Hagtölur iðnaðarins í breyttri mynd

Ákveðið hefur verið að hætta útgáfu dagbókar Samtaka iðnaðarins sem meðal annars hefur innihaldið hagtölur iðnaðarins. Þar hafa margvíslegar upp­lýsingar um iðnað verið til staðar og þær settar í samhengi við aðrar atvinnugrein­ar. Aukin áhersla verður í framtíðinni lögð á reglubundna umfjöllun um stöðu iðnað­ar hér á vefnum þar sem hagtölum iðnaðarins verða einnig gerð ítarlegri skil. Þeim breytingum komið á eftir því sem vinnu við endur­nýjun vefsetursins líður.

Áfram verður markmiðið að auka al­­menna þekkingu á vægi og stöðu iðnað­ar í samfélaginu. Einnig verður fjallað á víðtækan hátt um starfsskilyrði iðnað­arins og almennt um stöðu efnahagslífs­ins.

Með þessum breytingum er annars vegar verið að auka reglubundna birt­ingu á einstökum hagtölum sem lýsa stöðu iðnaðar og hins vegar að auka fjölbreytni á vefsetri Samtakanna.

Félagsmönnum er bent á að þær upp­lýsingar sem birtar eru á vefsetri SI eru ekki tæmandi um stöðu og starfsskil­yrði iðnaðarins. Bjarni Már Gylfason, hag­fræð­ingur SI, veitir ráðgjöf og frekari upplýsingar á þessu sviði.

Í framtíðinni munu hagtölur birtast á eftirfarandi hátt. Ef smellt er á myndirnar hér fyrir neðan opnast taflan í pdf skjali.


Arlegur_voxtur_landsframleidslu Framleidni
Raungengi_kronu Hagvoxtur_um_heim
Velta_a_greidslukortum Fjarmunamyndun
atvinnuleysi_jan_09 verdbolga_Jan_09
Visitala_byggingakostnadar landsframleidsla_a_mann_00_10_jan_09
Vagi_atvinnugreina Skipting_verdmataskopunar
Troun_launa_og_kaupmattar


Hagtölur fyrir árið 2007 er að finna hér.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica