Forsíðufréttir

Ráðgjafaráðsfundur í nóvember 2009

30.11.2009 Fréttir af SI : Svigrúm til skattahækkana fullnýtt

Félagsfundur SI með ráðgjafaráði fór fram á Grand hóteli sl. fimmtudag. Umfjöllunarefni fundarins voru skattar og efnahagsmál. Tilgangur fundarins var að ræða margvísleg áhrif þeirra skattbreytinga sem eru í farvatninu á stöðu iðnaðarins og framvinduna í efnahagsmálum á næstu misserum.

Lesa meira

 
johanna_sigurdardottir_vef

27.11.2009 Starfsskilyrði iðnaðar : Forsætisráðherra tekur af skarið

Það er gleðilegt að forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur lýst yfir eindregnum vilja til þess að greiða götu framkvæmda á Suðurnesjum. Samtök iðnaðarins taka heilshugar undir sjónarmið forsætisráðherra. Lesa meira
 
Umhverfismerkið Svanurinn

25.11.2009 Gæðastjórnun og rekstur : Ræstingasvið ISS með Svansvottun

Ræstingarsvið ISS Ísland hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins fyrir ræstingarþjónustu. Strangar kröfur Svansins tryggja að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa starfseminnar. ISS Ísland sem starfar á sviði fasteignaumsjónar er jafnframt fyrsta ISS fyrirtækið á heimsvísu til að fá slíka vottun. Umhverfisráðherra veittil eyfið föstudaginn 20. nóvember sl. í húsnæði ISS. Lesa meira
 
Málmur

25.11.2009 Málmiðnaður : Erindi til Samkeppniseftirlitsins

Samtök iðnaðarins og MÁLMUR – samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði hafa sent erindi til Samkeppniseftirlitsins þar sem óskað er að tryggt verði að uppbygging og rekstur skipalyftunnar í Vestmannaeyjum verði ekki niðurgreiddur úr hafnarsjóði eða bæjarsjóði eins og stefnt er að. Lesa meira
 
Noi_Sirius

23.11.2009 Matvælaiðnaður : 14% vsk-þrepi mótmælt harðlega

Í opnu bréfi til allra alþingismanna óska íslensk framleiðslufyrirtæki eftir jafnrétti og réttlæti í þeirra garð, starfsfólks og viðskiptavina. Þingmenn eru hvattir til að hverfa frá þeirri mismunun sem felst í því að velja að geðþótta sí og æ sömu vörur gamalgróinna íslenskra iðnfyrirtækja og skattleggja þær sérstaklega.

Lesa meira

 
Dagur_ungra_fraedimnov2009

18.11.2009 Alþjóðlegt samstarf : Dagur ungra fræðimanna í Evrópumálum

Föstudaginn 20. nóvember fer fram Dagur ungra fræðimanna í Evrópumálum á vegum Alþjóðamálastofnunar og Samtaka iðnaðarins. Málþingið verður í fyrirlestrarsal 132 í Öskju, frá klukkan 13 til 16. Þarna gefst ungum og/eða nýútskrifuðum fræðimönnum tækifæri til að kynna rannsóknarverkefni sín á sviði Evrópufræða. Þetta er í fjórða sinn sem dagurinn er haldinn.

Lesa meira
 
Aðalfundur SÍL

18.11.2009 Líftækni : Aðalfundur SÍL haldinn í nýopnuðu frumkvöðlasetri

Aðalfundur Samtaka íslenskra líftæknifyrirtækja var haldin á dögunum. Kosinn var nýr formaður samtakanna, Jóhannes hjá Genís. Þá gekk Ása Brynjólfsdóttir hjá Bláa Lóninu heilsuvörum í stjórn og Jakob K. Kristjánsson hjá Prókatín situr áfram í stjórninni. Einar Mäntylä hjá ORF Líftækni eru þökkuð vel unnin störf en hann hefur setið í stjórn SÍL í fimm ár, seinustu tvö árin sem formaður. Lesa meira
 
Umbudalaus_umrada_Radstefna

18.11.2009 Orku- og umhverfismál : Málþing um neyslu og úrgangsmál

Fenúr og Félag umhverfisfræðinga efnir til málþings um neyslu og úrgangsmál undir yfirskriftinni Umbúðalaus umræða föstudaginn 20. nóvember, kl. 10.00 - 16.00 í Sunnusal á Hótel Sögu. Markmiðið er að vekja umræðu um stöðu neyslumenningar og úrgangsmála hérlendis. Lesa meira
 
sykur

16.11.2009 Matvælaiðnaður : Ósanngjörn skattheimta

Í sumar ákvað ríkisstjórnin að endurvekja gamla vörugjaldskerfið, reyndar með tvöföldum þunga, og leggja gjöld á ýmsar matvörur. Það var gert undir formerkjum lýðheilsu og þess að verið væri að skattleggja óhollustu. Þrátt fyrir hörð mótmæli, ekki síst úr ranni Samtaka iðnaðarins, var ákveðið að fara þessa leið.

Lesa meira

 
hátækni- og sprotþing 2009

13.11.2009 Sprotafyrirtæki : Markvert framlag hátækni- og sprotafyrirtækja til endurreisnar og trú á framtíðina

Fulltrúar fyrirtækja, stuðningsaðila og alþingismenn troðfylltu húsakynni CCP á Hátækni- og sprotaþingi 2009 sem fór fram föstudaginn 6. nóvember. Það ríkir engin kreppa í hugarfari stjórnenda þessara fyrirtækja, heldur trú á bjarta framtíð. Árangurinn blasir líka við þrátt fyrir erfið rekstrarskilyrði á undanförnum árum.

Lesa meira
 
Álframleiðsla

13.11.2009 Stóriðja : Áliðnaðurinn á Íslandi

Á þessu ári eru 40 ár síðan framleiðsla á áli hófst á Íslandi. Árleg framleiðslugeta áliðnaðarins á Íslandi er nú um 800.000 tonn en til samanburðar eru árlega framleiddar um 40 milljónir tonna af áli í heiminum. Á síðasta ári námu tekjur af útflutningi áls 182 milljörðum króna eða um 40% af vöruútflutningstekjum.

Lesa meira

 
Kyr_a_beit

10.11.2009 Matvælaiðnaður : Alþjóðleg matvælaráðstefna í Reykjavík 16.-17. nóvember

Alþjóðleg ráðstefna um matvælaframleiðslu á Norðurlöndum Nordic values in the Food Sector; The way forward in a global perspective“ verður haldin á Grand Hótel Reykjavík 16. – 17. nóvember nk., en ráðstefnan er liður í formennskuáætlun Íslands í norrænu samstarfi um matvælamál.

Lesa meira

 
CRI

10.11.2009 Orku- og umhverfismál : Málþing um loftslagsmál og úrlausnir

Í tilefni af norræna loftslagsdeginum efna Kolviður og Reyst til málþings í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, kl. 8.30-12.00 miðvikudaginn 11. nóvember.
Lesa meira
 
Mannvirkjagerd3

9.11.2009 Lögfræðileg málefni : Víðtæk ábyrgð byggingarstjóra

Með dómi Hæstaréttar fimmtudaginn 5. nóvember sl. var byggingarstjóri dæmdur til að greiða íbúðareigendum skaðabætur vegna galla á fjöleignarhúsi. Í dóminum, sem var fjölskipaður, var því slegið föstu að á byggingarstjóra hvíli ekki aðeins að sjá til þess að byggt sé í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglugerðir, heldur einnig skylda til að hafa yfirumsjón og eftirlit með byggingarframkvæmdum sem hann stýrir.

Lesa meira
 
Reykjanesbraut

9.11.2009 Mannvirkjagerð : Engin útboð fyrirhuguð á næstunni hjá Vegagerðinni

Vegagerðin gefur reglulega út Framkvæmdafréttir. Þar eru auglýst fyrirhuguð útboð og jafnframt greint frá niðurstöðum fyrri útboða. Samanburður á síðasta tölublaði og tölublaði frá sama tíma fyrir ári gefur ógnvekjandi mynd af ástandi á verktakamarkaði.

Lesa meira
 
Kaffibarþjónakeppni

9.11.2009 Matvælaiðnaður : Norðurlandamót kaffibarþjóna: miðpunktur fræðslu og sköpunar

Um miðjan september sl. var blásið til árlegrar liðakeppni milli Norðurlandaþjóðanna í kaffigreinum, undir heitinu Nordic Barista Cup (NBC). Þetta mót var fyrst haldið árið 2003 með það að markmiði að kaffibarþjónar, brennslumeistarar, kaffihúsaeigendur og aðrir tengdir sælkerakaffi geti komið saman, lært eitthvað nýtt og haft gaman. Lesa meira
 
Icelandic Gaming Industry

3.11.2009 Upplýsingatækni : IGIA10 Fyrsta íslenska leikjagerðar samkeppnin

Þann 5.nóv nk. kl. 20:30 fer af stað fyrsta árlega íslenska samkeppnin í tölvuleikjagerð, IGIA10, í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2. Keppnin er haldin af samtökum leikjaframleiðenda á Íslandi (IGI) og er afrakstur vinnu sjálfboðahóps samtakanna undanfarna mánuði. Lesa meira
 
Heimsókn í Héðin

3.11.2009 Menntun og fræðsla : Ungt fólk heimsækir Héðin

Nýlega kom um 20 nemenda hópur úr Ölduselsskóla í heimsókn til málmiðnaðarfyrirtækisins Héðins í Hafnarfirði. Forstjórinn, Guðmundur Sveinsson, tók á móti hópnum, fræddi unga fólkið um fyrirtækið og leiddi það um sali. Samtök iðnaðarins skipulögðu heimsóknina og leigðu rútu.

Lesa meira

 
Rafræn viðskipti

3.11.2009 Upplýsingatækni : Vefur rafrænna viðskipta

Um miðjan október var opnaður vefur um rafræn viðskipti þar sem fjallað er um miðlun viðskiptaskeyta á milli aðila í íslensku umhverfi. Lesa meira
 
Skúlaverðlaunin 2009

2.11.2009 Þjónustuiðnaður : Fríða Jónsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2009

Fríða Jónsdóttir gullsmiður hlaut Skúlaverðlaunin 2009 fyrir verkið “Fjölin hennar ömmu” á sýningunni HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsinu. Verðlaunin eru styrkt af SI og framkvæmdastjóri samtakanna, Jón Steindór Valdimarsson afhenti þau sl. föstudag.  

Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica