Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ráðstefnan Björt framtíð málm- og véltækniiðnaðar á Íslandi ef ... verður haldin á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 31. janúar næstkomandi klukkan 10-16. Ráðstefnan hefst á ávarpi Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra, en fjöldi manns stígur í pontu og fjallar meðal annars um samkeppnishæfni, nýsköpun og markaðssetningu í greininni.
Lesa meira
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, hlaut í gær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri fyrir lofsvert framlag til íslensk atvinnulífs. Rannveig var fyrr í mánuðinum kjörin maður ársins í íslensku atvinnulífi af Frjálsri verslun.
Lesa meira
Síðustu 12 mánuði hefur vísitala byggingakostnaðar hækkað um tæp 30%. Vísitala byggingakostnaðar mælir helstu kostnaðarliði við byggingu staðlaðrar íbúðar en ekki er tekið tillit til lóðaverðs.
Lesa meira
Líftæknifyrirtækið Genís vinnur nú að verkefni með framleiðslu á kítínafleiðum sem unnar eru úr rækjuskel. Þróun verkefnisins miðar að vörum til notkunar við bæklunarskurðlækningar með ígræðslu í beinvef. Framkvæmdastjóri Genís telur að tímamót í greininni gætu verið í augsýn.
Verktakafyrirtækið Ístak leitar nú verkefna í auknum mæli á erlendri grundu. Fyrirtækið mun hefja verklegar framkvæmdir við skóla í Nuuk í Grænlandi í mars. Mánuði síðar hefst vinna við virkjun í norðurhluta Grænlands sem hafist var handa við síðastliðið sumar. Um 80 Íslendingar munu starfa við verkefnin í Grænlandi.
Lesa meira
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP sem hannaði og rekur hinn vinsæla EVE Online tölvuleik hefur tekið upp nýja ofurtölvutækni frá Microsoft. Windows Microsoft HPC Server 2008 gerir fyrirtækinu kleift að hafa eina milljón notenda í leik sínum EVE Online. Nú eru notendur 300 þúsund. Á vef Microsoft í Bandaríkjunum er greint ítarlega frá fyrirtækinu og notkun þess á nýja kerfinu.
Lesa meira
Sú niðursveifla sem íslenska hagkerfið varð fyrir árið 1968 var mun dýpri en efnahagslægðin sem nú er hafin. Þá dundi á þjóðinni aflabrestur, verðfall afurða og landsframleiðsla minnkaði meira en gert er ráð fyrir í þessari niðursveiflu, sem er sú níunda í íslenskum efnahagsbúskap frá árinu 1940.
Lesa meira
Samtök iðnaðarins og Háskólinn á Akureyri hafa gefið út rit um nýliðun sem nefnist Lengi býr að fyrstu gerð. Ritið er vefrit og er notkun þess frjáls og án endurgjalds.
Lesa meira