Forsíðufréttir

Currency_transfers

31.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Úrræði vegna óvissu um greiðslufallstryggingar

Vegna gjaldeyrishafta Seðlabankans og vandamála í kjölfar hruns íslensku bankanna hafa milliríkjaviðskipti ekki gengið eins og skyldi. Eftir mikla umfjöllun um íslensku fjármálakreppuna á erlendri grundu fást sum erlend greiðslutryggingarfélög ekki til að gangast í ábyrgðir fyrir greiðslur frá íslenskum bönkum. Á vef Viðskiptaráðs Íslands er bent á möguleg úrræði í þessum efnum.

Lesa meira
 
Byggingaframkvæmdir

31.10.2008 Forsíðufréttir : Kröftuga viðspyrnu strax

Eigi að koma í veg fyrir algjöra stöðnun í atvinnulífinu verður að grípa til aðgerða án tafar. Ekki dugar að vísa til þess að enn sé verið að leysa brýnni vanda. Stöðvist hjól atvinnulífsins verður þeim ekki svo auðveldlega komið í gang á ný. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í grein í Viðskiptablaðinu í dag.

Lesa meira

 
Seðlabanki Íslands

31.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Tilboðsmarkaður með gjaldeyri

Vegna sérstakra aðstæðna á banka markaði kom Seðlabankinn upp svonefndum tilboðsmarkaði fyrir gjaldeyri um miðjan októbermánuð. Á heimasíðu bankans eru niðurstöður um viðskipti og verð birtar daglega. Útflytjendur og aðrir sem eiga gjaldeyri eru eindregið hvattir til að bjóða hann til sölu á þessum vettvangi til að styrkja verð myndun á tilboðsmarkaðnum. Hægt er að fela fjármálafyrirtækjum sem eiga viðskipti við Seðlabankann að koma tilboðum á framfæri. Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

31.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Bankarnir komi að björgunarstörfum

Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins sagði á Morgunvakt RUV í morgun að afar mikilvægt væri að bankarnir væru djarfir í að hjálpa fyrirtækjum að halda starfsemi sinni áfram. Hlutverk bankanna væri þó ekki auðvelt, þeir væru nýstofnaðir og spurning hversu vel fjárhagslega þeir væru búnir undir þau erfiðu verkefni sem nú blasi við.

Lesa meira
 
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

30.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Atvinnuleysistryggingasjóður líklega í samstarf við SI og sprotafyrirtæki

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að til greina kæmi að Atvinnuleysistryggingasjóður tæki upp samstarf við Samtök iðnaðarins og Samtök sprotafyrirtækja. Þannig gæti skapast um hundrað ný störf í sprotafyrirtækjum fyrir fólk sem misst hefur vinnuna. Ráðherra vitnaði þannig í ályktun sem rædd var á fjölmennum fundi Samtaka iðnaðar-, ....

Lesa meira

 
Bergsteinn Einarsson

30.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Horfa til tækifæra í útflutningi

Samdráttur í byggingariðnaði kemur illa við röraverksmiðjuna Set eins og flest önnur fyrirtæki sem tengjast byggingariðnaði. Átta starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum um mánaðarmótin, en fyrirtækið horfir nú til tækifæra sem skapast við breyttar efnahagsaðstæður. „Við ætlum að snúa okkur í auknum mæli að útflutningi, en hann hefur verið illframkvæmanlegur á tímabili hás gengis krónunnar,“ segir Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem vinnur nú að endurskipulagningu rekstursins.

Lesa meira
 
Finnbogi Jónsson

30.10.2008 Sprotafyrirtæki : Nauðsynlegt að stjórnvöld styðji sprotafyrirtæki

Hætta er á að sprotafyrirtæki sem gætu skilað töluverðum tekjum í þjóðarbúið lifi ekki efnahagsþrengingarnar af án stuðnings stjórnvalda. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar segir í Fréttablaðinu í dag að mörg þeirra geti einungis fjármagnað rekstur sinn til skamms tíma í senn og fyrirgreiðsla í bönkum sé afar erfið.

Lesa meira

 
Verðlaunaafhending

30.10.2008 Sprotafyrirtæki : Hamingjuóskum rignir yfir Marorku

„Þessi verðlaun skipta okkur óskaplega miklu máli og styrkja okkur í sölu og markaðsmálum,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku, sem tók við náttúru- og um hverfisverðlaunum Norðurlandaráðs í Helsinki í Finnlandi á þriðjudag. Verðlaunin hlaut Marorka fyrir þróun tölvukerfa sem lágmarka olíunotkun skipa og draga úr mengun og eldsneytiskostnaði.

Lesa meira

 
Bjarni Már Gylfason

29.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Ýmis tækifæri felast í fjármálakreppunni

Ýmis tækifæri felast í þeim efnahagsþrengingunum sem þjóðin stendur nú frammi fyrir. Þar má helst nefna nýsköpun, nýtingu mannauðs og eflingu íslensks iðnaðar. Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins bendir einnig á nauðsyn stöðugleika fyrir atvinnulífið. Lesa meira
 
Jón Sigurðsson

29.10.2008 Heilbrigðistækniiðnaður : Besta afkoma Össurar til þessa

Stoðtækjafyrirtækið Össur hagnaðist um 13,7 milljóna dollara á þriðja fjórðungi þessa árs og er það arðbærasti ársfjórðungur fyrirtækisins til þessa. Hagnaðurinn samsvarar tæpum 1,7 milljarði króna og sexfaldaðist milli ára. Lesa meira
 
Vinna við vegagerð

29.10.2008 Mannvirkjagerð : Vegagerðin býður út nokkur stór verk

Á næstu vikum og mánuðum mun Vegagerðin bjóða út nokkur stór verk sem munu taka um 2-3 ár í framkvæmd. Auk þeirra verða smærri verkefni boðin út sem reiknað er með að fari að mestu fram árið 2009.

Lesa meira
 
Currency_transfers

28.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Staða greiðslumiðlunar og greiðsluleiðir

Seðlabankinn ítrekaði í dag mikilvægi þess að þeir sem eiga von á greiðslum frá útlöndum sjái til þess að greiðandinn fái nýjar upplýsingar um færar greiðsluleiðir. Fyrirtæki eru hvött til þess að kynna sér þær og senda viðskiptamönnum sínum í útlöndum.
Lesa meira
 
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir

28.10.2008 Menntun og fræðsla : Samráðshópur stofnaður um menntun

Þær breytingar sem eru að verða á íslensku samfélagi verða vaktaðar og áætlanir gerðar um viðbrögð af nýjum samráðshópi um menntun. Aðilar vinnumarkaðarins, menntastofnanir atvinnulífsins og fulltrúar mennta- og félagsmálaráðuneytisins hafa undir forustu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) stofnað til samráðsvettvangs á sviði menntunar og þjálfunar.

Lesa meira
 
Bjarni Már Gylfason

28.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Vaxtahækkun í óhag hratt kólnandi hagkerfis

Helmings hækkun stýrivaxta mun hafa mjög neikvæð áhrif á rekstur atvinnulífsins sem nú þegar á undir högg að sækja. Þetta er mat Bjarna Más Gylfasonar hagfræðings Samtaka iðnaðarins. Fréttir af 6% hækkun Seðlabankans í morgun hafi verið óvæntar og ekki í hag vaxandi atvinnuleysis og hratt kólnandi hagkerfis. Lesa meira
 
Acoa hlýtur jafnréttisverðlaun

28.10.2008 Stóriðja : Fjarðarál hlýtur jafnréttisviðurkenningu

Jafnréttisráð veitti á dögunum Alcoa Fjarðaráli viðurkenningu á sviði jafnréttismála. Nú eru 28% allra starfsmanna konur. Um er að ræða besta árangur innan Alcoa samsteypunnar og líklega heimsmet í áliðnaði. Lesa meira
 
Hringtorg Reykjanesbraut/Arnarnesvegur

27.10.2008 Mannvirkjagerð : Suðurverk verðlaunað fyrir flýtimeðferð

Nýtt hringtorg yfir Reykjanesbraut í Kópavogi sem er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi verður opnað í lok nóvember. Það er hálfu ári áður en verklok voru upphaflega fyrirhuguð. Vegagerðin hefur ákveðið að verðlauna verktakana Suðurverk og Skrautu vegna þessa með 35 milljóna flýtifé. Lesa meira
 
Byggingaframkvæmdir

27.10.2008 Mannvirkjagerð : Lítil bjartsýni framundan í byggingariðnaði

Allt stefnir í að um fjögur hundruð manns missi vinnu í byggingariðnaði um næstu mánaðarmót. Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, segir í Morgunblaðinu í dag að svo virðist sem mikill niðurskurður verði í verklegum framkvæmdum. Algjört frost sé á íbúðamarkaði og bjartsýni því lítil í geiranum. Hið opinbera þurfi að hefja verklegar framkvæmdir hið fyrsta. Lesa meira
 
Philippe de Buck framkvæmdastjóri Businesseurope

25.10.2008 Alþjóðlegt samstarf : Aðgerðir Breta gegn Íslendingum harðlega gagnrýndar

Ýkt viðbrögð breskra yfirvalda gegn Íslandi voru harðlega gagnrýnd á fundi framkvæmdastjóra Businesseurope í Brussel á fimmtudag. Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI útskýrði hvernig yfirlýsingar Gordon Brown forsætisráðherra og Alistair Darling fjármálaráðherra hefðu gert slæma stöðu enn verri. Lesa meira
 

24.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Ríkisstjórnin óskar eftir aðstoð IMF

Stjórnvöld hafa óskað eftir formlegum viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að koma á efnahagslegum stöðugleika á Íslandi. Áætlun sem ríkisstjórnin og sendinefnd IMF á Íslandi hafa unnið að fer nú fyrir yfirstjórn bankans sem fari yfir stöðuna áður en endanlegt samkomulag liggur fyrir. Fengið verður tveggja milljarða dala lán sem greiðist til baka á árunum 2012-2015. Lesa meira
 
Karahnjukastifla

24.10.2008 Stóriðja : Alcoa vill reisa annað álver á Íslandi

„Þegar horft er til framtíðar hefur Ísland ótrúlegar undirstöður til að byggja á,“ sagði Kevin Anton varaforseti Alcoa á blaðamannafundi í Bandaríkjunum í gær. Þrátt fyrir efnahagsástandið hér á landi hafi fyrirtækið enn fullan hug á að reisa hér annað álver. Lesa meira
 
Geir Haarde

23.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Forsætisráðherra spyr 450 stærstu fyrirtækin ráða

Geir Haarde, forsætisráðherra, hefur sent 450 stærstu fyrirtækjum hér á landi spurningalista þar sem óskað er svara og innleggs í vinnu ríkisstjórnarinnar vegna alvarlegs ástands í efnahagslífinu. Ástæða er til að hvetja félagsfyrirtæki SI, sem eru í úrtakinu, að svara könnuninni. Lesa meira
 
Háskóli Íslands

23.10.2008 Menntun og fræðsla : Frestur til náms í vistvænni orkunýtingu framlengdur

Í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi hefur umsóknarfrestur til meistaranáms við RES – Orkuskólann (RES – the School for Renewable Energy Science) verið framlengdur til 1. desember næstkomandi. Lesa meira
 
Jón Ágúst Þorsteinsson

23.10.2008 Sprotafyrirtæki : Drifkraftur Marorku er samfélagsábyrgð

„Ég er mjög stoltur og bjóst alls ekki við að fá þessi verðlaun. Hugur manna hefur verið lítið við skip og orkusparnað þeirra á Norðurlöndum," segir Jón Ágúst Þorsteinsson framkvæmdastjóri Marorku sem hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlanda 2008. Lesa meira
 
Orka

22.10.2008 Orku- og umhverfismál : Orkuverkefni erlendis skila verulegum gjaldeyristekjum

Fjölmörg orkuverkefni sem Íslendingar koma að eru í gangi erlendis og munu skila gjaldeyristekjum í ríkum mæli í þjóðarbúið. Þetta er haft eftir Guðna Jóhannessyni orkumálastjóra í Viðskiptablaðinu. Hann segir að Íslendingar verði að nýta orkuauðlindir.

Lesa meira

 
Náttúruvefsjá

22.10.2008 Upplýsingatækni : Náttúruvefsjá opnuð

Gervitunglamyndir, loftmyndir og ljósmyndir af Íslandi eru meðal upplýsinga sem nú eru aðgengilegar á nýrri Náttúruvefsjá. Þar má finna fjölbreytt gögn sem tengjast náttúru Íslands, auðlindum og náttúruvernd.

Lesa meira

 
Tölvumynd af nýjum HR í Vatnsmýri

22.10.2008 Mannvirkjagerð : Framkvæmdir HR í Vatnsmýri á áætlun

Stefnt er að því að fyrri áfanga Háskólans í Reykjavík í Vatnsmýri verði lokið á áætlun næsta haust. Um er að ræða 23 þúsund fermetra byggingu en framkvæmdir eru í fullum gangi. Lesa meira
 
Vinnuvélar

22.10.2008 Mannvirkjagerð : Búist við útboði Dýrafjarðarganga á næsta ári

Raskist opinberar framkvæmdir ekki um of vegna endurskipulagningar íslensks efnahagslífs gætu svokölluð Dýrafjarðargöng orðið að veruleika á næstu þremur árum. Núverandi vegur milli norður- og suðursvæðis Vestfjarða þykir óviðunandi. Lesa meira
 
Craig Davidson (f. miðju) ásamt starfsmönnum Odda að leggja lokahönd á verkið.

22.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Gjaldeyrisskortur háir iðnaði

Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir í Viðskiptablaðinu í dag að gjaldeyrisskortir hái flestum iðnfyrirtækjum. Iðnaður hafi skaðast en framleiðslan hafi þó ekki stöðvast. Staðan hafi þó stundum verið tæp. Beðið sé frétta af aðgerðum.

Lesa meira
 
Jarðvarmi

21.10.2008 Orku- og umhverfismál : Grænt ljós á boranir við Þeistareyki og Kröflu

Rannsóknarboranir geta farið fram við Kröflu og Þeistareyki næsta sumar samkvæmt mati Skipulagsstofnunar. Vegna eðlis borananna megi taka þær út úr heildarumhverfismati sem umhverfisráðherra úrskurðaði um síðastliðið sumar vegna fyrirhugaðs álvers við Bakka og tengdra framkvæmda. Lesa meira
 
Samtok_idnadarins_-_Borgartun_35

21.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Um 48% fækka starfsfólki - 14% fjölga

Samkvæmt nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins munu stjórnendur 48% fyrirtækja fækka fólki á næstunni, eða hafa þegar gert það, en 14% áforma að fjölga starfsfólki. Tæplega fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum halda starfshlutfalli óbreyttu. Þetta þýðir samkvæmt niðurstöðum Morgunblaðsins að í allt munu um sjö þúsund manns missa vinnuna á þessu ári.

Lesa meira
 
Guðrún Adolfsdóttir

21.10.2008 Matvælaiðnaður : Efla fjölskylduna með matreiðslunámskeiðum

„Okkur finnst sérstök ástæða núna til að hvetja fjölskylduna til að elda oftar saman góðan og hollan mat,“ segir Guðrún Adolfsdóttir matvælafræðingur hjá Rannsóknarþjónustunni Sýni. Fyrirtækið býður nú upp á nýtt námskeið sem miðar að því að fjölskyldan eldi oftar saman hollan, ódýran og spennandi mat þar sem íslensk hráefni eru í hávegum höfð.

Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

20.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Uppsagnir yfirvofandi - Fyrirtæki hvött til að bjóða hlutastörf

Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að allar líkur séu á að uppsögnum fjölgi á næstunni. Samtökin hvetji til að fyrirtæki bjóði frekar hlutastörf. „Allt er betra en að senda fólk heim,“ segir Jón Steindór. Nú þegar mánaðarmót nálgist geri fyrirtæki hins vegar allt til að láta enda ná saman.

Lesa meira
 
Álframleiðsla

20.10.2008 Stóriðja : Ál lækkaði um 37% á þremur mánuðum

Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið lægra síðan árið 2005 en það hefur lækkað um 37% á síðustu þremur mánuðum. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa á Íslandi, að vel sé fylgst með niðursveiflunni og að öll álfyrirtæki finni fyrir henni. Lesa meira
 
info-sign

17.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Mikilvægt að upplýsa erlenda viðskiptavini

Margir erlendir viðskiptavinir íslenskra iðnfyrirtækja eiga erfitt með að átta sig á stöðu mála hér á landi og hvers vegna greiðslur hafa ekki skilað sér í samræmi við það sem um var samið. Lesa meira
 
Hörður Arnarson

17.10.2008 Málmiðnaður : Hlutafjárútboð Marels skilaði 1,4 milljarði

Rúmlega 20 milljón hlutir að nafnvirði seldust í hlutafjárútboði Marel Food Systems í gær. Selt var á genginu 70 og fengust rúmlega 1,4 milljarðar fyrir. Það jafngildir 3,58% af heildarhlutafé félagsins. Stjórn Marel tók öllum tilboðunum sem voru flest frá lífeyrissjóðum. Tilgangur útboðsins var að styrkja fjárhag félagsins og auka viðskipti með hlutabréf þess.

Lesa meira
 
Currency_transfers

17.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Tilkynning frá Bretum ætti að greiða fyrir viðskiptum

Breska fjármálaráðuneytið gaf í dag út yfirlýsingu sem skýrir í hverju takmarkanir Breta gagnvart Landsbankanum felast. Tilkynningunni er ætlað að liðka fyrir eðlilegu fjármagnsstreymi milli Íslands og Bretlands. Lesa meira
 
Orf líftækni

17.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Mannauður í húfi

Starfsmannastjórar hjá um tug fyrirtækja SI í ólíkum atvinnugreinum hittust í gær á fundi til að ræða hræringar í starfsmannamálum. Ástandið slær öll fyrirtæki í öllum greinum, en mishart. Lesa meira
 
Álframleiðsla

17.10.2008 Stóriðja : Skorað á yfirvöld að nýta auðlindir landsins

Bæjar-og sveitarstjórar ásamt fulltrúum ýmissa félaga á Norðausturlandi hafa sent opinbera áskorun til ríkisstjórnarinnar þar sem hún er hvött til að taka ákvörðun um byggingu álvers á Bakka. Í auglýsingu segir að nú sé enn brýnna en áður að nýta auðlindir landsins og þau tækifæri sem bjóðist til að skjóta sterkum stoðum undir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Lesa meira
 
Hrafnaþing

16.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Framkvæmdir má ekki tefja með hömlum

Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins sagði í Hrafnaþingi Ingva Hrafns á sjónvarpsstöðinni ÍNN að of langt hefði verið gengið fram með hömlum á verkefnum og umhverfismati. Framkvæmdir hafi verið tafðar og því hafi Íslendingar ekki efni á við núverandi aðstæður. Gera þurfi kröfu um að stjórnvöld greiði fyrir þessum málum svo hægt sé að byggja undir tekjuskapandi iðnað. Lesa meira
 
Seðlabanki Íslands

16.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Aðföng og hráefni til iðnaðar eiga að fá afgreiðslu

Seðlabanki Íslands hefur svarað erindi Samtaka iðnaðarins og tekur undir mikilvægi þess að íslenskum iðnaði verði tryggð aðföng og hráefni. Í svari bankans við erindi Samtakanna um temprun útflæðis gjaldeyris kemur skýrt fram að aðföng og hráefni eigi að vera í forgangsflokki. Lesa meira
 
Fjöreggið 2008

16.10.2008 Matvælaiðnaður : Ávaxtabíllinn hlaut Fjöreggið 2008

Ávaxtabíllinn hlaut í dag Fjöreggið 2008 við athöfn í Iðnó þar sem Matvæladeginum er fagnað. Verðlaunin eru veitt fyrir lofsvert framtak á matvælasviði og voru afhent við upphaf ráðstefnunnar Íslenskar matarhefðir og héraðskrásir. Ávaxtabíllinn hefur unnið mikið frumkvöðlastarf til að auðvelda aðgang að hollum matvælum og vakið verðskuldaða athygli fyrir.

Lesa meira
 
Bloomberg

15.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Fullviss að við vinnum okkur úr krísunni

Það ástand sem fyrirtæki í inn- og útflutningi búa við með að koma peningum á milli landa getur ekki gengið mikið lengur. Á meðan umheimurinn er ekki tilbúinn að eiga viðskipti við þessar aðstæður mun ástandið versna. Þetta sagði Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í beinni útsendingu á Bloomberg fréttaveitunni í morgun.

Lesa meira
 

15.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Fella niður álag vegna staðgreiðsluskila

Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um að það hafi óskað eftir að álag vegna skila á staðgreiðslu verði fellt niður tímabundið. Niðurfellingin gildi í eina viku, eða til 22. október.

Lesa meira
 
Bjarni Már Gylfason

15.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Vaxtalækkun Seðlabankans löngu tímabær

„Í fyrsta skipi í mjög langan tíma er ég sammála mati Seðlabankans á stöðu mála“, segir Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins á vef Viðskiptablaðsins í dag. Hann segir öllum ljóst að aðstæður hafi breyst mikið til hins verra á skömmum tíma. Sá eftirspurnarþrýstingur sem kunni að hafa verið til staðar í hagkerfinu sé horfinn og gott betur.

Lesa meira
 
Tónlistar- og ráðstefnuhús

15.10.2008 Mannvirkjagerð : Ríki og borg taki við tónlistarhúsi

Nú er unnið að því að skoða hvernig ríki og borg gætu tekið við framkvæmdum Tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. Í Morgunblaðinu í dag segir að markmiðið sé að bjarga verðmætum með því að halda framkvæmdum gangandi. Byggingin er um það bil hálfnuð, en hægt hefur á framkvæmdum. Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

15.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Krónan enn við lýði vegna viðhorfa til fullveldis

Ísland hefur ekki efni á að halda áfram á þeirri braut sem það hefur verið á og eina myntin sem kemur til greina í framtíðinni er evra. Þetta sagði Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í fréttum Stöðvar 2 í gær. Bloomberg fréttaveitan segir krónuna löngu dauða. Lesa meira
 
Tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík

14.10.2008 Mannvirkjagerð : Tónlistarhúsið verði birtingarmynd endurreisnar

Vladimir Ashkenazy tónlistarmaður, Ólafur Elíasson listamaður, Peer Teglgaard arkitekt og Jasper Parrott ráðgjafi hafa sent frá sér bréf þar sem þeir hvetja til þess að tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík rísi þrátt fyrir ofviðrið sem nú geisi í kringum Ísland. Í Morgunblaðinu kemur fram að með bréfinu vilji þeir sýna íslensku þjóðinni „skilyrðislausan stuðning“ við að þetta mikilvæga verkefni verði leitt til lykta.

Lesa meira
 
Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík

14.10.2008 Stóriðja : Höfum ekki efni á að tefja álversuppbyggingu

Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Alþingi í gær að þjóðfélagið hefði ekki efni á að tefja álversuppbyggingu eins og staðan væri í efnahagslífinu. Í fyrirspurn til Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra spurði hann hvort ráðherra vildi draga ákvörðun um umhverfismat vegna álvers við Bakka til baka. Þórunn svaraði að það kæmi ekki til greina. Lesa meira
 
Vinna við vegagerð

13.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Varað við skyndiákvörðunum um stöðvun framkvæmda

Samtök iðnaðarins skora á þá sem standa fyrir verklegum framkvæmdum að taka ekki skyndiákvarðanir um stöðvun framkvæmda eða frestun þeirra sem nú eru í burðarliðnum. Það geri illt verra við þær aðstæður sem nú ríki.

Lesa meira
 
Fjöreggið

13.10.2008 Matvælaiðnaður : Matvæladagurinn hefst á Fjöregginu

Ráðstefnan Íslenskar matarhefðir og héraðskrásir verður haldin í Iðnó á Matvæladaginn næstkomandi fimmtudag, 16. október. Fjöreggið, verðlaun fyrir lofsvert framtak á matvælasviði, verður afhent í upphafi ráðstefnunnar sem hefst klukkan 13. Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

13.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Alverst ef dregur úr framkvæmdum

Meðan sú mikla óvissa ríkir sem einkennt hefur síðustu tvær vikur er líklegt að menn fari að halda að sér höndum í framkvæmdum. Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir í Fréttablaðinu í dag að það sé það alversta í stöðunni. Lesa meira
 
Currency_transfers

11.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Aðföng og hráefni til iðnaðarins verði tryggð

Samtök iðnaðarins hafa óskað eftir því við Seðlabanka Íslands og bankastofnanir að temprun útstreymis gjaldeyris bitni ekki á íslenskum iðnaði sem í senn sparar og aflar þjóðinni nauðsynlegs gjaldeyris. Lesa meira
 
Álverið í Straumsvík

10.10.2008 Stóriðja : Vilja aðra íbúakosningu um stækkun álvers

Gylfi Ingvarsson trúnaðarmaður starfsmanna álversins í Straumsvík hefur sent öllum bæjarfulltrúum í Hafnarfirði bréf þar sem hann skorar á yfirvöld að greiða fyrir stækkun álversins. Í Morgunblaðinu í dag segir að undirbúningur undirskriftalista sé hafinn. Til að knýja á um kosningu þurfa 25% atkvæðisbærra manna í bæjarfélaginu að skrifa undir.

Lesa meira
 
BBC Scotland

10.10.2008 Alþjóðlegt samstarf : Mikil ásókn erlendra fjölmiðla

Mikil ásókn er af erlendum fjölmiðlum sem leita viðhorfa Samtaka iðnaðarins við efnahagsástandinu sem nú ríkir hér á landi. Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtakanna segist hafa veitt fjölda erlendra fréttamanna viðtöl, meðal annars BBC í Skotlandi og sænska ríkisútvarpinu.

Lesa meira
 
Vaxtarsprotinn 2007

9.10.2008 Sprotafyrirtæki : Marorka hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlanda

Hátæknifyrirtækið Marorka hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2008 sem afhent verða 28. október næstkomandi. Fyrirtækið hlýtur verðlaunin fyrir þróun tölvukerfa sem miða að lágmörkun olíunotkunar skipa og draga þannig úr mengun og eldsneytiskostnaði.

Lesa meira
 
Fjöreggið

9.10.2008 Matvælaiðnaður : Tilnefningar til Fjöreggs MNÍ 2008

Tilnefningar til Fjöreggs Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands 2008 hafa verið tilkynntar. Þetta er í 16. sinn sem verðlaunin eru veitt þeim sem þykir hafa sýnt lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Samtök iðnaðarins eru bakhjarl Fjöreggsins.

Lesa meira
 
Kjóll Diddúar

8.10.2008 Þjónustuiðnaður : Saumað í gegnum tíðina

Klæðskera- og kjólameistarafélagið stóð í síðasta mánuði fyrir sýningu á fatnaði sem félagsmenn þess hafa saumað í gegnum tíðina. Sýningin var í tilefni 65 ára afmælis félagsins og var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Selma Ragnarsdóttir formaður félagsins segir að sýningin hafi heppnast einkar vel og aðsókn farið fram úr vonum.

Lesa meira
 
Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík

7.10.2008 Stóriðja : Norðurál tilbúið að flýta framkvæmdum

Ef orka fæst strax í næsta áfanga Norðuráls í Helguvík er fyrirtækið tilbúið að flýta framkvæmdum þar. Þetta er haft eftir Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar á vef Víkurfrétta í dag. Tvö önnur verkefni eru ennfremur í góðum undirbúningi.

Lesa meira
 
Össur Skarphéðinsson

7.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Vilja reisa erlendar verksmiðjur á Íslandi

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði í viðtali Í bítinu á Bylgjunni í morgun að áhugi væri fyrir því að reisa erlendar kísilflöguverksmiðjur hér á landi. Eftir þessu hefði verið leitað eftir undirskrift neyðarlaga í gærkvöldi. Tveir staðir hafi verið nefndir í því samhengi, en orku þurfi fyrir starfsemi þeirra. Ráðherrann vill lækka skatta til þess að Ísland sé samkeppnishæft við önnur ríki um slíka starfsemi.

Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

7.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Mikilvægt að kaupa íslenskt

Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins sagði í viðtali í morgunútvarpi RUV að mikilvægt væri fyrir þjóðina að styrkja eigin innviði og efla íslenskan iðnað. Stærsta verkefni yfirvalda væri að tryggja peningaflæði svo hjól atvinnulífsins stöðvist ekki og passa þurfi upp á atvinnustig í landinu. Þjóðin þurfi að halda ró sinni við þessar aðstæður.

Lesa meira
 
Orka

6.10.2008 Orku- og umhverfismál : Morgunverðarfundi um orkumál frestað

Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur morgunverðarfundinum „Orkunýting til hagsældar“, sem Samtök iðnaðarins höfðu boðað til í fyrramálið, verið frestað. Nánari tímasetning verður auglýst síðar.

Lesa meira
 
Tölva

6.10.2008 Orku- og umhverfismál : Regluverk umhverfismála og vinnuverndar aðgengilegt á netinu

Tekin hafa verið saman í einn gagnagrunn lög og reglur er lúta að umhverfismálum og vinnuvernd. Samtök iðnaðarins munu bjóða félagsmönnum sínum aðgang að grunninum í gegnum internetið eftir undirritun samnings þess efnis við VSÓ Ráðgjöf sem rekur grunninn. Lesa meira
 
Aðalsteinn Leifsson

3.10.2008 Alþjóðlegt samstarf : Samningaferli við ESB styttra en margur hyggur

Ef Ísland myndi sækja um aðild að Evrópusambandinu á þessu ári gæti aðild orðið að veruleika í ársbyrjun 2010. Rúmum þremur árum síðar væri möguleiki á að taka upp evru hér á landi. Þetta er mat Aðalsteins Leifssonar, lektors við Háskólann í Reykjavík sem situr í Evrópunefnd forsætisráðuneytisins.

Lesa meira
 
Undirskrift samstarfssamnings

3.10.2008 Sprotafyrirtæki : Samstarfssamningur um hátækni- og sprotavettvang undirritaður

Í morgun var undirritaður samstarfssamningur um hátækni- og sprotavettvang sem miðar að því að efla uppbyggingu sprotafyrirtækja á Íslandi. Iðnaðar-, mennta-, fjármála- og utanríkisráðuneyti standa að samningnum ásamt fjórum félagasamtökum; Samtökum sprotafyrirtækja-, líftæknifyrirtækja-, upplýsingatæknifyrirtækja og Samtökum iðnaðarins. Lesa meira
 
Árni Jóhannsson

2.10.2008 Mannvirkjagerð : Búist við frekari uppsögnum í byggingariðnaði

Árni Jóhannsson forstöðumaður mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að uppsagnir séu einu úrræðin sem fyrirtæki geti gripið til við þær efnahagsaðstæður sem nú blasi við. Í gær tilkynntu nokkrir verktakar í byggingariðnaði um uppsagnir samanlagt nær eitt hundrað starfsmanna. Þær bætast við uppsagnir fyrir í haust. Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

2.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Seðlabankinn gefi upplýsingar um aðgerðir

Seðlabankinn verður að gefa skýr skilaboð og upplýsingar um hvað sé verið að gera til að bregðast við falli krónunnar og efnahagsástandinu. Skýra þurfi ummæli talsmanns bankans um að ekki hafi verið áhugi fyrir því að ganga inn í samning milli seðlabanka Bandaríkjanna og þriggja Norðurlanda. Þetta sagði Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í morgunfréttum Ríkisútvarpsins.

Lesa meira
 
Olafur Wallevik

2.10.2008 Mannvirkjagerð : Íslendingur heiðraður fyrir umhverfisvæna steinsteypu

Alþjóðleg ráðstefna í steinsteypufræðum verður helguð Ólafi H. Wallevik forstöðumanni grunnrannsókna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Helstu steypuframleiðendur í heimi styrkja rannsóknir steinsteypudeildar rmiðstöðvarinnar sem þykir með fremstu sérfræðinga heims á því sviði. Nýjustu rannsóknir lúta að umhverfisvænni framleiðslu.

Lesa meira
 
logo SI

1.10.2008 Starfsskilyrði iðnaðar : Ályktun um stöðu efnahagsmála

Stjórn SI kallar eftir að ríkisstjórn og Seðlabanki marki sér stefnu til langs tíma í efnahagsmálum, tali skýrt og grípi þegar í stað til ráðstafana til þess að greiða úr alvarlegum lausafjárskorti, koma jafnvægi á gengi krónunnar og dragi þannig úr neikvæðum áhrifum niðursveiflu efnahagslífsins.

Lesa meira

 
Raftæki

1.10.2008 Upplýsingatækni : Lögboðin skráning raftækjaúrgangs hafin

Framleiðendur og innflytjendur þurfa að vera búnir að skrá sig í skráningakerfi fyrir 1. október sem tryggir meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs þeirra hér á landi frá áramótum. Séu þeir aðilar að sameiginlegu skilakerfi fleiri framleiðenda og innflytjenda sér það skilakerfi um skráninguna.

Lesa meira
 
Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík

1.10.2008 Stóriðja : Losunarheimildum til álvera úthlutað

Losunarheimildum vegna aukinnar álframleiðslu var í gær úthlutað til álveranna í Straumsvík, Helguvík og á Reyðarfirði. Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að úthlutunarnefnd losunarheimilda hafi lokið fyrstu árlegu endurskoðun áætlunar um úthlutun heimilda til að losa gróðurhúsalofttegundir.

Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica