fyrir íslenska háskólanema og nýútskrifaða. Iðnaðarráðherra afhenti sigurvegurunum Gulleggið og peningaverðlaun við hátíðlega athöfn í Iðnó síðastliðinn laugardag.  

 

Lesa meira
 
verk og vit

10.4.2008 Mannvirkjagerð : Stórsýningin Verk og vit 2008

Stórsýningin Verk og vit 2008 verður haldin dagana 17. til 20. apríl í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Þetta er í annað sinn sem sýningin er haldin. Á sýningunni kynna fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, sveitarfélög, hönnuðir og ráðgjafar starfsemi sína.

Lesa meira

 

8.4.2008 Sprotafyrirtæki : Frumkvöðlakeppni Innovit 2008

Úrslit í Frumkvöðlakeppni Innovit 2008 fyrir íslenska háskólanemendur og nýútskrifaða fara fram nk. laugardag 12. apríl. Sigurvegararnir hljóta að launum verðlaunagripinn Gulleggið 2008 og 1.5 mkr. í verðlaunafé. Lesa meira
 

3.4.2008 Prentiðnaður : Lánsfjárþurrð á mörkuðum og þröng staða iðnfyrirtækja

Umfjöllunarefni fundarins er hvernig er skynsamlegt fyrir iðnfyrirtæki og smærri atvinnurekendur að bregðast við núverandi ástandi í efnahagsmálum.

Lesa meira

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica