Virðisaukaskattur endurgreiddur að fullu
Alþingi samþykkti 2010 lög um að endurgreiða megi allan virðisaukaskatt (alls 100%) af vinnu á byggingarstað, bæði við nýsmíði og viðhald á íbúðarhúsnæði og sumarhúsum.
Sérstök athygli er vakin á því að lögin ná nú einnig til sumarbústaða.
Nú hefur Alþingi samþykkt ársframlenginu á heimildinni og gildir hún til 1. janúar 2013.
Hvernig fæ ég endurgreitt?
Það er einfalt að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskattsins. Eyðublað má nálgast hjá skattstjórum eða á vef ríkisskattstjóra. Halda þarf til haga frumritum af öllum reikningum sem greiddir hafa verið vegna vinnu á byggingarstað. Reikningarnir þurfa að vera sundurliðaðir í efniskostnað annars vegar og vinnukostnað hins vegar.
Útfylltu eyðublaði og reikningum þarf að koma til skattstjóra í viðkomandi umdæmi sem endurgreiðir virðisaukaskattinn.
Ef um er að ræða vinnu við nýbygginu þarf að fylla út eyðublað
Ef um er að ræða vinnu við viðhald eða endurbætur á húsnæði þarf að fylla úteyðublað RSK 10.18
Vakin er athygli á því að eyðublöðin hafa enn ekki verið uppfærð í samræmi við ný lög þannig að prósentutalan sem vísað er til á eyðublöðunum er ekki 100% þó að lögin hafi þegar tekið gildi. Ekki er heldur tiltekið á eyðublöðunum að lögin taki einnig til sumarbústaða. Óhætt er að fylla þau út eins og um 100% endurgreiðslu sé að ræða.
