Forsíðufréttir

diskur

31.8.2009 Matvælaiðnaður : Breytingar á vörugjaldslögum taka gildi á morgun 1. september

morgun taka gildi breytingar á viðauka með lögum um vörugjald sem eru hluti af ráðstöfunum í ríkisfjármálum. Breytingarnar fela í sér að upphæð vörugjalda tvöfaldast á þeim matvælum sem borið hafa gjaldið og nýtt gjald er tekið upp á aðrar vörur. Framleiðendur eru hvattir til að kynna sér breytingarnar vel.

Lesa meira
 
Mannvirkjagerd3

31.8.2009 Mannvirkjagerð : Fátt eykur verktökum bjartsýni - hraða verður ákvörðunum um arðbær verkefni

Félagsmenn í Mannvirki félagi verktaka mættu til félagsfundar í dag. Verkefnastaða flestra fyrirtækja er afleit og fátt vitað um verkefni vetrarins. Áform eru uppi um margvíslegar framkvæmdir, bæði á vegum einkaaðila og hins opinbera en nánast ekkert í hendi. Engar ákvarðanir eru teknar.

Lesa meira

 
Opni háskólinn

31.8.2009 Fréttir af SI : Diplómanám í stjórnun og rekstri fyrirtækja

Opni háskólinn býður félagsmönnum Samtaka iðnaðarins 10% afslátt af diplómanámi í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Um er að ræða hagnýtt 36 ECTS eininga nám samhliða vinnu. Diplómanámið í stjórnun og rekstri fyrirtækja kynnir fræðilegar og hagnýtar aðferðir sem notaðar eru við rekstur og stjórnun lítilla til meðalstórra fyrirtækja. 

Lesa meira
 
Morgunverðarfundur um eldsneyti framtíðar

28.8.2009 Orku- og umhverfismál : Öld tvinnbíla er hafin

,,Öld tvinnbíla er hafin“ sagði Paul Wuebben á morgunverðarfundi hjá Samtökum iðnaðarins um nýjungar í farartækjum. Paul Wuebben starfar sem yfirmaður nýrra orkugjafa hjá South Coast Air Quality Management District í Kaliforníu. Á fundinum fjallaði Paul einkum um möguleika tvinnbíla og rafbíla til að taka við af hefðbundnum dísilbifreiðum. Lesa meira
 
Paul Wuebben

25.8.2009 Orku- og umhverfismál : Eldsneyti fyrir samgöngur framtíðar

Samtök iðnaðarins boða til morgunverðarfundar í Borgartúni 35, 6. hæð fimmtudaginn 27. ágúst kl. 8.30-10.00. Fyrirlesari er Paul Wuebben sérfræðingur í orkumálum samgangna.

Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

21.8.2009 Fréttir af SI : Skýr skilaboð til erlendra fjárfesta

Fátt er brýnna um þessar mundir en að efla og styrkja hæfni atvinnulífsins til þess að framleiða og selja vörur og þjónustu til þess að afla gjaldeyris. Augljóst er að til þess þurfum við erlent fjármagn í formi lána en ekki síður í formi eigin fjár í atvinnurekstri. Forsenda þessa er að Íslandi takist að ávinna sér traust lánveitenda og fjárfesta, segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI. Lesa meira
 
Icelandic Gaming Industry

21.8.2009 Upplýsingatækni : Engin kreppa í hugarfari leikjaframleiðenda

Samtök iðnaðarins standa ásamt hópi fyrirtækja í leikjaiðnaði fyrir vinnufundum um stefnumótun og framtíðarsýn í greininni. Unnið er samkvæmt stefnumótunaraðferðum sem SI hafa þróað og nú liggja fyrir meginlínur í sameiginlegri framtíðarsýn, forsendum og áhersluverkefnum greinarinnar. Í framhaldinu er stefnt að stofnun Samtaka leikjaframleiðenda (IGI – Icelandic Gaming Industry) Lesa meira
 
Bygg

20.8.2009 Líftækni : Skemmdarverk unninn á tilraunareit ORF Líftækni

Skemmdarverk voru unnin á tilraunareit fyrirtækisins ORF Líftækni í Gunnarsholti í gær. Um tilraunaræktun á erfðabreyttu byggi var að ræða og er það allt ónýtt. Engin uppskera mun því fást úr reitnum í haust eins áætlanir gerðu ráð fyrir.

Lesa meira

 
EVE-online

18.8.2009 Upplýsingatækni : CCP kynnir nýjan tölvuleik

CCP kynnti í dag nýjan tölvuleik á tölvuleikjaráðstefnunni GDC Europe í Köln. Leikurinn sem nefnist Dust 514 verður spilaður á leikjatölvur en ekki hefðbundnar borðtölvur eins og EVE online leikurinn. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is í dag.

Lesa meira

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica