Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda rannsóknir og þróun. Einnig verður sagt frá þjónustu Enterprise Europe Network við sprotafyrirtæki.
Framundan eru niðurskurðartímar. En framundan eru líka óhjákvæmilega tímar mikillar innlendrar framleiðslu sem byggir m.a. á góðri menntun. Þetta tvennt þarf að ríma saman. Við þessar aðstæður má ekki beita flötum niðurskurði í menntamálum, segir framkvæmdastjóri SI.
Fyrstu húðvörurnar með vaxtarþætti sem framleiddur er í Grænni smiðju ORF Líftækni í Grindavík verða brátt settar á markað í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjum samningi ORF Líftækni og bandaríska húðvörufyrirtækisins Ronald L. Moy, MD. Inc.
Fræðslufundur um uppbyggingu og árangur af frumkvöðlakennslu í skólum í Finnlandi verður haldinn á 6. hæð í Borgartúni 35, þriðjudaginn 16. júní kl. 09.00–10.30. Jouko Havunen frá Háskólanum í Vaasa í Finnlandi segir frá árangri þessa verkefnis sem ráðist var í m.a. sem viðbrögð við efnahagskreppunni sem gekk yfir Finnland árið 1990.
Launafl ehf. hefur staðist úttekt á fyrsta þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið D-vottun. Magnús Helgason framkvæmdastjóri fyrirtækisins tók við vottuninni.
Árið 2007 tóku gildi lög sem fólu í sér að öll matvæli skyldu flutt í nýtt 7% virðisaukaskattþrep. Áður voru matvæli ýmist í 14% eða 24,5% virðisaukaskattþrepi.Þar með var það stóra skref stigið að öll matvæli, hverju nafni sem nefnast, skyldu höfð í sama þrepi virðisaukaskattsins. Eina undantekningin frá þessu er að áfengir drykkir bera enn 24,5% virðisaukaskatt.
Lesa meiraFélagsfundur SI með ráðgjafaráði, formönnum og stjórnum allra aðildarfélaga fór fram á Grand hóteli í gær. Umfjöllunarefni fundarins var iðnaðurinn og Evrópusambandið. Tilgangurinn var að kynna fyrir félagsmönnum Evrópuverkefni SI og virkja þá til þátttöku í því starfi sem framundan er við stefnumótun og nánari skilgreiningu hagsmuna iðnaðarins vegna umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Lesa meiraAlcan á Íslandi hf. hlaut í gær viðurkenningu frá Vátryggingafélagi Íslands hf. fyrir góðan árangur í öryggismálum. Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, afhenti Rannveigu Rist forstjóra Alcan á Íslandi viðurkenninguna í Straumsvík í dag. Þetta kemur fram á vef Alcan.
IÐAN fræðslusetur hefur tekið að sér í umboði Menntamálaráðuneytisins að annast undirbúning, framkvæmd og úthlutun styrkja frá Norrænu ráðherranefndinni til nemenda í iðn- og starfsnámi. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, í júní og október. Sækja þarf um fyrir 15. júní 2009 og seinni umsóknarfrestur er 15. september.