Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

8+8 Made in Hafnarfjörður

30.9.2008 Prentiðnaður : 8+8 ferskir hönnuðir í Firðinum

Átta alþjóðlegir hönnuðir og 8 hafnfirsk framleiðslufyrirtæki sýna afrakstur samstarfs á sýningunni 8+8 Made in Hafnarfjörður sem nú stendur yfir. Sýningin var sett upp í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar.
 
GT Tækni

25.9.2008 Mannvirkjagerð : Milljarðar gætu sparast í verkframkvæmdum ríkis og sveitarfélaga

Milljarðar gætu sparast á verkum ríkis og sveitarfélaga í mannvirkjagerð yrði gæðastjórnun innleidd meðal verktaka og verkkaupa. Þetta kom fram á morgunverðarfundi Samtaka iðnaðarins, Viðskiptablaðsins, Reykjavíkurborgar og Háskólans á Bifröst um gæðastjórnun í mannvirkjagerð í morgun. Verktakar, verkkaupar og aðrir hagsmunaaðilar fjölmenntu á fundinn.

 
Fartölva

25.9.2008 Upplýsingatækni : Fundur um sparnaðarleiðir í rekstri tölvukerfa

Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software stendur fyrir ráðstefnu á morgun um ýmsar sparnaðarleiðir og hagræðingu í rekstri tölvukerfa. Fundurinn verður í ráðstefnusal fyrirtækisins að Urðarhvarfi 6 í Kópavogi klukkan 13-17.

 
Helgi Hjörvar

25.9.2008 Stóriðja : Verður rekstur virkjana seldur einkafyrirtækjum?

Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar og formaður umhverfisnefndar Alþingis leggur til að rekstur virkjana verði seldur einkafyrirtækjum í ákveðinn tíma. Fjármálaráðherra líst vel á hugmyndina.

 
Gegnumbrotí Grjótárgöngum

24.9.2008 Mannvirkjagerð : Slegið í gegn í Grjótárgöngum

Gangastrákar Ístaks skáluðu í koníaki þegar síðasta haftið í Grjótárgöngum Hraunaveitu rofnaði. Sprengingin sem reif haftið er sú síðasta á Kárahnjúkasvæðinu og átti Kristinn Eiríksson fulltrúi Landsvirkjunar og verkefnisstjóri heiðurinn að henni.
 
Framkvæmdir í borginni

23.9.2008 Mannvirkjagerð : Siglingastofnun ákveður að verðtryggja verksamninga

Samtök iðnaðarins fagna ákvörðun Siglingastofnunar um að fylgja fordæmi Vegagerðarinnar og verðbæta verktakasamninga sem eru til lengri tíma en þriggja mánaða.
 
Doris Thiemann

22.9.2008 Orku- og umhverfismál : REACH felur í sér tækifæri til fyrirtækja

Hin nýja efnalöggjöf Evrópusambandsins REACH hefur í för með sér tækifæri fyrir fyrirtæki, en aðeins þau sem kynna sér hana í tíma. Þau sem bíða aðgerðarlaus verða of sein. Þetta segir Doris Thiemann hjá Efnastofnun Evrópu sem hélt fyrirlestur á morgunverðarfundi um löggjöfina fyrir helgi.

 
Sudurverk

22.9.2008 Mannvirkjagerð : Gæðastjórnun í mannvirkjagerð - morgunverðarfundur

Samtök iðnaðarins, Viðskiptablaðið, Reykjavíkurborg og Háskólinn á Bifröst standa fyrir morgunverðarfundi um gæðastjórnun í mannvirkjagerð fimmtudaginn 25. september kl. 8.30-10.00.

 
Hellisheiðarvirkjun

22.9.2008 Mannvirkjagerð : Jarðboranir á Hellisheiði - skortur á tilboðum

Jarðboranir og Orkuveita Reykjavíkur undirrituðu í síðustu viku samning um boranir 50 borhola á Hellisheiði. Tilboð Jarðborana var það eina sem barst og hljóðaði upp á 13 milljarða króna eða 90% af kostnaðaráætlun. Í Fréttablaðinu í dag segir Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, að reynt hafi verið að fá önnur fyrirtæki til að bjóða í verkið, án árangurs.
 
Tómas Már Sigurðsson

19.9.2008 Stóriðja : Ál lækkar í verði - búist við hækkun fljótlega

Undanfarna tvo mánuði hefur heimsmarkaðsverð á áli lækkað um 25%. Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa-Fjarðaráls sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að álverð væri þó enn langtum hærra en áætlanir fyrirtækisins gerðu ráð fyrir og búist væri við að það hækkaði fljótlega aftur.
 
lógó iðnþings 2008 trans

18.9.2008 Alþjóðlegt samstarf : Meirihluti vill stefnubreytingu hjá ríkisstjórninni í Evrópumálunum

Í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í lok ágúst voru tvær nýjar spurningar lagðar fyrir þátttakendur auk venjubundinna spurninga um Evrópusambandið. Meirihluti aðspurðra, eða 53%, vill að ríkisstjórnin ákveði á kjörtímabilinu hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki. Og rúmlega 60% segja að afstaða stjórnmálaflokkanna til ESB og upptöku evru muni hafa áhrif á hvernig þeir greiða atkvæði í næstu alþingiskosningum.

 
Álframleiðsla

17.9.2008 Stóriðja : Aukning álframleiðslu í Straumsvík 40 þúsund tonn

Framleiðsla áls í Straumsvík mun aukast um 40 þúsund tonn á næsta ári vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins. Framkvæmdirnar eru samkvæmt deiliskipulagi innan byggingarreits og munu hefjast á næsta ári. Minni mengun verður af framleiðslunni vegna endurnýjunar hreinsibúnaðar, en andstæðingar stækkunarinnar eru ósáttir.
 
Vinnuvélar

16.9.2008 Mannvirkjagerð : ÍAV og NCC stefna íslenska ríkinu

Verktakafyrirtækin Íslenskir aðalverktakar og NCC International hafa stefnt íslenska ríkinu og krefjast 520 milljóna króna bóta vegna ólögmætrar frestunar á útboði Héðinsfjarðarganga. Fyrirtækin áttu lægsta tilboð í verkið árið 2003. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að þáverandi samgönguráðherra hafi ákveðið að taka engu tilboðanna sem bárust í verkið.

 

15.9.2008 Orku- og umhverfismál : Orkunýting til hagsældar

SI standa fyrir fundi um orkunýtingu 7. október kl. 8.30 - 10.00 í Gullteig, Grand Hótel. Á fundinum verður rætt um hvernig orkan er nýtt og hvað framtíðin ber í skauti sér í þeim efnum.
 
Evra

15.9.2008 Alþjóðlegt samstarf : Um 63% karla fylgjandi evru

Karlar eru hlynntari upptöku evru hér á landi en konur samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins. Almennur stuðningur er áfram mikill. Rúmlega 55% eru fylgjandi því að myntin verði tekin upp en 30% á móti.
 
REACH

15.9.2008 Reach : REACH - Ertu ekki viss?

Samtök iðnaðarins, Umhverfisstofnun, Samtök verslunar og þjónustu og Félag íslenskra stórkaupmanna standa morgunverðarfundi um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir REACH þann 18. september næstkomandi. Dagskráin hefst klukkan 9:00 í Yale salnum á Radisson SAS Hótel Sögu og stendur til klukkan 12.

 
Byggingaframkvæmdir

12.9.2008 Mannvirkjagerð : Blikur á lofti í byggingariðnaði

Mikill samdráttur er fyrirséður í byggingariðnaði þó hann sé ekki enn orðinn eins mikill og reikna má með. Ásgeir Magnússon forstöðumaður skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að draga muni úr vinnu á höfuðborgarsvæðinu þar sem enn eru óseldar um tvö þúsund íbúðir. Sveiflan verður minni á Norðurlandi þar sem byggingarfyrirtæki fóru hægar í sakirnar.

 
Styttur Jón Sigurðsson fylgist með Alþingi

12.9.2008 Þjónustuiðnaður : Styttur borgarinnar fengu hatta

Styttur miðborgarinnar skörtuðu sínu fegursta á menningarnótt þegar þær voru klæddar í sérsaumaða hatta Helgu Rúnar Pálsdóttur búninga- og klæðskerameistara. Hún segir að tíðarandi og persónuleiki þeirra merku manna sem stytturnar eru af hafi haft úrslitaáhrif á útkomuna. Hattarnir hafi vakið athygli og fengið miklar og góðar undirtektir.

 
Vottunin skiptir miklu máli

11.9.2008 Gæðastjórnun og rekstur : GT Tækni fyrsta fyrirtækið með C-vottun

GT Tækni ehf. er fysta fyrirtækið sem hlýtur C-vottun gæðastjórnunarkerfis Samtaka iðnaðarins. Um er að ræða annan hluta kerfisins sem tekið er upp í fjórum áföngum. Framkvæmdastjóri GT Tækni segir vottunina forsendu samnings við stærsta viðskiptavin fyrirtækisins.
 
Gunnar Guðjónsson

11.9.2008 Mannvirkjagerð : Málaði lestarstöð í Helsinki

Gunnar Guðjónsson tvöfaldur Íslandsmeistari í málaraiðn málaði þrjá veggi á lestarstöð í Finnlandi þegar hann tók þátt í keppni iðnnema í húsamálun á Norðurlandamóti málara. Keppnin fór fram í Helsinki dagana 28-31. ágúst og var hluti af ráðstefnu Norrænna málarameistara sem haldin er annað hvert ár.

 
Eiður Haraldsson

10.9.2008 Opinber innkaup og útboð : Opinberir verkkaupar í hörðu samkeppnisumhverfi

Eiður Haraldsson fyrrverandi verktaki spyr í grein í Morgunblaðinu í dag hvort eðlilegt sé að Reykjavíkurborg reyni ekki að halda mannaflsfrekum byggingaframkvæmdum í landi. SI sendu fyrr í þessum mánuði bréf til borgaryfirvalda þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að við val á tilboði séu gerðar þær kröfur að bjóðendur uppfylli þau skilyrði sem um getur í útboðs- og tilboðsskrá 0.1.3 við opnun tilboða.

 
Klippt á borðann

10.9.2008 Orku- og umhverfismál : Opnun endurvinnslunnar í Riga - myndir

PET-Baltija endurvinnsluverksmiðjan var opnuð í Riga í Lettlandi á mánudag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gangsetti verksmiðjuna sem er að meirihluta í eigu Gámaþjónustunnar. Verksmiðjan mun endurvinna PET flöskur og er stærsta og fullkomnasta verksmiðja sinnar tegundar í Eystrasaltslöndunum.

 
Verðbólga og gengi

10.9.2008 Stóriðja : Álframleiðsla þrefaldast frá árinu 2002

Frá árinu 2002 hefur álframleiðsla aukist úr 282 þúsund tonnum í 760 þúsund tonn. Á Íslandi starfa tæplega 1500 manns við álver og afleidd störf eru um 3.100. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu og er svar iðnaðarráðherra við fyrirspurn varaformanns Framsóknarflokksins.

 
Jarðvarmi

9.9.2008 Sprotafyrirtæki : Hágæðaprótín unnið úr virkjun á Hellisheiði

Miklar vonir eru bundnar við nýja vinnslulínu sem annast hreinsun jarðhitagass með lífrænum hætti við jarðgufuvirkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði. Líftæknifyrirtækið Prokatín ehf og Orkuveitan undirrituðu samning þess efnis í gær.

 
Menntastefna

9.9.2008 Menntun og fræðsla : Menntaþing 12. september - Skráningu lýkur í dag!

Menntamálaráðherra boðar til Menntaþings í september sem öllum er opið. Á þinginu munu innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um stefnu í menntamálum og framkvæmd hennar. Fjallað verður um menntun kennara, framhaldsskóla framtíðarinnar og tengsl milli skólastiga. Skráningu lýkur í dag.
 
PET

8.9.2008 Orku- og umhverfismál : Íslensk endurvinnsla í Lettlandi

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra Íslands og Raimonds Vejonis umhverfisráðherra Lettlands gangsettu í dag nýja verksmiðju í Riga höfuðborg Lettlands. PET-Baltija verksmiðjan er að meirihluta í eigu Gámaþjónustunnar og mun endurvinna PET-flöskur. Hún er stærsta og fullkomnasta verksmiðja sinnar tegundar í Eystrasaltslöndunum.
 
Nýtt húsnæði Héðins

8.9.2008 Málmiðnaður : Vantar fólk til starfa - laun ekki vandamál

Íslenska iðnaðarmenn vantar sárlega til starfa hjá málmiðnaðarfyrirtækinu Héðni í Garðabæ. Reglulegar auglýsingar fyrirtækisins hafa lítinn árangur borið. Guðmundur S. Sveinsson framkvæmdastjóri Héðins segir í Fréttablaðinu í dag að þeim fækki sem leggi fyrir sig iðnnám. Skortur á iðnaðarmönnum gæti orðið víðtækt vandamál.
 
Rektor Háskólans í Reykjavík

8.9.2008 Menntun og fræðsla : Átak í almannaþágu á tíu ára afmæli HR

Nýtt verkefni Háskólans í Reykjavík Þegar vel er sáð var formlega hleypt af stokkunum á tíu ára afmæli skólans á dögunum. Þar bjóða nemendur og kennarar endurgjaldslausa vinnu sína til félagasamtaka sem starfa í þágu almannaheilla.

 
Fjöreggið

8.9.2008 Matvælaiðnaður : Fjöregg MNÍ - tilnefningar óskast fyrir 10. september

Matvæladagur Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands (MNÍ) verður haldinn í Iðnó 16. október næstkomandi. Yfirskrift dagsins er Íslenskar matarhefðir og héraðskrásir. Tilnefningar berist með stuttum rökstuðningi fyrir 10. september.
 
Jarðvarmi

5.9.2008 Stóriðja : Mat á umhverfisáhrifum útilokar ekki rannsóknarboranir

Ekkert kemur fram í úrskurði um heildstætt umhverfismat sem útilokar rannsóknarboranir á Þeistareykjum á meðan matið er í vinnslu. Þetta segir Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins í Fréttablaðinu í dag. Boranirnar hafa verið í óvissu vegna ólíkrar túlkunar stjórnvalda og framkvæmdaaðila á úrskurðinum.

 
Formannafundur á Íslandi

5.9.2008 Forsíðufréttir : Fundur norænnna formanna í samtökum atvinnulífs og iðnaðar

Árlegur fundur formanna samtaka norænna iðn- og atvinnurekendava haldinn í Reykjavík 29. ágúst síðastliðinn. Umræðuefni fundarins var þrískipt þar sem fjallað var um stöðu Norðurlandanna í alþjóðlegu efnahagskerfi. Áhersla var lögð á sérstöðu landanna, þróun á vinnumarkaði og stefnu í menntamálum.
 
Limtré

5.9.2008 Forsíðufréttir : Stjórn SI í fyrirtækjaheimsóknir

Stjórn SI fór í heimsókn til þriggja fyrirtækja á Suðurlandi í upphafi septembermánaðar. Litið var inn hjá plaströraverksmiðjunni Set á Selfossi, SS á Hvolsvelli og Límtré á Flúðum. Heimsóknirnar voru hluti af stefnumótunarferð stjórnarinnar dagana 2. – 3. september.

 
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra

4.9.2008 Stóriðja : Ríkisstjórnin styður álver á Bakka

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði á Alþingi í gær að ríkisstjórnin styddi álver á Bakka. Hún vildi hins vegar nýta auðlindir landsins af varúð og skynsemi. Þetta kom fram í Viðskiptablaðinu í dag. Ummælin voru svar ráðherra við kröfu Steingríms J. Sigfússonar formanns VG um skýr svör varðandi viðhorf stjórnarinnar til vikjana og uppbyggingar stóriðjufyrirtækja hér á landi.
 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.