Þanin sundur og saman

18. apr. 2018

Undanfarin ár hefur ekki verið mikill stöðugleiki í íslensku efnahagslífi. 

Undanfarin ár hefur ekki verið mikill stöðugleiki í íslensku efnahagslífi. Hagkerfið hefur á síðustu 15 árum farið í kröftuga uppsveiflu, erfiðan samdrátt og síðan aftur hraða uppsveiflu. Þessum stóru efnahagssveiflum hefur fylgt mikill óstöðugleiki í starfsumhverfi og samkeppnisstöðu innlendra fyrirtækja gagnvart erlendum keppinautum. Hefur það komið niður á félagslegum og efnahagslegum lífsgæðum landsmanna.

Ekkert iðnríki hefur gengið í gegnum viðlíka sveiflu í raungengi gjaldmiðilsins á mælikvarða launa og verðlags og hið íslenska síðastliðin 15 ár en raungengi krónunnar er mælikvarði á þróun samkeppnisstöðu innlendra fyrirtækja gagnvart erlendum. Ekkert iðnvætt ríki hefur því boðið sínum fyrirtækjum upp á jafn mikinn óstöðugleika í samkeppnisstöðu á þessum tíma.

Líkt og að búa í harmonikku

Frá upphafi þessarar efnahagsuppsveiflu hefur gengi krónunnar hækkað um nær 50% eftir að hafa lækkað um 55% í aðdraganda efnahagsáfallsins árið 2008. Í uppsveiflunni hafa laun hækkað um ríflega 70%, langt umfram framleiðnivöxt og þær launahækkanir sem sést hafa í löndum þeirra fyrirtækja sem íslensk fyrirtæki keppa helst við. Samkeppnisstaða innlendra fyrirtækja hefur því verið þanin sundur og saman á þessum tíma og má segja að það að reka fyrirtæki í samkeppni við erlend hafi verið eins og að búa í harmonikku á sveitaballi.

Raungengisþróunin getur verið hluti aðlögunar þjóðarbúsins að efnahagsáföllum og búhnykkjum. Þessi mikla sveifla í raungengi krónunnar hefur á undanförnum árum þannig endurspeglað þá stóru efnahagssveiflu sem íslenska hagkerfið hefur gengið í gegnum á þessum tíma. Í rótum þeirrar sveiflu felast því að stórum hluta að minnsta kosti ástæður þessarar miklu sveiflu í raungengi krónunnar og þar með starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja.

Munur á hæsta og lægsta gildi raungengis á mælikvarða launa 2003-2017 (%)

Mynd-grein-IB

Mikilvægt er að starfsskilyrði séu nokkuð fyrirsjáanleg þannig að fyrirtæki hér á landi geti gert áætlanir með viðunandi vissu og á grundvelli þeirra fjárfest í uppbyggingu sem skilar sér í aukinni verðmætasköpun og hagsæld hér á landi. Aukinn og víðtækur stöðugleiki er ekki bara til hagsbóta fyrir fyrirtæki heldur allt íslenskt samfélag.

Efnahagslegur stöðugleiki er mikilvægur fyrir hagkerfið, heimilin og fyrirtækin. Um þetta virðast flestir sammála. Almennur skilningur er á mikilvægi efnahagslegs stöðugleika en óstöðugleiki í efnahagsmálum hér á landi hefur lengi verið eitt af meginvandamálum íslenska hagkerfisins. Með auknum stöðugleika má auka framleiðni og verðmætasköpun.

Uppskrift að vandaðri hagstjórn

Meiri stöðugleika í starfsskilyrðum fyrir­tækja má ná fram með agaðri hagstjórn. Í því sambandi þarf samstillta hagstjórn á sviði opinberra fjármála og peningamála þar sem bæði ríki og sveitarfélög taka ábyrgð ásamt Seðlabankanum. Aðilar vinnumarkaðarins þurfa einnig að axla ábyrgð.

Nýútkomin fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er áhyggjuefni í þessum efnum. Áætlunin byggir á þjóðhagsspá sem hljóðar upp á stöðugleika á kjörtímabilinu sem á sér vart hliðstæðu í íslenskri hagsögu. Gott er ef sú spá rætist en í ljósi sögunnar er hún því miður fremur óraunhæf.

Áætlunin hefði átt að byggja á raunhæfara mati á væntanlegri þróun hagkerfisins og mati á því hvernig ríki og sveitarfélög ætluðu að skapa meiri stöðugleika í efnahagsumhverfi fyrirtækja og heimila í landinu. Slíkt væri betri uppskrift að vandaðri hagstjórn.

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI.

Markaðurinn - Fréttablaðið/Vísir, 18. apríl 2018