Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

Jón Steindór Valdimarsson

30.9.2009 Fréttir af SI : Skortir vilja til verka

Vilja- og getuleysi ríkisstjórnarinnar til að örva atvinnulífið er óskiljanlegt, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, síðasta útspil umhverfisráðherra vegna framkvæmda á Suðurnesjum er hrópandi dæmi um þetta.

 
Hvatningarráðstefna Stjórnvísi

30.9.2009 Nýsköpun og þróun : Hvatningarráðstefna Stjórnvísi

Hvatningarráðstefna Stjórnvísi verður haldin á Grand hótel 2. október, kl. 8.30-11.30. Markmið ráðstefnunnar er að hvetja stjórnendur til djörfungar og bjartsýni. Stjórnendur og aðrir áhugasamir um stjórnun og rekstur fyrirtækja eru velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
 
Eyjolfur-bergthora-katrin

28.9.2009 Fréttir af SI : Farmers Market og Íslensk hollusta hlutu viðurkenningu úr Verðlaunasjóði iðnaðarins

Tvær viðurkenningar úr Verðlaunasjóði iðnaðarins voru veittar við hátíðlega athöfn í dag. Það voru Eyjólfur Friðgeirsson, líffræðingur í Íslensk hollusta og Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður í Farmers Market sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra afhenti hvorum um sig eina milljón króna, verðlaunagrip og viðurkenningarskjal.

 
Hellisheiðarvirkjun

27.9.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Stjórnvöld steyta á skeri

Samtök iðnaðarins gagnrýna enn harðlega vinnubrögð stjórnvalda og segja að togstreitan innan ríkisstjórnarinnar um erlenda fjárfesta og beislun og nýtingu orkuauðlinda til uppbyggingar atvinnustarfsemi sé á góðri leið með að valda þjóðinni miklum búsifjum. Þá vara þau við hugmyndum um orku-, umhverfis- og auðlindaskattar.
 
Umbætur í virðiskeðju matvæla

25.9.2009 Matvælaiðnaður : Markvissar aðgerðir geta dregið verulega úr rýrnun matvæla

Árleg velta í kjötiðnaði á Íslandi er áætluð 20-25 milljarðar króna. Talið er að þar af tapist a.m.k. 5% eða 1000-1250 milljónir vegna rýrnunar. Hægt er að spara stórar fjárhæðir ef tekst að draga úr þessari rýrnun. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi í gær um umbætur í virðiskeðju matvæla.

 
Seðlabanki Íslands

24.9.2009 Fréttir af SI : Seðlabankinn herðir snöruna

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segist hættur að skilja vaxtastefnu Seðlabanka Íslands. „Við erum búin að segja mánuðum saman að það sé ekki hægt að búa við þetta vaxtastig. Með þessu er snaran hert hægt að rólega að fyrirtækjum og heimilum í landinu."Þetta kemur fram í viðtali við hann á visir.is í dag.
 
Stóriðja

24.9.2009 Stóriðja : Stefnt að því að ljúka sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum næsta vor

Stefnt er að því að ljúka næsta vor sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Alcoa, Þeistareykjum ehf., Landsvirkjun og Landsneti.

 
LS Retail

22.9.2009 Upplýsingatækni : Ein verðmætasta hugbúnaðarsala í sögu Íslands

Microsoft hefur keypt íslensku hugbúnaðarlausnina LS Retail AX sem er byggð ofan á Microsoft Dynamics AX viðskiptalausnirnar. Það er íslenska fyrirtækið LS Retail ehf. sem hefur þróað lausnina sem Microsoft fær nú eignarrétt á og er þetta er ein verðmætasta hugbúnaðarsala í sögu Íslands.
 
Vilmundur Jósefsson á Iðnþingi 2003

22.9.2009 Fréttir af SI : Vilmundur Jósefsson formaður SA

Vilmundur Jósefsson hefur tekið við sem formaður Samtaka atvinnulífsins, en Þór Sigfússon, sem verið hefur í leyfi frá formennsku í samtökunum frá 9. júlí, hefur ákveðið að víkja formlega úr sæti formanns SA.

 
CE merkingar

22.9.2009 Staðlamál og CE-merkingar : Promens Tempra hlýtur leyfi til CE merkinga

Promens Tempra hefur hlotið leyfi til að CE merkja byggingavöruframleiðslu sína. Fyrirtækið uppfyllir nú kröfur staðalsins ÍST EN 13163:2008 "Varmaeinangrun fyrir byggingar - Verksmiðjuframleiddar vörur úr þöndu polystyrene (EPS) - Kröfur".

 
Nýbyggingar

18.9.2009 Fréttir af SI : SI bíða eftir svörum frá Íbúðalánasjóði

Samtökin sendu í sumar bréf til Íbúðalánasjóðs þar sem þau óskuðu eftir endurskoðun á reglum um bankaábyrgð verktaka í byggingariðnaði. Erindinu hefur ekki verið svarað.

 
logo SI

18.9.2009 Fréttir af SI : Vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni

Samtök iðnðarins gagnrýna harðlega vinnubrögð stjórnvalda í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu iðnaðar sem reiðir sig á nýtingu orkuauðlinda. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð.
 
M6

18.9.2009 Forsíðufréttir : Kynningarfundur um umbætur í virðiskeðju matvæla

Hvað er hægt að gera til að draga úr sóun við framleiðslu og dreifingu matvæla? Hverju skilar bætt meðferð og bætt upplýsingaflæði milli aðila í virðiskeðjunni? Opinn kynningarfundur verður á Grand hótel, fimmtudaginn 24. September, kl. 15.00-17.00.
 
Endurreisn og sóknarfæri

18.9.2009 Nýsköpun og þróun : Morgunfundur um samkeppnishæfni Íslands

20/20 Sóknaráætlun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands standa fyrir morgunfundi um samkeppnishæfni föstudaginn 25. september næstkomandi undir yfirskriftinni Endurreisn: Sóknarfæri og samkeppnishæfni.
 
Teknís í Garðabæ

17.9.2009 Málmiðnaður : Teknís og Leifur Breiðfjörð listamaður í samstarfi

Listamaðurinn Leifur Breiðfjörð vinnur að miklu málm- og glerlista­verki sem verður staðsett í St. Giles dóm­kirkjunni í Edinborg. Málm­iðnaðar­fyrir­tækið Teknís í Garðabæ vinnur að gerð verksins með honum.

 
Kjörís 40 ára

17.9.2009 Matvælaiðnaður : Kjörís 40 ára

Kjörís fagnaði fjörtíu ára afmæli sínu með mikilli afmælishátíð í Hvera­gerði laugardaginn 29. ágúst. Að sögn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, markaðsstjóra Kjöríss komu á bilinu 13-15 þúsund manns og gæddu sér á eins miklum ís og hver gat í sig látið.
 
Steinlagnir

16.9.2009 Menntun og fræðsla : Steinlagnatækni, nýtt starfsmenntanám

Þessa dagana standa yfir skráningar í nýtt starfsmenntanám, steinlagnatækni, fyrir haustönn 2009. Kennslan hefst mánudaginn 26. október kl. 17.10. Námið, sem er á sviði skrúðgarðyrkju, er mótað og uppbyggt af félagi skrúðgarðyrkjumeistara og Horticum menntafélagi ehf. í samstarfi við Tækniskólann.

 
adild-saga-0800-0809

15.9.2009 Alþjóðlegt samstarf : Andstaða við aðild að ESB í hámarki

Heldur fleiri eru óánægðir en ánægðir með að sótt hefur verið um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þá hafa aldrei fleiri sagst andvígir aðild frá því að Samtök iðnaðarins tóku að láta gera kannanir fyrir sig um Evrópumálin. Um 50% segjast andvígir aðild en um 33% segjast hlynnt. Þá segjast um 17% hvorki hlynnt né andvíg aðild.

 
Starfsafl

14.9.2009 Menntun og fræðsla : Styrkir til fyrirtækja með eigin fræðslu

Stjórn Starfsafls ákvað á fundi í morgun að gefa fyrirtækjum möguleika á að sækja um styrki til að kosta eigin fræðslu sem fram fer innan fyrirtækjanna með eigin leiðbeinendum.  Reglurnar fela í sér að heimilt er að veita styrki samkvæmt tilteknum verklagsreglum og eru þeir ætíð háðir samþykki stjórnar.

 
NSA

14.9.2009 Nýsköpun og þróun : Spennandi fjárfestingar hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins

Á ársfundi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins sem haldinn var fyrir helgi var 6 mánaða uppgjör staðfest. Sjóðurinn var rekinn með 76 milljóna króna hagnaði fyrstu 6 mánuði ársins 2009. Fjárfest var fyrir rúman hálfan milljarð króna á fyrri hluta ársins. Sjóðurinn á nú hluti í 35 sprotafyrirtækjum og 3 samlagssjóðum.

 
Opni háskólinn

11.9.2009 Matvælaiðnaður : Rekstrarstjórnun og vöruþróun í matvælaframleiðslu

Matís og HR bjóða upp á einstakt nám fyrir stjórnendur í matvælaframleiðslu. Markmið námsins er að efla almenna rekstrarkunnáttu nemenda og kynna þeim hagnýtar og sannreyndar aðferðir og vinnubrögð sem ýta undir rekstrarlegan árangur m.a. með betri stjórnun virðiskeðjunnar og markvissari samningum við birgja.
 
ÍAV hlýtur gæðavottun

10.9.2009 Gæðastjórnun og rekstur : ÍAV með vottað gæðakerfi

ÍAV hefur náð þeim merka áfanga að vera fyrst íslenskra verktakafyrirtækja í alhliða verktakastarfsemi til að hljóta vottun samkvæmt ISO 9001:2008 staðlinum. Vottunin nær yfir alla starfsemi fyrirtækisins þar með talið þróunar-, hönnunar- og verkefnastýringu í bygginga- og mannvirkjagerð.
 
vinnustadakennslustyrkur_2009

7.9.2009 Menntun og fræðsla : Sláturfélag Suðurlands hlýtur vinnustaðakennslustyrk SI

Sláturfélag Suðurlands hlaut nýlega tæplega tveggja milljóna króna styrk frá Samtökum iðnaðarins til þess að kenna nemum kjötiðn á vinnustað. SI veita árlega 20 milljónum króna til vinnustaðakennslu í fyrirtækjum, sérstaklega í þeim greinum sem erfitt er að fá nema eða taka við nemum í vinnustaðakennslu.

 
evropubruin

7.9.2009 Mannvirkjagerð : Ráðgjöf við útvegun verkefna erlendis

Nýsköpunarfyrirtækið Evrópubrúin ehf. hefur nú hafið starfsemi, en markmið fyrirtækisins er að afla íslenskum byggingahönnuðum og verktakafyrirtækjum fjölbreyttra verkefna í löndum evrópska efnahagssvæðisins í þeirri viðleitni að sporna gegn verkefnaskorti íslenskra fyrirtækja.
 
Sigurvegarar í samkeppni í gullsmíði

3.9.2009 Þjónustuiðnaður : Íslendingur hlaut silfur í gullsmíði

Júlía Þrastardóttir hlaut á dögunum silfurverðlaun í samkeppni Norðurlandaþjóða í gullsmíði. Félag íslenskra gullsmiða og SI óska Júlíu og meistara hennar Kristni Sigurðssyni til hamingju með frábæran árangur.

 
Sement_verksmidjan

2.9.2009 Fréttir af SI : Sögubækur og sement

Talsverð umræða hefur verið um sölu sements á Íslandi á liðnum vikum. Þar hefur m.a. verið reynt að gera Samtök iðnaðarins tortryggileg og fullyrt að þau vilji einokun á sementsmarkaði. Undir þessu verður ekki setið lengur.

 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.