Forsíðufréttir

Fundur um uppsagnir

30.5.2008 Gæðastjórnun og rekstur : Framkvæmd uppsagna hjá fyrirtækjum

Uppsagnir starfsmanna eru eitt erfiðasta verkefni stjórnenda. Það er ávinningur fyrirtækja ekki síður en einstaklinga að vel sé staðið að uppsagnarferlinu. Hvaða reglur ber að hafa í heiðri og hvað ber að varast? Þetta var meginefni fundar á vegum Samtaka iðnaðarins fyrir starfsmannastjóra fyrirtækja í iðnaði. Lesa meira
 
Red yeast rice

30.5.2008 Forsíðufréttir : Bann við notkun á rauðu litarefni í matvælavinnslu

Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem algjört bann er lagt við notkun á rauðu litarefni úr gerjuðum hrísgrjónum í matvælaframleiðslu. Litarefnið e: colour red yeast rice, fermented rice er framleitt í Kína, en dreifingaraðilar í Evrópu eru meðal annars í Þýskalandi, Hollandi og Austurríki. Lesa meira
 
Ársfundur Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

29.5.2008 Sprotafyrirtæki : Sprotaumhverfi betra nú en áður

Með tilkomu Frumtaks, nýs sjóðs Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og samkomulags við Tækniþróunarsjóð er nú ríkjandi betra sprotaumhverfi hér á landi en nokkurn tímann áður. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra á ársfundi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í gær. Lesa meira
 
Stofnfundur þróunarvettvangs á sviði matvæla

28.5.2008 Matvælaiðnaður : Þróunarvettvangur á sviði matvæla stofnaður

Í gær var stofnaður Þróunarvettvangur á sviði matvæla. Markmiðið með vettvangnum er að koma á samstarfi fyrirtækja í matvælaframleiðslu, hvetja til nýsköpunar í matvælaiðnaði og auka með því samkeppnishæfni hans. Að undirbúningi stóðu SI, Rannsóknarþjónustan Sýni, MATÍS og RANNÍS.

Lesa meira

 
Farandbikar SI afhentur í fyrsta sinn

27.5.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Sigurður hlaut farandbikar SI

Sigurður B. Halldórsson lögfræðingur Samtaka iðnaðarins hlaut farandbikar Samtakanna fyrir að standa sig best í átakinu „Hjólað í vinnuna.“ Sigurður hjólaði rúmlega 200 kílómetra í vinnuna á tímabilinu. Lesa meira
 

27.5.2008 Menntun og fræðsla : Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2008-2009 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Lesa meira
 
Úr turni Tækniskólans við Háteigsveg

23.5.2008 Forsíðufréttir : Kaupir flughermi og skip

Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins, vinnur að því að gera samning um kaupleigu á flughermi og mun sjá um þjálfun allra flugstjórnaráhafna fyrir Icelandair. Þá er fyrirhugað að festa kaup á skipi fyrir skipstjórnarnám skólans. Lesa meira
 
Bjarni Már Gylfason

23.5.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Sjálfstæður gjaldmiðill of dýru verði keyptur

Bjarni Már Gylfason hagfræðingur SI segir það undarlegt að Seðlabankinn ákveði að lækka ekki stýrivexti sem eru orðnir ógnarháir á sama tíma og hann sjái skýr merki þess að eftirspurn sé að dragast saman. Þetta kom fram í samtali við Bjarna Má á fréttavef Viðskiptablaðsins í gær.

Lesa meira

 
CE-merking

23.5.2008 Staðlamál og CE-merkingar : CE‐vottun á steypumöl frá Vatnsskarðsnámu Alexanders Ólafssonar ehf.

Alexander Ólafsson ehf. sem rekur malarvinnslu í Vatnsskarðsnámu hefur formlega verið afhent viðurkenningarskjal gæðavottunarstofnunar British Standard Institute (BSI), um að steinefni til steypugerðar úr Vatnsskarðsnámu uppfylli kröfur um efnisgæði og framleiðslueftirlit samkvæmt evrópska steinefnastaðlinum ÍST EN 12620.

Lesa meira

 
Oscar Pistorius

22.5.2008 Forsíðufréttir : Össur á Ólympíuleikana?

Oscar Pistorius spretthlaupari hefur nú öðlast rétt til að keppa á Ólympíuleikunum. Pistorius hleypur á gervifótum frá stoðtækjafyrirtækinu Össuri en alþjóðlegur áfrýjunardómstóll í íþróttamálum hefur úrskurðað einróma að hann megi keppa á leikunum nái hann ólympíulágmarkinu. Lesa meira
 
Baldur Þorgeirsson

21.5.2008 Forsíðufréttir : Stjórn starfsgreinahóps í prentiðnaði stofnuð

Stjórn starfsgreinahóps SI í prentiðnaði hefur verið stofnuð. Hún mun vinna að verkefnum fyrir prentiðn og gæta að hagsmunum greinarinnar innan Samtakanna. Lesa meira
 
Helgi Magnússon, Bjarni Már Gylfason og Ingólfur Bender

20.5.2008 Mannvirkjagerð : Erfitt ástand í bygginga- og mannvirkjagreinum en bjartara framundan

„Þróun efnahagsmála er háð veðrabrigðum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Þriðja og dýpsta lægðin virðist vera að ganga niður.“ Þetta sagði Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra á fundi Samtaka iðnaðarins um ástand og horfur í bygginga- og mannvirkjagreinum í morgun.

Lesa meira
 
StjornSI-ThorstV

16.5.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Sveiflur í efnahagsmálum ekki nýjar af nálinni

Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM Vallár og stjórnarmaður Samtaka iðnaðarins fjallaði um aðstæður á byggingamarkaði á morgunverðarfundinum „Tækifæri á samdráttartímum“ á Grand Hotel Reykjavík á miðvikudag. Lesa meira
 
Burt með stimpilgjöldin

13.5.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Skattheimta til óþurftar

Samtök iðnaðarins hafa í áraraðir bent á nauðsyn þess að hætta innheimtu stimpil- og vörugjalda. Nú er tímabært að láta verkin tala. Aðstæður í efnahagsmálum hafa leitt til þess að verulega hefur dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði og við hefur bæst að forsætisráðherra og Seðlabankinn hafa hvatt til þess að menn haldi að sér höndum. Síðastliðinn miðvikudag birtist grein um málið í Viðskiptablaðinu eftir Jón Steindór Valdimarsson.

Lesa meira

 
Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík

13.5.2008 Stóriðja : Ál orðið helsta útflutningsvaran

Úflutningsverðmæti áls mun í fyrsta sinn skila mestum útflutningstekjum í þjóðarbúið á þessu ári samkvæmt spá fjármálaráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að verðmæti áls sem flutt er úr landi verði tvöfalt á við útflutningsverðmæti sjávarútvegs miðað við síðasta ár og þrefalt á næsta ári miðað við sama ár. Lesa meira
 
Frá vígslu Grænu smiðjunnar

9.5.2008 Líftækni : Einstakt hátæknigróðurhús vígt í Grindavík

ORF Líftækni hefur formlega tekið í notkun hátæknigróðurhúsið Grænu smiðjuna í Grindavík. Um er að ræða einstakt gróðurhús á heimsvísu og er framleiðslan að mestu sjálfvirk. Afurðir fyrirtækisins eru mjög sérhæfðar. Með sérstakri erfðatækni er framleitt erfðabreytt bygg sem notað er til framleiðslu sérvirkra próteina sem meðal annars eru notuð við lyfjaþróun, rannsóknir, og lyfjaframleiðslu. Lesa meira
 

9.5.2008 Menntun og fræðsla : Námsefnisstyrkur SI

Samtök iðnaðarins auglýsa eftir umsóknum um styrki til útgáfu á námsefni í iðngreinum og öðrum greinum sem varða iðnað.

Lesa meira

 
Hörður Arnarson

8.5.2008 Matvælaiðnaður : Stærstir á heimsmarkaði

Eftir sameiningu Marel Food Systems og Stork Food System sem gekk í gildi í dag er Marel orðið stærsta fyrirtæki heims í framleiðslu hátæknibúnaðar fyrir matvælavinnslu. Það er næstum 50% stærra en næststærsta fyrirtækið á markaðnum en áður var það í þriðja sæti. Lesa meira
 

6.5.2008 Alþjóðlegt samstarf : Evrusinnar nú 68% - Þeir sem styðja ESB aðild 55%

Þeim sem telja æskilegra að taka upp evru en halda krónunni fjölgar um rúmlega 12 prósentustig á sex vikum. Evrusinnum fjölgar þannig úr tæpum 56% í rúm 68% og stuðningur við aðild að ESB eykst að sama skapi og er nú rúm 55%. Lesa meira
 

6.5.2008 Fréttir af SI : Þolum ekki svona ástand mjög lengi

„Við þolum ekki svona ástand mjög lengi,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Fréttablaðið í dag, um þann mikla skort á lánsfé sem varað hefur mánuðum saman. Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

5.5.2008 Fréttir af SI : Mál er að vakna

"Samtök iðnaðarins hafa verið staðföst í þeirri skoðun sinni um langt skeið að róttækra breytinga sé þörf. Þær fela hvorki í sér töfralausn á núverandi vanda né leysa okkur undan því að stjórna eigin efnahagsmálum. Það er langtímalausn sem mun leiða til meiri aga og fækka flóttaleiðum frá eigin mistökum. Um leið skapast forsendur fyrir því að langþráður stöðugleiki geti náðst." Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI í grein sem nýverið birtist í Vísbendingu. Greinina er hægt að lesa hér.  Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica