Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

Mannvirkjagerd4

30.10.2009 Mannvirkjagerð : Bráðvantar nýjar ódýrari íbúðir á markaðinn

Eitt af því sem skapar núverandi vanda á nýbyggingamarkaði er lítið framboð af ódýru húsnæði. Nægt fjármagn, mikil kaupgeta og hækkandi lóðaverð síðastliðin ár varð til þess að of mikið var byggt af stórum lúxusíbúðum. Skipulagsyfirvöld þurfa því að hugsa dæmið upp á nýtt og bjóða lóðir þar sem hægt verður að byggja 2ja og 3ja herbergja íbúðir á ódýrari hátt en verið hefur.
 
skjaldarmerki_islands_nytt

28.10.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Yfirlýsing forsætis- og fjármálaráðherra

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sent frá sér yfirlýsingu um framgang stöðugleikasáttmálans frá 25. júní sl.
 
Þórólfur Árnason

28.10.2009 Upplýsingatækni : Þórólfur Árnason endurkjörinn formaður SUT

Þórólfur Árnason, forstjóri SKÝRR, var endurkjörinn formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja - SUT - á aðalfundi í morgun en Þórólfur tók við formennsku SUT á síðasta ári af Eggerti Claessen.

 
Malta

26.10.2009 Alþjóðlegt samstarf : Malta og Evrópusambandið: Væntingar og reynsla

Rannsóknasetur um smáríki og Evrópusamtökin bjóða til hádegisfundar í Kornhlöðunni (bak við Lækjarbrekku) þriðjudaginn 27. október frá kl. 12 til 13:30 með Dr. Simon Busuttil, Evrópuþingmanni frá Möltu, og Dr. Roderick Pace, stjórnmálafræðiprófessor við Möltuháskóla.
 
sa-logo

26.10.2009 Vinnumarkaðsmál : Ögurstund stöðugleikasáttmála

Framtíð stöðugleikasáttmálans ræðst sennilega í dag og á morgun ræðst hvort kjarasamningi verður sagt upp eða ekki. Mikið er í húfi og ekki verður öðru trúað að óreyndu en ríksstjórnin komi til móts við aðila vinnumarkaðarins. Samtök atvinnulífsins sendu í gær frá sér upplýsingar til félagsmanna.
 
Iðan - fræðslusetur

23.10.2009 Prentiðnaður : Breytingar á sviðsstjórn prenttæknisviðs IÐUNNAR

Á síðasta sviðsstjórnarfundi prenttæknisviðs létu þeir Sveinbjörn Hjálmarsson og Kristján G. Bergþórsson af setu í sviðsstjórn. Í þeirra stað koma Sölvi Sveinbjörnsson og Guðbrandur Magnússon.
 
Sprotaþing 2009

23.10.2009 Sprotafyrirtæki : Hátækni- og sprotaþing 2009

Í samstarfi Hátækni- og sprotavettvangs, þingflokka stjórnmálaflokka, ráðuneyta iðnaðar, utanríkis, mennta- og fjármála, háskóla og aðila stoðkerfis og atvinnulífs verður efnt til Hátækni-og sprotaþings 2009 föstudaginn 6. nóvember nk. Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði hátækni- og sprotafyrirtækja á Íslandi.

 
Stóriðja

23.10.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Félagsmálaráðherra gefur tóninn

Ársfundur ASÍ stendur nú yfir. Í gær flutti félagsmálaráðherra ræðu þar sem hann hefur væntanlega ætlað að gefa tóninn fyrir lokasprettinn til að halda lífinu í stöðugleikasáttmálanum. Vonandi er ræða hans ekki til marks um viðhorf ríkisstjórnarinnar í þeim efnum.

 
Noi_Sirius

21.10.2009 Matvælaiðnaður : Íslenskt sælgæti í útrás

Um 100 tonn af íslensku sælgæti er flutt út árlega. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is. Það eru Nói Siríus og Freyja sem selja mest úr landi af íslensku sælgætisframleiðendunum. Forsvarsmenn fyrirtækjanna verða varir við mikinn áhuga erlendis frá en þau selja mikið til Norðurlandanna auk þess sem Nói selur m.a. til Whole Foods í Bandaríkjunum.

 
Samtök upplýsingatæknifyrirtækja

20.10.2009 Upplýsingatækni : Handleiðsluverkefni með hugbúnaðarfyrirtækjum

Á þriðja tug fyrirtækja mættu á fund um handleiðsluverkefni fyrir meðlimi Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) sem Útflutningsráð Íslands og SUT stóðu fyrir í síðustu viku.
 
Auglysing_um_vinnustadakennslustyrk

20.10.2009 Menntun og fræðsla : Styrkir til vinnustaðakennslu

Samtök iðnaðarins auglýsa styrki til iðnfyrirtækja sem annast vinnustaðakennslu. Styrkirnir eru veittir til að efla kennslu og þjálfun í iðngreinum sem fyrirtæki hafa þörf fyrir en erfitt er að fá nemendur í.
 
Annar togaranna

19.10.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Útgerðin greiðir tekjuskatt

Í spjallþættinum Hrafnaþing, sl. föstudag tók framkvæmdastjóri SI þátt í umræðum svokallaðrar Heimastjórnar. „Þar varð mér fótaskortur í fullyrðingum um skattgreiðslur útgerðarfyrirtækja“, segir Jón Steindór, „það er mér bæði ljúft og skylt að leiðrétta.“
 
Fjöreggið 2009

19.10.2009 Matvælaiðnaður : Beint frá býli - Félag heimavinnsluaðila hlaut Fjöregg MNÍ 2009

„FJÖREGG MNÍ” var veitt á Matvæladegi 2009, 15. október sl., fyrir lofsvert framtak á matvæla og næringarsviði. „Fjöreggið” er íslenskt glerlistaverk, hannað og framleitt hjá Gleri í Bergvík. Samtök iðnaðarins gáfu verðlaunagripinn.

 
CRI

19.10.2009 Orku- og umhverfismál : Fundur SA og umhverfisráðuneytis

Þriðjudaginn 20. október efna SA og umhverfisráðuneytið til opins umræðu- og kynningarfundar um skýrslu sérfræðinganefndar um möguleika til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykajvík (Háteig) og hefst kl. 13 og stendur til kl. 15.
 
Vinnueftirlitið

19.10.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar 2009

Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar 2009 ÁHÆTTUMAT FYRIR ALLA verður haldin á Grand Hótel, Gullteigi, þriðjudaginn 20. október frá kl. 13.00-16.00

 
Meistarabref

15.10.2009 Menntun og fræðsla : Meistarabréf á ensku

Samtök iðnaðarins hafa þýtt náms- og færnikröfur iðnmeistara á ensku. Töluvert er um að iðnmeistarar leiti sér vinnu erlendis eða hugleiði að gera slíkt. Mikilvægt er að þeir geti þá sýnt fram á þekkingu sína og hæfni, t.d. með yfirliti um menntun og fyrri störf.
 

14.10.2009 Upplýsingatækni : Aðalfundur SUT verður 28. október

Boðað er til aðalfundar Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) miðvikudaginn 28. október nk. í Húsi atvinnulífsins Borgartúni 35, 6. hæð, kl. 8:30.
 
Alþingi

13.10.2009 Stóriðja : Umhverfisráðherra og lögin

Hart hefur verið deilt á umhverfisráðherra fyrir ákvörðun hans um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur. Efast hefur verið um lögmæti og réttmæti þeirrar ákvörðunar m.a. af Samtökum iðnaðarins. Ef rýnt er í nokkur atriði í tengslum við úrskurð ráðherra um að fella úrskurð Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt umhverfismat á framkvæmdum sem tengjast álveri í Helguvík kemur fljótt í ljós að á honum eru svo miklir annmarkar að allar líkur benda til þess að hún sé ólögmæt.

 
Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík

9.10.2009 Stóriðja : Markvisst niðurrif

Ekki verður annað séð en að það sé stefna ríkisstjórnarinnar að vinna markvisst gegn áliðnaði og öðrum orkufrekum iðnaði á Íslandi í bráð og lengd. Ákvarðanir um að framlengja ekki viljayfirlýsingu vegna Bakka, fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur og tillaga um orku- og auðlindaskatt koma fyrirhuguðum framkvæmdum í uppnám segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri SI.

 
Mynd08

7.10.2009 Sprotafyrirtæki : Þaulhugsaður einfaldleiki, ný íslensk hönnun frá NEMA ehf.

Þessa dagana er verið að markaðsetja nýja íslenska hönnunar- og framleiðslulínu sem hefur að gera með lýðheilsu í hátæknisamfélagi. Vörulínan er sniðin að þörfum þeirra sem nota fartölvur daglega og samanstendur af brettum undir fartölvur og dagblaða- og bókastöndum og er hönnuð í nánu samráði við lækna og iðjuþjálfa. Vörurnar eru framleiddar í Múlalundi.

 
Prósentumerki

6.10.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Könnun á ástandi og horfum

Starfsmenn SI hafa á gert könnun meðal stærstu félagsmanna sinna um ástand og horfur. Svör bárust frá 140 félagsmönnum. Störfum hefur fækkað um 632 frá upphafi árs og til áramóta er búist við annarri eins fækkun og hefur þá starfsmönnum fækkað um 13,5% frá upphafi til loka árs.

 
Mentor hlýtur Vaxtarsprotann

5.10.2009 Nýsköpun og þróun : Íslenskir kvenfrumkvöðlar hitta Viktoríu krónprinsessu

Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri Stika og Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri Mentors munu hitta Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar í viðhafnarkvöldverði í dag. Þær hafa verið valdar fulltrúar íslenskra kvenfrumkvöðla í Evrópuverkefninu EU Network of Female Entrepreneurship Ambassadors ásamt Höllu Tómasdóttur og Kristínu Pétursdóttur frá Auði Capital.
 
Alþingi

1.10.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Skuggaleg tíðindi

Í fjárlagafrumvarpinu er að finna skuggaleg tíðindi um skattastefnu stjórnvalda. Ekki verður betur séð en þannig sé gengið fram að það leiði til enn frekari stöðnunar og samdráttar. Augljóst er að umsvif í atvinnulífinu munu dragast enn saman og fjárfestingar tengdar orkunýtingu verða í uppnámi.
 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.