Beint í leiðarkerfi vefsins.
Össur Skarphéðinsson undirritar í dag viljayfirlýsingu vegna álvers Alcoa á Bakka á Húsavík. Um era ð ræða framlengingu á viljayfirlýsingu sem undirrituð var í maí 2006. Gert er ráð fyrir 250 þúsund tonna ársframleiðslu á áli og 400 megavatta orkuþörf.
Lesa meira
Aðilar vinnumarkaðarins sátu í gær fund með ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands þar sem efnahagsmálin voru rædd. Í kjölfarið var tilkynnt um breytingar á starfsemi Íbúðalánasjóðs en lengi hefur verið barist fyrir breytingum kaupendum til hagsbóta. Lánveitingar sjóðsins munu nú miðast við kaupverð eigna í stað brunabótamats en hlutfallið verður enn 80%. Þá verður hámarkslánið hækkað úr 18 milljónum í 20 milljónir.
Fulltrúar vinnumarkaðarins hafa ítrekað lýst yfir áhyggjum af efnahagsástandinu og kallað eftir aðgerðum stjórnvalda. Leiðir sem bent hefur verið á eru m.a. að beita Íbúðalánasjóði og styrkja gjaldeyrisforðann. Viðbrögð stjórnvalda hafa látið á sér standa en Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra segir unnið hörðum höndum að þessum málum.
Hilmar Pétursson framkvæmdastjóri CCP, sem rekur EVE online, er fjórði áhrifamesti maðurinn í heimi netleikja í úttekt Beckett Massive Online Gamer sem er sérhæft tímarit um netleiki. Blaðið birti lista yfir 20 áhrifamestu mennina í júní.
Frá því að við hættum að nota dönsku krónuna og tókum upp íslensku krónuna hefur efnahagslíf okkar einkennst af mikilli verðbólgu og nánast samfelldu falli krónunnar. Í grein í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag lítur Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, í baksýnisspegilinn og fjallar um hvernig krónunni hefur reitt af. Greinina er hægt að lesa hér.
Vegagerðin hefur ákveðið að verðtryggja öll jarðvinnu- og byggingaverk út árið. Verktakar hefðu neyðst til að segja sig frá verkum ef ekki hefði verið gripið til verðbóta segir Árni Jóhannsson, forstöðumaður mannvirkjasviðs SI.
Lesa meira
Fjöldi nemenda í Danmörku sem velja raungrein sem aðalfag hefur hrapað um 29 prósent á þremur árum. Á síðasta ári völdu einungis sjö prósent nemenda raungrein sem aðalfag til móts við 36 prósent árið 2004. Þetta er niðurstaða kannana sem fjallað er um í fréttariti Samtaka iðnaðar í Danmörku, DI.
Lesa meira
Mat á því hvort samningar séu samkeppnishamlandi snýst um að meta þá með tilliti til þess hvort þeir hindri að aðrir komist inn á markaðinn. Þetta kemur fram í skýrslu Samkeppniseftirlits um viðskiptasamninga birgja og matvöruverslana sem birt var 20. maí síðastliðinn. Í gær var haldinn fundur um efni skýrslunnar með fulltrúum matvælafyrirtækja innan raða SI og fulltrúum Samkeppniseftirlitsins.
Margir möguleikar opnast þeim sem fara í iðnnám. Í iðnaði er eftirspurn eftir hæfileikaríku fólki í margar þeirra 60 iðngreina sem kenndar eru við um 20 verkmenntaskóla um allt land. Atvinnulífið þarf á miklu fleira og betur menntuðu fólki að halda en völ er á. Samtök iðnaðarins vilja vekja áhuga á iðnnámi og hvetja ungt fólk til að íhuga þessa námsleið.