Forsíðufréttir

logo SI

29.1.2010 Starfsskilyrði iðnaðar : Samtök atvinnurekenda þétta raðirnar

Að sameiginlegu frumkvæði Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands var haldinn fundur í vikunni um það vandamál sem blasa við atvinnulífinu. Fundinn sóttu formenn, varaformenn og framkvæmdastjórar tólf samtaka atvinnurekenda. Fundurinn sýnir glöggt að atvinnurekendur telja brýnt að þétta raðirnar til þess að takast á við verkefnin framundan. Lesa meira
 
Frost í mannvirkjagerð

28.1.2010 Mannvirkjagerð : Útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar

Vegagerðin vinnur nú að því að undirbúa útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Ríkisstjórnin hefur heimilað útboðin og framkvæmdir munu dreifast á tvö ár þ.e.a.s. árin 2010 og 2011. SI fagna þessari ákvörðun mjög en það hefur verið verið eitt af helstu baráttumálum þeirra undanfarin misseri að fá opinbera aðila til arðbærrar mannvirkjagerðar.

Lesa meira

 
Raforka

28.1.2010 Mannvirkjagerð : Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat

SI fagna staðfestingu umhverfisráðuneytis á ákvörðun Skiplagsstofnunar frá 30. október um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. Ráðuneytinu bárust kærur frá Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Græna netinu vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar.

Lesa meira

 
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors

26.1.2010 Nýsköpun og þróun : FKA viðurkenninguna 2010 hlaut Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors

Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri Mentor hlaut FKA viðurkenninguna 2010 sem veitt var við hátíðlega athöfn 21. janúar sl. Þetta er í 11. sinn sem Félag kvenna í atvinnurekstri veitir þessa viðurkenningu.

Lesa meira

 
Bjarni Már Gylfason

26.1.2010 Vinnumarkaðsmál : Verðbólguþróun til marks um samdrátt

„Vissulega er það ánægjulegt að verðbólgan skuli vera hjaðna en verðbólguþróunin leiðir hugann hins vegar af orsökum minnkandi verðbólgu og  þeirrar staðreyndar að vextir eru hér enn mjög háir“, segir Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands lækkaði vísitala neysluverðs um 0,31% í janúar frá fyrra mánuði en án húsnæði breyttist vísitalan ekki. Verðbólgan mælist nú 6,6% en síðustu þrjá mánuði er verðbólga á ársgrunni 3,7%.

Lesa meira

 
Finnbogi Jónsson

22.1.2010 Nýsköpun og þróun : Nýr framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands

Framtakssjóður Íslands var nýlega stofnaður af fjölmörgum lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóðirnir leggja sjóðnum til 30 milljarða kr. og mun sjóðurinn gegna veigamiklu hlutverki í endurreisn íslensks efnahagslífs með fjárfestingum í fyrirtækjum. Stjórn sjóðsins hefur ráðið Finnboga Jónsson sem framkvæmdastjóra. Lesa meira
 
Sóknaráætlun

22.1.2010 Nýsköpun og þróun : Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag

Nýskopunarmiðstöð Íslands stendur fyrir ráðstefnunni Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag á Radisson SAS Saga hótel 28. janúar kl. 13:00 - 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Lesa meira
 
TechEd

22.1.2010 Upplýsingatækni : The Best of TechEd & Convergence 2010

Microsoft Íslandi stendur fyrir risaráðstefnunni The Best of TechEd & Convergence 2010 á Hilton Nordica Hótel 26.-27. Janúar. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

Lesa meira

 
TG_verktakar_RGB_JPEG

21.1.2010 Mannvirkjagerð : Nýr grunnur fyrir vísitölu byggingakostnaðar

Hagstofan hefur í fyrsta sinn birt byggingavísitölu samkvæmt nýjum grunni. Í síðasta tölublaði Íslensks iðnaðar var talað við Heiðrúnu Guðmundsdóttur og Stefán Loga Sigurþórsson sérfræðinga í vísitöludeild Hagstofunnar og fjallað um þessar breytingar. Lesa meira
 
Jón Steindór Valdimarsson

20.1.2010 Mannvirkjagerð : Láta þarf verkin tala

Það er ekki nóg að stjórnmálamenn tali um að framkvæmdir muni hefjast á næstunni. Fyrirtæki lifi ekki á talinu einu. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í viðtali við fréttastofu Rúv.

Lesa meira

 
Staðlaráð

20.1.2010 Menntun og fræðsla : Hagnýting rafrænna reikninga

Þann 4. febrúar verður haldið námskeið á vegum Staðlaráðs Íslands fyrir stjórnendur sem vilja nýta hagræði af rafrænum reikningum. Lesa meira
 
CRI

19.1.2010 Orku- og umhverfismál : Styrkir til nýsköpunar og rannsókna á loftslagi, umhverfi og orku

Áskoranir sem blasa við í loftslagsmálum krefjast nýrrar þekkingar og tæknilausna. Norðurlöndin hafa margt fram að færa á þessu sviði og löndin hafa nú þegar mikla reynslu af notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Haustið 2008 var ákveðið að fara af stað með stærstu samnorrænu rannsóknaráætlun til þessa, Öndvegisrannsóknaráætlun (Topforskningsinitiativet). Lesa meira
 
Vilmundur Jósefsson formaður SI

18.1.2010 Fréttir af SI : Vilmundur Jósefsson gefur áfram kost á sér sem formaður SA

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fer fram 21. apríl næstkomandi. Lesa meira
 
Opnun HR

15.1.2010 Menntun og fræðsla : Háskólinn í Reykjavík í nýtt húsnæði

Háskólinn í Reykjavík flutti í nýja byggingu 11. janúar. Nemendur og kennarar skólans söfnuðust saman við aðalbyggingu skólans í Ofanleiti og gengu fylktu að nýrri byggingu HR í Nauthólsvík. Í gær var síðan haldin formleg opnunarhátíð þar sem um 500 manns komu saman.

Lesa meira

 
Umhverfismerkið Svanurinn

11.1.2010 Prentiðnaður : Prentsmiðjan Oddi fær Svansvottun

Prentsmiðjan Oddi hefur fengið vottun norræna umhverfismerkisins Svansins. Það tryggir að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa. Umhverfisráðherra veitti leyfið sl. föstudag í húsnæði Odda.

Lesa meira

 
icesave

11.1.2010 Fréttir af SI : Tækifærið er núna

Nú er komið tækifæri til að beita nýjum aðferðum til lausnar Icesave-málinu en þetta ólukkumál hefur truflað alla framvindu á Íslandi í heilt ár. Nú er það skylda okkar allra að leita lausna. Þetta segja formenn Samtaka iðnaðarins, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í grein í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag.

Lesa meira

 
Lög

5.1.2010 Starfsskilyrði iðnaðar : Helstu breytingar á lögum samþykktum á haustþingi sem hafa áhrif á félagsmenn SI

Samtök iðnaðarins hafa tekið saman punkta um helstu breytingar á sköttum og gjöldum sem tóku gildi 1. janúar sl. Ekki er um endanlega upptalningu að ræða og er þeim sem vilja kynna sér málið frekar bent á vefi alþingis og ríkisskattstjóra. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica