Beint í leiðarkerfi vefsins.
Microsoft í Bandaríkjunum hefur heiðrað TM Software vegna verkefnis sem fyrirtækið vann í kjölfar hamfara í Burma á síðasta ári. Verkefnið fólst í hugbúnaðarlausn sem heldur utan um allar náttúruhamfarir í heiminum.
Lesa meira
Verktakafyrirtækið Loftorka hefur brugðist við samdrætti með því að búa til ný störf innan fyrirtækisins, senda fólk á námskeið og undirbúa ný verkefni. Andrés Sigurðsson, rekstrarstjóri fyrirtækisins, segir á vef SA að fyrirtækið hafi farið standandi inn í kreppuna; „Og ætlum helst að koma standandi út úr henni.“
Lesa meira
Á málþingi SI var fjallað um mannauð og menntun á umbrotatímum. Nýr menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, ávarpaði þingið. Meðal annars kom fram að nú væri mikil gerjun í atvinnulífinu sem gæfi tækifæri til að nýta betur þekkingu og menntun fólks.
Lesa meira
„Þrír stærstu bankar Íslands urðu gjaldþrota í einni og sömu vikunni í október á síðasta ári.
Þessir atburðir komu af stað kerfisbundinni kreppu hér á landi þegar greiðslumiðlun
innan lands og við önnur lönd brast tímabundið. Í kjölfarið upphófst ein dýpsta og
bráðasta fjármálakreppa sem orðið hefur á Vesturlöndum.“
Beita verður öllum tiltækum ráðum til að ná vaxtastiginu niður hér á landi og fá hjól atvinnulífsins til að snúast, en þau gera það ekki við núverandi aðstæður. Þetta er mat Jóns Steindórs Valdimarssonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins á vef Viðskiptablaðsins í dag.
Lesa meira
Samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem nú hefur verið lagt fram á þinginu, verður allur virðisaukaskattur endurgreiddur af vinnu á byggingastað við viðhald eða nýbyggingu íbúðahúsnæðis.
Lesa meira
Stefán Hrafn Sigfússon, verðlaunahafi í keppninni um Köku ársins 2009 afhenti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, eintak af kökunni í morgun. Jóhann Felixson, formaður Landssambands bakarameistara, betur þekktur sem bakarameistarinn Jói Fel, óskaði forsætisráðherra velfarnaðar í starfi. Kakan var síðan borin fram á ríkisstjórnarfundi.
Steypustöðin, sem er í eigu Glitnis og þar með ríkisins, kaupir sement frá Álaborg í Danmörku í stað þess að spara gjaldeyri og eiga viðskipti við Sementsverksmiðjuna á Akranesi. Þetta kom fram í frétt Stöðvar 2 á föstudag. Samtök iðnaðarins óttast danska einokun á sementsmarkaðnum hér á landi.
Lesa meira