Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

CE vottun

30.3.2009 Gæðastjórnun og rekstur : ÍAV fá leyfi fyrir CE vottun

Íslenskir aðalverktakar hafa fengið heimild til að CE merkja steinefni sem framleitt er fyrir steinsteypu. Það er fyrsta fyrirtækið innan SI sem hlýtur vottunina. Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri ÍAV, segir að henni fylgi aukið eftirlit og auðveldara sé að bregðast við ef eitthvað fari úrskeiðis.
 
HönnunarMars

26.3.2009 Þjónustuiðnaður : Bærinn lifnar við á HönnunarMars

Yfir 150 viðburðir hjá ýmsum íslenskum hönnuðum verða í boði í tengslum við HönnunarMars, árlega hönnunardaga sem Hönnunarmiðstöðin stendur fyrir í fyrsta sinn.Viðburðirnir eru afar fjölbreyttir og er ætlað að vekja athygli almennings, fjölmiðla og stjórnvalda á íslenskum hönnuðum og hönnun þeirra.
 
Rannsóknir á sviði Evrópufræða

26.3.2009 Menntun og fræðsla : Evrópurannsóknir styrktar af SI og Alþjóðamálastofnun

Tvær ungar konur hlutu styrki til lokaverkefna í meistaranámi í Evrópufræðum sem Alþjóðamálastofnun og Samtök iðnaðarins afhentu í gær. Styrkirnir veita nemendum tækifæri til að tengja rannsóknarverkefni sín atvinnulífinu þannig að báðir aðilar hagnist.
 
Vinna við vegagerð

26.3.2009 Mannvirkjagerð : Útboð í tvöföldun Suðurlandsvegar hefst á árinu

Samgönguráðherra og Vegamálastjóri hafa samþykkt tvöföldun Suðurlandsvegar. Einum milljarði er ráðstafað í verkið á þessu ári. Fyrsti hluti þess, kaflinn milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar, verður boðinn út síðar á árinu. Heildarkostnaður er áætlaður í kringum 15,9 milljarðar króna.
 
Mannvirkjagerd2

26.3.2009 Mannvirkjagerð : Varar við að lægstu tilboð séu óraunhæf

Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks og stjórnarmaður Samtaka iðnaðarins, varar við því að opinberir aðilar taki alltaf lægstu tilboðum verktaka. Fjöldi fyrirtækja bjóði í verk án þess að hafa bolmagn til þess og fari gjarnan á hausinn. Kostnaður verkkaupa við að ljúka verkinu verði því mun meiri en áætlað var.
 
Undirritun samningsins

25.3.2009 Orku- og umhverfismál : Ný braut við RES Orkuskólann

Landsvirkjun og RES Orkuskóli hafa undirritað samstarfssamning á sviði orkurannsókna og kennslu til tveggja ára. Samningurinn snýr meðal annars að uppbyggingu á vatnsaflsbraut við skólann.
 
Gulleggið afhent

24.3.2009 Sprotafyrirtæki : Controlant hlaut Gulleggið 2009

Viðskiptahugmynd Controlant sem byggir á ferilvöktun á ferskum matvælum varð hlutskörpast í frumkvöðlakeppni Innovit 21. mars síðastliðinn og hlaut þar með Gulleggið. Alls bárust yfir 100 hugmyndir í keppnina en tíu kepptu til úrslita.

 
Einbýlishús

24.3.2009 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts : Virðisaukaskattur endurgreiddur að fullu

Alþingi samþykkti nýverið lög um að endurgreiða megi allan virðisaukaskatt (alls 100%) af vinnu á byggingarstað, bæði við nýsmíði og viðhald á íbúðarhúsnæði og sumarhúsum. Nýju lögin gilda til 1. janúar 2011.
 
Mannvirkjagerd3

24.3.2009 Gæðastjórnun og rekstur : Krafa um gæðatryggingu í opinberum útboðum

Margir af opinberum verkkaupum gera kröfu til verktaka um að sýna fram á hæfni sína til stjórnunar verklegra framkvæmda við útboð áður en gengið er til samninga um verk. Ótrúverðugum bjóðendum þarf að vera hægt að vísa frá á tilboðsstigi. Gæðatrygging er að verða nauðsynleg fyrir verktaka sem hafa hug á að taka að sér framkvæmdir fyrir opinbera aðila.

 
Sigmundur S. Jónsson

23.3.2009 Menntun og fræðsla : Iðn- og tæknimenntuðum þarf að fjölga

Draga mun úr þörf evrópskra fyrirtækja fyrir iðnmenntað starfsfólk til 2015. Á sama tíma mun þörfin aukast fyrir tæknimenntað háskólafólk. Þetta kemur fram í skýrslu CEDEFOP (Evrópsku starfsmenntastofnuninni) frá því í fyrra.
 
Sigurvegari Kornax 2009

23.3.2009 Matvælaiðnaður : Orri Arnórsson sigraði nemakeppni Kornax 2009

Orri Arnórsson hjá Bakstri og veislu fór með sigur af hólmi í nemakeppni Kornax í bakstri sem fram fór í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi 20. mars síðastliðinn. Í öðru sæti varð Sævar Ingi Rúnarsson hjá Bakaríinu við brúnna og Axel Þorsteinsson hjá Kökuhorninu hafnaði í því þriðja.
 
Felag_islenskra_gullsmida

23.3.2009 Þjónustuiðnaður : Ný stjórn Félags íslenskra gullsmiða

Reynir Már Ásgeirsson var kjörinn nýr formaður Félags íslenskra gullsmiða á aðalfundi félagsins fyrir skömmu. Haukur Valdimarsson fráfarandi formaður lét af störfum.

 
Hörður Arnarson

23.3.2009 Málmiðnaður : Hörður hættir sem forstjóri Marel

Hörður Árnason forstjóri Marel til tíu ára lætur af störfum hjá fyrirtækinu og við starfi hans tekur Theo Hoen sem gegnt hefur forstjórastöðu Stork Food Systems sem Marel keypti á síðasta ári. Stjórn Marel Food systems hefur komist að samkomulagi um breytingarnar.

 
Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík

20.3.2009 Stóriðja : Afstaða til Helguvíkur jákvæðari

Afstaða samfélagsins til framkvæmda í Helguvík er mun jákvæðari en áður samkvæmt því sem Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir í Viðskiptablaðinu. Mikill almennur áhugi sé á að verkefnið nái fram að ganga, þó gagnrýnisraddir heyrist líka.
 
Mannvirkjagerd4

20.3.2009 Mannvirkjagerð : Umræða um óseldar og tómar íbúðir villandi

Fjöldi óseldra og tómra nýrra íbúða í Hafnarfirði er 444, þar af eru 228 fokheldar eða rúmlega það, en 216 fullbúnar. Margar fullbúnu íbúðanna eru í leigu, en teljast með þar sem þær eru á söluskrá. Þetta eru niðurstöður óformlegrar talningar formanns Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði.
 
Eplica

20.3.2009 Upplýsingatækni : Hugsmiðjan gegn svikum og spillingu

Hugbúnaðarfyrirtækið Hugsmiðjan hefur gert samning við evrópsk samtök á heilbrigðissviði um ráðgjöf, hönnun og forritun nýs vefseturs sem vinnur gegn svikum og spillingu í Evrópu. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir samninginn fela í sér mikla viðurkenningu á íslensku hugviti.

 
Seðlabanki Íslands

19.3.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Stjórn SI lýsir miklum vonbrigðum með stýrivaxtalækkun

Stjórn Samtaka iðnaðarins lýsir miklum vonbrigðum með að Seðlabanki Íslands skuli ekki ganga miklu lengra í lækkun stýrivaxta en ákveðið var í dag. Allar forsendur eru til þess að lækka vexti hraustlega. Fyrirtækin eru að kikna undan ofurvöxtunum og vaxtamunur milli Íslands og samkeppnislandanna er orðinn fáránlega mikill.
 
Jón Steindór Valdimarsson

19.3.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Mikil vonbrigði með 1% stýrivaxtalækkun

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, segir 1% stýrivaxtalækkun alltof litla. Mikil vonbrigði séu að Seðlabankinn skuli ekki hafa tekið stærra skref. Bankinn tilkynnti í morgun um lækkun stýrivaxta úr 18% í 17%.
 
Prósentumerki

18.3.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Mikilvæg greiðsluaðlögun samþykkt á Alþingi

Alþingi hefur samþykkt mikilvæga greiðsluaðlögun vegna greiðslu vörugjalda og aðflutningsgjalda í tolli. Samkvæmt lögunum er greiðslum ýmist skipt í tvennt eða þrennt.
 
Menntatorg

17.3.2009 Menntun og fræðsla : Menntatorg.is - nám og ráðgjöf fyrir atvinnulausa

Vefsetrið www.menntatorg.is er samastaður gagnlegra upplýsinga og ráðgjafar fyrir atvinnulausa. Þar má finna námsúrræði, upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf og um raunfærnimat.
 
sedlabanki_logo

17.3.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Vextir: Nú reynir á nýja áhöfn Seðlabankans

Ógnarháa vexti verður að kýla niður. Seðlabankastjórinn og peningastefnunefndin verða að sýna kjark og framsýni á fimmtudaginn.
 
Flutningabill

17.3.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Ísland fær undanþágu frá hvíldartíma ökumanna

Fastanefnd EFTA ríkjanna hefur samþykkt að Ísland fái undanþágu frá reglum Evrópusambandsins um akstur og hvíld atvinnubílstjóra. Sérstaða Íslands í samgöngumálum með tilliti til vegakerfis og aðstæðna atvinnubílstjóra til hvíldar þykir mjög frábrugðin því sem gerist á meginlandi Evrópu. Þá getur íslenskt veðurfar sett strik í reikninginn. Þetta kemur fram á vef SA.
 
Mannvirkjagerd4

16.3.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Starfsfólki stærstu fyrirtækja fækkaði um 3.574

Samtök iðnaðarins hafa gert könnun meðal stærstu félagsmanna sinna varðandi stöðu og horfur. Fram kom að uppsögnum síðustu mánaða sé að mestu lokið og starfsfólki hafi fækkað um 24% frá árunum 2007/2008, eða úr 14.911 í 11.337. Svör fengust frá 165 fyrirtækjum.
 
Arni

16.3.2009 Mannvirkjagerð : SI fagna 100% endurgreiðslu VSK á byggingarstað

Alþingi samþykkti nýverið lög um 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af allri vinnu á byggingarstað íbúðarhúsnæðis. Lögin eiga við nýframkvæmdir og viðhald eldra íbúðarhúsnæðis auk vinnu við nýbyggingar, viðhald og viðbætur sumarbústaða. Þá er nýlunda að allar fasteignir sveitarfélaga falla undir lögin. Áður var endurgreiðslan 60%, en nýju lögin gilda til 1. janúar 2011.

 
Mentis Cura

13.3.2009 Sprotafyrirtæki : Mentis Cura hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2009

Íslenska fyrirtækið Mentis Cura hlaut í gær Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs fyrir árið 2009. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun aðferða til greiningar á heilabilunum með heilaritum og nútímamyndgreiningartækni. Mentis Cura styður við greiningu Alzheimer sjúkdómsins og ofvirkni í börnum með viðamiklum rannsóknum og þróun reiknirita.
 
Kuðungurinn

13.3.2009 Orku- og umhverfismál : Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum til Kuðungsins, umhverfisviðurkenningar ráðuneytisins. Tilnefningarnar skulu snúa að fyrirtækjum eða stofnunum sem þykja verðug til að hljóta viðurkenninguna vegna verka sinna á síðasta ári.
 
Námstorg fyrir atvinnulausa

13.3.2009 Menntun og fræðsla : Örnámskeið vinsælust á Menntatorgi

Svokölluð örnámskeið voru vinsælust á Menntatorgi sem haldið var á vegum samstarfshóps um menntunarúrræði síðastliðinn föstudag. Boðið var upp á örnámskeið í parketlögnum, suðuþjálfun, raunfærnimati og kjötskurði. Námskeiðin eru um 45 mínútur hvert og voru afar vel sótt að sögn Hildar Elínar Vignis, framkvæmdastjóra Iðunnar.
 
Asgeri_Magnusson

12.3.2009 Mannvirkjagerð : Byggingariðnaður má ekki stöðvast

Stjórnvöld verða að líta til þess að byggingariðnaður og mannvirkjagerð eru einar af undirstöðugreinum atvinnulífsins. Mikill samdráttur í greinunum hefur gríðarleg margfeldisáhrif og leiðir til enn frekari samdráttar í efnahagslífinu og minni hagvaxtar. Þetta segir Ásgeir Magnússon verkefnastjóri byggingarsviðs SI.
 
Idnting_logo

11.3.2009 Forsíðufréttir : Af óbærilegum léttleika þjóðargjaldþrots

Þórólfur Matthíasson, prófessor við HÍ, hefur ritað grein í tilefni af ummælum sem Helgi Magnússon, formaður SI, lét falla í ræðu sinni á Iðnþingi þann 5. mars sl.
 
mm_logo

11.3.2009 Mannvirkjagerð : Eftirsjá að góðum félögum

Það eru vissulega vonbrigði að Múrarameistarafélag Reykjavíkur hefur ákveðið að segja sig úr SI. Því miður óttast ég að úrsögnin sé hvorki SI né Múrarameistarafélaginu til heilla, segir Jón Steindór, framkvæmdastjóri SI.
 
GV Gröfur - D-vottun

10.3.2009 Gæðastjórnun og rekstur : GV gröfur hljóta D-vottun

GV Gröfur hafa staðist úttekt á fyrsta þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið D-vottun. Guðmundur V. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að margir viðskiptavinanna, sérstaklega opinberir aðilar, séu farnir að gera kröfur um gæðakerfi.
 
Idntingslogo

10.3.2009 Forsíðufréttir : Stöðugleiki forsenda vaxtar og verðmætasköpunar

Án stöðugleika er tómt mál að tala um heilbrigðan vöxt og sköpun verðmæta, en án verðmæta getum við ekki tryggt velsæld þegnanna. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, í riti Iðnþings 2009, Vöxtur og verðmæti – Mótum eigin framtíð.

 
Samstarf

10.3.2009 Menntun og fræðsla : Námsheimsóknir - tækifæri til kynningar og tengslamyndunar í Evrópu

Á hverju ári gefst sex til sjö Íslendingum kostur á að fara í námsferð til Evrópu og er sérstök áhersla lögð á að aðilar vinnumarkaðarins nýti sér ferðirnar. Námsheimsóknirnar hafa verið sameinaðar og eru nú hluti af Menntaáætlun ESB. Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2009.
 
Asgeri_Magnusson

9.3.2009 Mannvirkjagerð : Öflug verktakastarfsemi ein undirstaða uppbyggingar í landinu

Tryggja þarf að þeim árangri sem áunnist hefur í uppbyggingu öflugrar verktakastarfsemi hér á landi verði ekki kastað fyrir róða. Ásgeir Magnússon, verkefnastjóri byggingarsviðs SI, segir afar mikilvægt að ráða yfir öflugri verktakastarfsemi til að takast á við uppbyggingu í landinu.
 

9.3.2009 Ársskýrslur : Ársskýrsla SI 2008

Greinar um ýmislegt sem snertir iðnaðinn árið 2008.

Ársskýrsla SI 2008 (PDF snið).arsskyrsla_forsida



 
2009-02-ESB-almenningur-vidraedur

8.3.2009 Alþjóðlegt samstarf : Stuðningur við aðildarviðræður í hámarki

Nálægt þrír af hverjum fjórum Íslendingum eru hlynntir því að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Stuðningurinn við viðræður hefur ekki verið meiri í sex ár. Á hinn bóginn eru þeir nú fleiri sem segjast andvígir aðild en þeir sem segjast hlynntir aðild að ESB.
 
Tordur_200

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Evrópusambandið ekki valkostur - heldur nauðsyn

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest, sagði á Iðnþingi í dag að aðild okkar að Evrópusambandinu væri ekki valkostur heldur brýn nauðsyn.
 
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Brýnt að efla iðnað í landinu

Á Iðnþingi í dag lagði Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, áherslu á mikilvægi þess að Íslendingar nýttu auðlindir lands og þjóðar.
 
Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Nýsköpun og stóriðja fara vel saman

Rannveig Rist, forstjóri Ísal í Straumsvík, segir það algeran misskilning að nýsköpun í atvinnulífinu og stóriðja fari ekki saman. Þetta kom fram í erindi hennar á Iðnþingi í dag.
 
Ólafur Ísleifsson lektor við Háskólann í Reykajvík

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Efla þarf stoðir atvinnustarfsemi í landinu

Íslenskt samfélag á nú allt undir því að efldar verði stoðir atvinnustarfseminnar í landinu. Þetta kom fram í erindi Ólafs Ísleifsson hagfræðings á Iðnþingi.
 
Helgi Magnússon

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Vaxtalækkun er brýnasta forgangsmálið

Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði í ræðu sinni á Iðnþingi í dag að brýnasta forgangsatriðið núna væri að lækka vexti. „Núverandi vaxtastig er að kæfa atvinnulíf og heimili í landinu“ sagði Helgi og bætti við að verðbólga yrði að lækka hratt.
 

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Ályktun Iðnþings 2009

Ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins 5. mars 2009
 
Helgi Magnússon

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Niðurstaða úr kjöri til stjórnar og ráðgjafaráðs Samtaka iðnaðarins

Niðurstaða úr kjöri til stjórnar og ráðgjafaráðs Samtaka iðnaðarins liggja fyrir en kosningaþátttaka var 74,07%
 

5.3.2009 Efni tengt Iðnþingi 2009 : Iðnþing 2009 - Upptaka frá Iðnþingi

bein_utsendingIðnþing Samtaka iðnaðarins var sent út beint á Grand Hóteli Reykjavík. Með því að smella á hnappinn hér til hliðar má sjá upptöku af beinni útsendingu frá þinginu.
 
Íslenska ánægjuvogin 2009

4.3.2009 Gæðastjórnun og rekstur : Sparisjóðirnir vinsælastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni

Samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar eru viðskiptavinir Sparisjóðanna ánægðastir en kynnt var um niðurstöður í dag. Sparisjóðurinn var einnig í fyrsta sæti í flokki banka og sparisjóða, en Tryggingamiðstöðin var hlutskörpust í flokki tryggingarfélaga, Hitaveita Suðurnesja í flokki rafveitna og ÁTVR í flokki smávöruverslana.
 
stjórn MIH 2009

4.3.2009 Mannvirkjagerð : Ný stjórn MIH kjörin á aðalfundi

Á aðalfundi Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði var kjörin ný stjórn en fundurinn fór fram 13. febrúar síðastliðinn. Á fundinum flutti Páll Skúlason fyrrverandi rektor Háskóla Íslands fyrirlestur og minnti menn á að líta björtum augum á lífið.
 
Hjalparsnudur

4.3.2009 Matvælaiðnaður : Hjálparsnúðar fyrir Mæðrastyrksnefnd

Landssamband bakarameistara styður Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur með sölu á Hjálparsnúðnum dagana 5.-8. mars í bakaríum um land allt. Af andvirði hvers snúðs renna 25 krónur til nefndarinnar.
 
Jon_St._og_Bjarni_Thor

3.3.2009 Menntun og fræðsla : Framtaki veittur vinnustaðakennslustyrkur

Véla- og skipaþjónustan Framtak hlaut í gær tæplega fimm milljóna króna styrk til að kenna 13 nemum í rennismíði. Bjarni Thoroddsen, framkvæmdastjóri Framtaks, tók við styrknum úr hendi Jóns Steindórs Valdimarssonar, framkvæmdastjóra SI.
 
Idntingslogo

2.3.2009 Forsíðufréttir : Iðnþing í beinni útsendingu í fyrsta sinn

Iðnþing Samtaka iðnaðarins sem fram fer á Grand Hóteli Reykjavík í dag verður í beinni útsendingu á netinu. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt verður að fylgjast með opinni dagskrá þingsins beint hér á vef Samtakanna. Iðnþingið stendur yfir frá klukkan 13:00 til 16:00.
 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.