Forsíðufréttir

Íslenski fáninn

16.7.2009 Alþjóðlegt samstarf : Kaflaskil í Evrópumálum

Alþingi hefur samþykkt að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þar með eru orðin kaflaskil í Evrópumálum. Samtök iðnaðarins hafa lengi haft þá stefnu að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu. Lesa meira
 
Tómas Már Sigurðsson

10.7.2009 Menntun og fræðsla : Nú er þörf fyrir verk- og tæknimenntun

Samtök iðnaðarins hafa varað við flötum niðurskurði í iðnmenntun og verk- og tæknifræði. Framundan eru tímar mikillar innlendrar framleiðslu en grunnur að henni er einmitt menntun og þjálfun í verk- og tæknigreinum. Við þessar aðstæður þurfa stjórnvöld að hafa skýra sýn á hvaða menntun skilar þjóðarbúinu mest og hraðast aukinni verðmætaaukningu.  Til að varpa frekara ljósi á málið var leitað álits hjá nokkrum forsvarsmönnum fyrirtækja í Samtökum iðnaðarins.

Lesa meira

 
Helgi Magnússon

10.7.2009 Alþjóðlegt samstarf : Samstaða er þjóðarnauðsyn

“Ekki verður unað við að beðið verði lengur með að taka af skarið - biðin og frestun á því að taka á málinu er orðin lengri en góðu hófi gegnir. Tíminn skiptir höfuðmáli,” segir í nýlegri grein sem Helgi Magnússon, formaður SI, skrifaði ásamt öðrum í Morgunblaðið um Evrópumálin.

Lesa meira

 
Jón Steindór Valdimarsson

9.7.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Óvissan er versti óvinurinn

Eitt þungbærasta og erfiðasta mál síðari tíma er án nokkurs vafa hvernig greiða skuli úr Icesave-deilunni. Verkefnið er fyrst og fremst að tryggja að sú lausn sem fæst sé frekar til þess fallin að við náum vopnum okkar að nýju frekar en að draga það á langinn. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI í grein í Morgunblaðinu í gær. Lesa meira
 
logo SI

9.7.2009 Markaðsmál : Verðlaunasjóður iðnaðarins auglýsir eftir ábendingum um verðlaunahafa árið 2009

Stjórn Verðlaunasjóðs iðnaðarins hefur ákveðið leita eftir ábendingum verðugan um verðlaunaþega sjóðsins árið 2009. Verðlaunin sem verða veitt á haustdögum eru auk peningaupphæðar, sérstakur verðlaunagripur og innrammað verðlaunaskjal. Lesa meira
 
Bjarni Már veitir bikarnum viðtöku

6.7.2009 Fréttir af SI : Hjólað í vinnuna

Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI sigraði í átakinu "Hjólað í vinnuna". Hann hjólaði tæplega 400 km á þeim 14 dögum sem átakið stóð yfir. Að þessu sinni var skipt í tvö lið sem Bjarni Már og Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfissviðs leiddu.  

Lesa meira
 
Vinna við vegagerð

3.7.2009 Mannvirkjagerð : Breyting á Hringvegi í Húnavatnssýslu leiðir til 60 nýrra ársverka

Einkaframkvæmd þarf ekki nauðsynlega vera risaframkvæmd. Smærri viðfangefni geta líka leitað í þann farveg. Breyting á Hringvegi í Húnavatnssýslu leiðir til 60 nýrra ársverka.

Lesa meira

 
Mentor ehf.

2.7.2009 Upplýsingatækni : Mentor í alla grunnskóla í Örebro

Mentor skrifaði í vikunni undir samning við Örebro um að innleiða InfoMentor í alla grunnskóla sveitarfélagsins. Um er að ræða 47 grunnskóla með rúmlega 15.000 nemendum og 1.000 kennurum. Þetta er stærsti samningur sem Mentor hefur gert en Örebro er sjöunda stærsta sveitarfélag Svíþjóðar. Lesa meira
 
Frank Ú. Michelsen

1.7.2009 Þjónustuiðnaður : Úrsmiðir í 100 ár

Fyrir 100 árum síðan eða árið 1909 stofnaði J. Frank Michelsen úrsmíðameistari fyrirtækið F. Michelsen úr og gullsmíði. Einn sona hans, Franch, lærði hjá föður sínum og hélt síðan til frekari náms í Kaupmannahöfn. Það er óhætt að segja að hefðinni hafi verið viðhaldið því sonur og sonarsonur hans lærðu báðir iðnina.    Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica