Keppnin Bakari ársins 2013 fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi um síðustu helgi. Sigurvegari var Daníel Kjartan Ármannsson, starfsmaður í Mosfellsbakaríi, í öðru sæti varð Andri Kristjánsson, Bernhöftsbakaríi og í þriðja sæti Ragnheiður Guðmundsdóttir, Valgeirsbakaríi.
Matvæladagur MNÍ 2013 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 16. október.
Dagurinn verður að þessu sinni helgaður umfjöllun um ráðleggingar um mataræði og næringarefni og hvernig þær nýtast í daglegu lífi.
Á aðalfundi IGI – samtaka íslenskra leikjaframleiðenda sem haldin var 27. september var kosin ný stjórn. Nýr formaður er Stefanía Halldórsdóttir frá CCP og tekur hún við af Jónasi B. Antonssyni frá Gogogoc.
Fimmtudaginn 10. október verður blásið til Smáþings á Hótel Reykjavík Nordica þar sem verður stofnaður nýr vettvangur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi undir merkjum
Litla Íslands. Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök SA standa að þinginu en þar verða málefni lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi í kastljósinu.
Alefli ehf. byggingaverktakar hefur staðist úttekt á fyrsta þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið D-vottun.
Héraðsdómur
komst að þeirri niðurstöðu í dag í máli Suðurverks gegn Lýsingu að fjármögnunarleigusamningar
Lýsingar væru ekki kaupleigusamningar og því ekki ólögmætir lánasamningar. Dómurinn
er ekki í samræmi við fyrri dóma um ólögmæti gengistryggðra
fjármögnunarleigusamninga Íslandsbanka og Landsbankans.
Samtök iðnaðarins voru stofnuð 24. september 1993 þegar sameinuð voru sex helstu samtök iðnaðar: Félag íslenskra iðnrekenda, Landssamband iðnaðarmanna, Félag íslenska prentiðnaðarins, Verktakasamband Íslands, Samband málm- og skipasmiðja og Meistara- og verktakasamband byggingamanna. Þau tóku síðan formlega til starfa um áramótin ´93-´94.
Tölvuleikjaframleiðandinn Plain Vanilla kom með tvær milljónir dala til landsins í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands, jafnvirði rúmlega 240 milljóna íslenskra króna.
Það sem af er ári hafa nokkur vaxandi tæknifyrirtæki í Samtökum sprotafyrirtækja flutt úr landi ásamt dýrmætu starfsfólki. Svana Helen Björnsdóttir, formaður SI fjallar um stöðu tækni- og hugverkafyrirtækja í Fréttablaðinu í dag
Útflutningsverkefnið (ÚH) er sérsniðið að þörfum fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum sem vilja vinna og þróa viðskiptahugmynd og ná fótfestu fyrir vöru eða þjónustu á erlendum markaði. Þátttakendur fá aðstoð við að gera raunhæfar áætlanir og hver og einn er búinn undir að hrinda viðskiptahugmynd sinni í framkvæmd.
Fulltrúar Samtaka iðnaðarins og Hátækni- og sprotavettvangs (HSV) funduðu á dögunum með forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráherra og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Tilgangur fundarins var að kynna HSV sem öflugan samstarfsvettvang, framtíðarsýn tækni- og hugverkagreina, verkefni tengd framtíðarsýninni, stöðu greinarinnar, farsæla uppbyggingu og tækifæri í tækni-og hugverkafyrirtækja.
Á ráðstefnunni 13Al+ sem haldin var í Arion Banka 28. ágúst sl. var litið til núverandi stöðu og framtíðar möguleika sem felast í framleiðslu á áli á Íslandi. Ráðstefnan var lokapunktur álverkefnisins 13Al+.
Fimmtudaginn 10. október verður stofnaður nýr vettvangur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi. Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök SA standa að stofnun vettvangsins þar sem smá fyrirtæki á Íslandi munu vinna saman óháð atvinnugreinum.
Það eru gömul sannindi og ný að hagur heimila og fyrirtækja er samtvinnaður. Það skiptir því miklu máli að rekstrarumhverfi fyrirtækja sé með þeim hætti að þau standi undir þeim lífskjörum og kaupmætti sem almenningur væntir og telur eðlilegan og sanngjarnan. Svana Helen Björnsdóttir, formaður SI og Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ skrifa í Fréttablaðið.
Námsvísir IÐUNNAR fræðsluseturs fyrir haustönn 2013 er kominn út. Yfir 140 spennandi námskeið eru í boði á haustönn.
Löggjöf um efnavörur hefur breyst mikið undanfarin ár. Segja má að aðferðafræði við hættumat efna hafi verið umturnað og nú er ábyrgð á áhættumati á hendi framleiðenda og innflytjenda en ekki stjórnvalda eins og áður var. Á fundi Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Umhverfisstofnunar, þann 5. september var rætt um upplýsingagjöf um efnavörur og skyldur þeirra sem framleiða, flytja inn eða selja efni.
Formenn og framkvæmdastjórar samtaka atvinnulífs og iðnaðar á Norðurlöndunum samþykktu á fundi í Reykjavík í gær að ráðast í sameiginlega úttekt á samkeppnishæfni Norðurlanda. Markmið úttektarinnar er að finna leiðir til að efla atvinnulíf í löndunum og bæta lífskjör fólks sem þar býr, en kraftmikið atvinnulíf er forsenda öflugrar norrænnar velferðar.
Landssamband bakarameistara (LABAK) og Matís kynna verðlaunabrauð LABAK. Brauðið er afrakstur keppni sem efnt var til meðal félagsmanna fyrr í sumar og var valið úr 11 innsendum brauðum. Höfundur uppskriftarinnar, Sigurður M. Guðjónsson Bernhöftsbakaríi tók við verðlaunum í húsakynnum Matís í gær þar sem viðstöddum gafst kostur á að smakka á brauðinu og kynna sér það nánar.
13Al+ kannar þá framtíðarmöguleika sem felast í framleiðslu á áli á Íslandi á ráðstefnu miðvikudaginn 28. ágúst kl. 13.00 - 17.00 í Arion Banka, Borgartúni 19.
Í júní 2013 birti Bertelsmann Foundation í Þýskalandi skýrslu um rannsókn á efnahagslegum áhrifum fyrirhugaðs fríverslunarsamnings milli Bandaríkjanna og ESB. Þar kemur fram að áhrif fríverslunarsamningsins á Ísland yrðu fremur neikvæð. Svana Helen Björnsdóttir fjallaði um rannsóknina í grein í Fréttablaðinu.