Forsíðufréttir

Prentsmiðjan Oddi

28.8.2008 Prentiðnaður : Gutenberg og Kassagerðin sameinast Odda

Prentfyrirtækin Oddi, Gutenberg og Kassagerðin verða sameinuð undir nafni Odda hinn 1. október nk. segir í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Sameiningin felur ekki í sér breytingu á eignarhaldi en fyrirtækin hafa öll verið í eigu Kvosar hf. frá árinu 2006. Lesa meira
 
Handboltahetja og bakaranemi.

27.8.2008 Matvælaiðnaður : Silfurstrákurinn hæstur á sveinsprófi í bakaraiðn

Björgvin Páll Gústafsson markmaður íslenska landsliðsins í handbolta og silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikunum í Peking var hæstur á sveinsprófi í bakaraiðn í vor. Jói Fel lærimeistari Björgvins segir hann með ótrúlega skipulags- og samskiptahæfileika sem skili honum miklum árangri á báðum sviðum. Lesa meira
 
Sudurverk

27.8.2008 Mannvirkjagerð : Framkvæmdir hafnar við gerð Landeyjahafnar

Stórvirkar vinnuvélar og mannafli er kominn í Bakkafjöru þar sem hafnar eru framkvæmdir við Landeyjahöfn. Samgöngur milli lands og Eyja munu batna mikið eftir að verkinu er lokið í júlí 2010.

Lesa meira
 
NimbleGen

27.8.2008 Líftækni : Búist við frekari fjárfestingum NimbleGen á Íslandi

Markaður fyrir örflöguframleiðslu NimbleGen fer vaxandi. Rannsóknir og þróun á Íslandi verða auknar og gert ráð fyrir að reksturinn skili hagnaði á næstu 2-3 árum. Forstjóri fyrirtækisins hér á landi segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að vilji sé fyrir samstarfi við íslenskt háskólasamfélag.

Lesa meira
 
Sementverksmiðjan

22.8.2008 Orku- og umhverfismál : Sementsverksmiðjan breytist ekki í sorpbrennslustöð

„Það gætir nokkurs misskilnings í þessu máli,“ segir Bryndís Skúladóttir forstöðumaður umhverfissviðs Samtaka iðnaðarins um frétt þess efnis að til standi að Sementsverksmiðjan á Akranesi reki sorpbrennslustöð. Um sé að ræða forunninn og flokkaðan úrgang sem verði notaður sem eldsneyti í framleiðsluna í stað kola. Draga myndi verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna framleiðslunnar. Lesa meira
 
Sigmundur S. Jónsson

21.8.2008 Menntun og fræðsla : Styrkur til vinnustaðakennslu

„Málmiðnaðarfyrirtæki hafa forgang í þetta sinn,“ segir Ingi Bogi Bogason forstöðumaður menntamála hjá Samtökum iðnaðarins. "Engu að síður hvetjum við öll fyrirtæki, sem eru reiðubúin að gangast undir umsóknarskilyrðin að sækja um." Lesa meira
 
Gámaþjónusta Vestfjarða

20.8.2008 Orku- og umhverfismál : Borgin bjóði út sorphirðu

Samtök iðnaðarins fagna tillögu meirihluta borgarstjórnar um að hluti sorphirðu verði boðinn út í Reykjavík. „Sú staðreynd að þjónustan er ódýrari í nágrannasveitarfélögunum sýnir að ná má fram hagkvæmni með útboðum til einkaaðila,“ segir Bryndís Skúladóttir forstöðumaður umhverfismála SI. Öflug endurvinnslufyrirtæki hafi sýnt að þau séu vel í stakk búin til að sinna þessu verkefni.

Lesa meira
 
Pennar og prenthylki í prentara

20.8.2008 Orku- og umhverfismál : REACH - Ertu ekki viss?

„Mun fleiri fyrirtæki falla undir efnareglugerð Evrópusambandsins en margir halda” segir Bryndís Skúladóttir forstöðumaður umhverfismála Samtaka iðnaðarins. Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki taki þátt í ferlinu frá byrjun því óheimilt verður að framleiða eða markaðssetja óskráð efni í Evrópu. Fundur með sérfræðingi Efnastofnunar Evrópur verður haldinn 18. september. Lesa meira
 
Prentun

20.8.2008 Prentiðnaður : Fleiri íslenskar bækur prentaðar hérlendis

Vegna gengisþróunar síðustu mánaða er óhagstæðara að prenta íslenskar bækur utan landsteinanna nú en áður. Í fréttum Sjónvarps í gærkvöldi kom fram að á síðasta ári hafi metfjöldi íslenskra bókatitla verið prentaður í útlöndum, eða 57%. Fleiri bækur verða prentaðar hér á landi í ár vegna stöðu krónunnar.

Lesa meira
 
Stóriðja

19.8.2008 Stóriðja : Virkjanir eins og gullkálfar

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitunni segist ekki taka undir það sjónarmið að óráð sé að ráðast í Bitruvirkjun núna. Í Fréttablaðinu í dag segir Anna Skúladóttir að virkjanir séu ekki áhættusamar og borgi sig upp á 20-25 árum þegar sölusamningar til stóriðju liggi fyrir. Eftir að skuldir hafi verið greiddar séu þær eins og gullkálfar.

Lesa meira
 
Skólamáltíð í Fossvogsskóla

15.8.2008 Matvælaiðnaður : Grjónagrauturinn hækkar um 12%

Skólamáltíðir barna hækka um 12-13% nú í haust. Kostnaðurinn lendir á foreldrum og bæjarfélögum sem greiða niður máltíðirnar. Elín Einarsdóttir deildarstjóri skólamötuneyta hjá Hollt í hádeginu segir að hækkunin sé óvenjumikil í ár vegna efnahagsástandsins. Til samanburðar hafi hún verið 3-4% í fyrra. Hækkunin sé þó meiri fyrir fyrirtækið þar sem það sé bundið samningum sem gerðir voru fram í tímann.

Lesa meira
 
Framkvæmdir á Skólavörðustíg

15.8.2008 Mannvirkjagerð : Borgarráð hafnaði beiðni um verðtryggingu verksamninga

Mikil vonbrigði eru innan Samtaka iðnaðarins með ákvörðun borgarráðs að hafna beiðni SI um að verksamningar verði verðtryggðir. Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtakanna óttast afleiðingar synjunarinnar. Hann segir ósanngjarnt að verktaki beri einn ábyrgð á ófyrirséðum verðhækkunum vegna gengissveiflna og hækkunar á heimsmarkaðsverði hráefnis. Lesa meira
 
Bjarne Palstrøm

13.8.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Strangar umhverfisreglur í Danmörku skaða samkeppnishæfni

Samtök iðnaðar í Danmörku óttast að fyrirtæki flýi úr landi vegna flókinna reglna um umhverfismál. Þau hafa kynnt umhverfisráðherra landsins tillögur til að einfalda stjórnsýsluna.

Lesa meira
 
Íslenskir ólympíufarar á sundpöllum í Peking

13.8.2008 Þjónustuiðnaður : Íslenska ólympíuliðið aftur í fánalitina

Framleiðsla á íþróttafatnaði íslensku ólympíufaranna er nú aftur á hendi Henson Sport hf eftir nokkurra ára hlé þegar stór erlendur íþróttavöruframleiðandi gerði búningana. Halldór Einarsson í Henson segir afar ánægjulegt að hafa fengið verkefnið aftur og engin spurning hafi verið um hvaða litir yrðu notaðir. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica