Um okkur

Innan Samtaka iðnaðarins eru 1.700 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda. Þau eru mjög ólík innbyrðis, hvort sem litið er til stærðar, framleiðslu eða markaða. 

Hin mikla fjölbreytni sem rúmast innan samtakanna gerir starfið í senn vandasamt og nauðsynlegt. Þess er gætt að leggja áherslu á það sem er sameiginlegt en um leið hlúð að því sértæka. Þetta hefur tekist með svo farsælum og árangursríkum hætti að Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda í landinu. Samtök iðnaðarins vinna að hagsmunum iðnaðarins á öllum sviðum og í nánu samráði við fyrirtækin sjálf. Þjónusta við félagsmenn er annars vegar við einstök fyrirtæki og starfsgreinahópa en hins vegar þverfagleg, s.s. í gæðamálum, menntamálum og markaðs- og kynningarmálum.

Meðal þess sem Samtök iðnaðarins fást við er að:

  • Bæta almennt rekstrarumhverfi með því að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda
  • Fylgjast með alþjóðlegri þróun í atvinnurekstri
  • Fylgjast með og hafa áhrif á stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna, einkum gagnvart ESB
  • Stuðla að hagkvæmum rekstri með því að innleiða nýjar og bættar aðferðir við stjórnun og rekstur
  • Gæta þess að farið sé að reglum á markaði
  • Efla samstarf fyrirtækja
  • Veita þjónustu og ráðgjöf

Skrifstofa Samtaka iðnaðarins er til húsa á 4. hæð í Borgartúni 35 í Reykjavík. 

Hér er hægt að sækja um aðild að SI.

Stefna SI 2026-2028

Samtök iðnaðarins efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar í þágu samfélagsins alls

Stjórn SI hefur samþykkt stefnu sem gildir 2026-2028. Hlutverk Samtaka iðnaðarins er að efla íslenskan iðnað í þágu samfélagsins alls. Gildi samtakanna eru fagmennska, samvinna og áræðni. Ísland í fremstu röð er sýn samtakanna og er kjarninn í stefnunni að vinna stöðugt að því að styrkja samkeppnishæfni Íslands með skýrri áætlun á sviðum starfsumhverfis, mannauðs, nýsköpunar, gervigreindar, orku og umhverfis, innviða, viðnámsþróttar og alþjóðlegrar hagsmunagæslu. Til þess hafa verið settar fram fjórar stefnuáherslur undir heitunum Ísland og umheimurinn, Sterkari saman og Markviss samskipti.

Ísland og umheimurinn

Verkefnin sem unnið verður að samkvæmt stefnunni undir yfirskriftinni Ísland og umheimurinn verður að styrkja alþjóðleg tengsl samtakanna og hagsmunagæslu í síbreytilegum heimi.

Sterk saman

Verkefnin sem unnið verður að samkvæmt stefnunni undir yfirskriftinni Sterk saman verður að efla þjónustu gagnvart félagsmönnum, afla nýrra félagsmanna og styrkja innri umbætur.

Markviss samskipti

Verkefnin sem unnið verður að samkvæmt stefnunni undir yfirskriftinni Markviss samskipti verður að styrkja upplýsingamiðlun og styrkja ímynd iðnaðar.