Beint í leiðarkerfi vefsins.
Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur, hvetur starfsmannastjóra hjá fyrirtækjum SI til að sýna samstöðu og mæta erfiðum verkefnum af bjartsýni, jákvæðni og raunsæi. Á fundinum „Starfsmannastjórar í eldlínu“ sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir 25. nóvember sagðist hann í störfum sínum finna fyrir mikilli reiði hjá fólki. Margir væru að ganga í gegnum eins konar sorgarferli.
Lesa meira
Rúmlega 78% telja álver á Íslandi hafa mjög eða frekar jákvæð áhrif á efnahag samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Alcoa Fjarðarál í október. Rúmlega átta prósent eru neikvæðir eða mjög neikvæðir. Tæplega 60% aðspurðra segjast hafa jákvæð viðhorf til fyrirtækisins en neikvæðir eru rúmlega 18%.
Lesa meira
Rúmlega eitt þúsund manns voru saman komnir á fjöldafundi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja – Núna er tækifærið - á Hótel Nordica síðastliðinn föstudag. Á fundinum tilkynnti Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra að ríkisstjórnin hefði samþykkt að atvinnuleysistryggingasjóður myndi koma til móts við sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem ráða starfsfólk af atvinnuleysisskrá. Þannig greiði sjóðurinn 90% af bótum hvers manns gegn því að fyrirtækin leggi það sama á móti. Ekkert takmark er á fjölda starfsmanna.
Lesa meira
Skúlaverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn á sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur 31. október síðastliðinn. Verðlaunin sem styrkt eru af Samtökum iðnaðarins hlaut Páll Garðarsson fyrir nýstárlegan jólatréstopp. Auk hans hlutu Margrét Guðnadóttir og Dýrfinna Torfadóttir sérstakar viðurkenningar.
Lesa meira
Hér á landi hafa einungis sjö fyrirtæki skráð efni til nýju evrópsku efnalöggjafarinnar REACH. Forskráningu lýkur í lok þessa mánaðar en mjög mikilvægt er að íslensk fyrirtæki taki þátt í ferlinu frá byrjun því óheimilt verður að framleiða eða markaðssetja óskráð efni í Evrópu.
Tölvuleikurinn EVE online mun fást í verslunum um allan heim eftir samning sem CCP hefur gert við tölvuleikjarisann Atari. Frá 12. mars næstkomandi mun EVE því verða fáanlegur í yfir 55 þúsund verslunum um víða veröld. Leikurinn verður einnig bættur með ofurtölvutækni og vefþjónar uppfærðir.
Lesa meira
Full ástæða er að hafa áhyggjur af fjölda fyrirtækja sem tæknilega eru gjaldþrota. Eigið fé margra þeirra hefur brunnið í ljósi utanaðkomandi atriða eins og verðtryggingar og gengisskráningar. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í Morgunblaðinu í dag. Á fundi viðskiptanefndar Alþingis hafi komi fram að líklega séu 60-80% allra fyrirtækja í landinu tæknilega gjaldþrota þar sem þau séu skuldsett í erlendri mynt.
Lesa meira
Vegna óvissuástands á fjármálamörkuðum auk annarra þátta hafa fyrirtækin Alcoa, Landsvirkjun og Þeistareykir ákveðið að fresta rannsóknarborunum vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka við Húsavík. Í fréttatilkynningu segir að ákvörðun um framhald borana muni bíða til haustsins 2009.
Lesa meira
Mikill áhugi er fyrir samvinnu milli Reykjavíkurborgar og verktaka um tillögur að framkvæmdum á vegum borgarinnar í samræmi við nýjar áherslur í atvinnumálum. Framkvæmdaáætlun fyrir árið 2009 hljóðar upp á 6-8 milljarða. Á fundi með Samtökum iðnaðarins í gær sagði Óskar Bergsson að verið væri að tryggja fjármögnun og vinna að forgangsröðun verka. Stefnt væri að því að leggja áætlunina fyrir borgarstjórn um miðjan desember.
Fyrsta útskrift úr Tækniskólanum – skóla atvinnulífsins fór fram síðastliðinn föstudag. Þá voru átta fag- og iðnnemar útskrifaðir úr diplómanámi í rekstri og stjórnun. Af því tilefni sagði Jón Steindór Valdimarsson, formaður stjórnar skólans og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, að þess væri vænst að þeir yrðu í hópi brautryðjenda við uppbyggingu íslensks atvinnulífs.
Lesa meira