Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hér á eftir fer samantekt yfir nýsamþykkt lög og breytingar á lögum sem Samtök iðnaðarins hafa látið sig varða síðustu vikur. Lögin voru samþykkt á Alþingi skömmu fyrir jól.
Lesa meira
Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hefur verið kosinn maður ársins í viðskiptalífinu hjá Markaðinum, viðskiptablaði Fréttablaðsins. Jón þykir hafa stýrt fyrirtækinu vel og fest það í sessi sem helsta stoðtækjafyrirtæki heims.
Lesa meira
Netsamfélag sem byggir á faglegu og viðskiptalegu tengslaneti og getur nýst fyrirtækjum og einstaklingum í markaðssetningu. Hjörtur Smárason hjá Scope Communications hélt kynningu á LinkedIn netsamfélaginu á aðalfundi Samtaka íslenskra líftæknifyrirtækja. Þar fór hann meðal annars yfir hvernig hægt er að byggja upp viðskiptasambönd og mynda ný á vefnum.
Lesa meira
Prentsmiðja Oddi hefur prentað rúmlega milljón bækur það sem af er árinu og stefnir í að fjöldinn verði 1,2 milljónir fyrir árslok. Verðlaun bíða þess sem hlýtur milljónustu bókina, en starfsfólk odda kom 40 þúsund króna gjafakorti á veitingahús í Reykjavík haganlega fyrir inni í bókinni. Í tilkynningu frá Odda er verðlaunahafi beðinn að gefa sig fram við markaðsdeild fyrirtækisins.
Niðurstöður könnunar á afstöðu aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins til þess hvort Samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru voru kynntar í dag. Á vef SA kemur fram að skoðanir séu mjög skiptar. Þess vegna muni SA ekki beita sér í málinu.
Lesa meira
Sýningin Íslenskur jólamatur var haldin í Vetrargarði Smáralindar fyrstu helgina í desember. Þar kynntu kjötiðnaðarfyrirtæki og laufabrauðsframleiðandi íslenskan jólamat og kjötiðnaðarmeistarar sýndu úrbeiningu á hangikjöti. Mæðrastyrksnefnd var afhent hangikjötið að lokinni úrbeiningu en það var fengið að gjöf frá ýmsum fyrirtækjum.
Lesa meira
Bakarar sem hingað til hafa notað innflutt súkkulaði munu í meira mæli kaupa íslenskt súkkulaði eftir að Nói Síríus hóf sölu til fyrirtækja. Þorsteinn Stígsson eigandi Okkar bakarís og stjórnarmaður Innbaks hefur lagt til að bakarar styðji íslenskan iðnað með þessum hætti. Þannig fáist einnig lægra verð.
Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas hefur fengið gæðastjórnunarkerfi sitt vottað samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ÍST EN ISO 9001. Fyrirtækið er fyrst jarðvinnuverktaka á íslandi að ná þessum árangri. Ferdinand Hansen verkefnastjóri gæðastjórnunar Samtaka iðnaðarins segir að með þessari gæðavottun sé ákveðnum endapunkti náð.
„Það má eiginlega segja að krónan hafi verið sett á flot í flotgalla og komið í veg fyrir að hún geti sokkið,“ sagði Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins við Viðskiptablaðið í gær. Gengisþróun komi ekki á óvart í ljósi þess hvernig að flotsetningunni var staðið.
Lesa meira
Hátæknifyrirtækið Naust Marine hefur flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði að Miðhellu 4 í Hafnarfirði. Bjarni Þór Gunnlaugsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að fyrra húsnæði í Garðabæ hafi löngu verið sprungið utan af starfseminni. Þess vegna hafi verið ráðist í byggingu 700 fermetra húss sem hentaði starfseminni betur.
Tæp 68% vilja að Íslendingar taki upp evru í stað krónu samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í nóvember. Stuðningur hefur ekki verið meiri frá því Capacent Gallup hóf að mæla viðhorf til evrunnar í ágúst 2001. Fyrr á árinu mældist stuðningurinn nálægt 60% og hafði þá ekki verið meiri frá því í febrúar árið 2002 þegar stuðningur var 57%.
Lesa meira
Óvissa með aðgerðir ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum er það versta fyrir fyrirtæki sem eru að íhuga að draga saman seglin. Þetta sagði Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun. Hann sagði horfur ekki góðar, og á meðan ekki væri tilkynnt um ákveðnar framkvæmdir yrði það til þess að sumir verktakar íhuguðu að selja vinnuvélar úr landi og segja upp fólki, sem þeir hefðu kannski ekki gert væru einhver verkefni framundan; „Við vitum að eitthvað verður gert en stjórnvöld segja ekki hvað.“
Lesa meira
Líflegar umræður um efnahagsástandið sköpuðust á vel sóttum félagsfundi Samtaka iðnaðarins á Grand hótel Reykjavík í gær. Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI sagði að aðgerðarpakki ríkisstjórnarinnar til bjargar fyrirtækjum innihéldi góðar og gildar tillögur og fyrirheit. Hins vegar væri þar ekkert fast í hendi, engar tímasettar áætlanir eða útfærðar lausnir. Það væru mikil vonbrigði.
Lesa meira