# Samtök Iðnaðarins

## Síður

- [Vaxtarsprotinn](https://www.si.is/um-okkur/sjodir-og-vidurkenningar/vaxtarsprotinn-1): Vaxtarsprotinn er afhentur þeim sprotafyrirtækjum sem sýna mestan vöxt í söluveltu milli síðasta árs og ársins á undan. Fyrsta viðurkenningin var afhent 2007.
- [Joining SI](https://www.si.is/english/joining-si): SI - The Federation of Icelandic Industries Unified we are strong. The voice of industry is heard when we speak with one voice. We represent industry in Iceland. We are listened to. A strong organisation influences the business environment of your company. We recognize your needs and you have easy access to specialized services in a number of areas. We give information and advice to our members. With us you have access to collaboration with other industrial companies in order to enhance your own business. We look after you interest in case you are unfairly treated. Application - Word-format Application - Online
- [Member organisations and occupational work groups](https://www.si.is/english/member-organisations-and-occupational-work-groups): Being a member of SI means that companies taka an active part in shaping their own future and working environment and influence the prioritisation of SI´s tasks in line with their own interests.
- [Publishing Issues](https://www.si.is/english/publishing-issues): News and information related to the interests of industry is communicated to members, the public and government agencies. We plan our work carefully and use the media we find best suited each time.
- [Employees](https://www.si.is/english/employees)
- [Administration](https://www.si.is/english/administration): Board of Directors 2026-2027
- [Persónuverndarstefna SI](https://www.si.is/um-okkur/stefnur-og-log/personuverndarstefna-si): Persónuverndarstefna Samtaka iðnaðarins (SI). Útskýrir hvaða persónuupplýsingum er safnað, hvernig þær eru nýttar og varðveittar, og hver réttindi einstaklinga eru samkvæmt persónuverndarlöggjöf.
- [Samkeppnisréttarstefna SI](https://www.si.is/um-okkur/stefnur-og-log/samkeppnisrettarstefna-si)
- [Lög Samtaka iðnaðarins](https://www.si.is/um-okkur/stefnur-og-log/log-samtaka-idnadarins)
- [Stefnur og lög](https://www.si.is/um-okkur/stefnur-og-log): Hér má finna helstu stefnur og lög sem gilda um starfsemi Samtaka iðnaðarins (SI) — þar á meðal lög samtakanna, samkeppnisréttarstefnu og persónuverndarstefnu. Þessi skjöl marka umgjörð um hlutverk, aðild og starfshætti SI, og tryggja fagleg og gagnsæ vinnubrögð gagnvart félagsmönnum og öðrum hagsmunaaðilum.
- [Alþjóðleg hagsmunagæsla - mikilvæg í breyttum heimi](https://www.si.is/idnadurinn/althjodleg-hagsmunagaesla)
- [Viðnámsþróttur - iðnaðurinn bakhjarl samfélagsins](https://www.si.is/idnadurinn/vidnamsthrottur): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir því að efla hæfni til að standast áföll og aðlagast breytingum. Viðnámsþróttur byggist á samstarfi.
- [Gervigreind - hreyfiafl næstu iðnbyltingar](https://www.si.is/idnadurinn/gervigreind): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir því að gervigreind verði nýtt sem hreyfiafl í mótun íslensks iðnaðar til framtíðar.
- [Þjónusta](https://www.si.is/um-okkur/thjonusta): Aðild að SI borgar sig. Fyrirtæki geta ýmist verið beinir aðilar að Samtökum iðnaðarins eða aðilar í gegnum starfsgreinahópa og aðildarfélög samtakanna. Undir hatti SI starfa hátt í 40 starfsgreinahópar og aðildarfélög.
- [Herferðir](https://www.si.is/um-okkur/herferdir): Samtök iðnaðarins nýta alla helstu fjölmiðla og samfélagsmiðla til að koma skilaboðum á framfæri um einstaka viðburði eða annað sem vekja þarf athygli á.
- [Menntun - öflugur mannauður og fleiri verðmæt störf​](https://www.si.is/idnadurinn/menntun): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í mannauð landsmanna þar sem stefnt er að því að menntakerfið leiði saman færni mannauðsins og þarfir atvinnulífsins á skilvirkan og hagkvæman hátt.
- [Orka og umhverfi - aukin raforka og græn iðnbylting](https://www.si.is/idnadurinn/orka-og-umhverfi): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í orku og umhverfi þar sem stefnt er að því að íslenskur iðnaður sé í fararbroddi í sjálfbærni og umhverfismálum og styðji við markmið þjóðarinnar um kolefnishlutleysi.
- [Sjóðir og viðurkenningar](https://www.si.is/um-okkur/sjodir-og-vidurkenningar): Samtök iðnaðarins koma að framkvæmd og styðja margskonar verkefni í samstarfi við aðra í þeim tilgangi að styðja fjölbreytt málefni sem varða hag íslensks iðnaðar.
- [Starfsfólk](https://www.si.is/um-okkur/starfsfolk)
- [Stjórn SI 2026-2027](https://www.si.is/um-okkur/stjorn-si)
- [Framfarasjóður Samtaka iðnaðarins](https://www.si.is/starfsemi-framfarasjodur-si)
- [Verðlaunasjóður iðnaðarins](https://www.si.is/starfsemi-verdlaunasjodur-idnadarins)
- [Administration](https://www.si.is/english-administration)
- [SI - The Federation of Icelandic Industries](https://www.si.is/english-about-si)
- [2024](https://www.si.is/hugmyndalandid)
- [IC information source](https://www.si.is/ic-information-source)
- [Innviðir á Íslandi 2025](https://www.si.is/malaflokkar-innvidir-innvidir-a-islandi-2025-e): Þriðja útgáfa af skýrslu SI og FRV um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi var gefin út 2025.
- [Innviðir á Íslandi 2021](https://www.si.is/malaflokkar-innvidir-innvidir-a-islandi-2021-e): SI og FRV hafa gefið út skýrslu um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi.
- [Innviðir (old)](https://www.si.is/idnadurinn/innvidir-1): Samtök iðnaðarins beitir sér fyrir umbótum í innviðum landsins þar sem stefnt er að því að innviðir séu í góðu ástandi og uppfylli þarfir atvinnulífs og almennings.
- [Útreikningur félagsgjalda til SI og SA](https://www.si.is/starfsemi-adild-reiknivel)
- [Starfsemi](https://www.si.is/starfsemi): Innan Samtaka iðnaðarins eru 1.700 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda. Þau eru mjög ólík innbyrðis, hvort sem litið er til stærðar, framleiðslu eða markaða.
- [Hugmyndalandið](https://www.si.is/starfsemi-hugmyndalandid)
- [Fyrir miðla](https://www.si.is/starfsemi-fyrir-midla): Hér er hægt að nálgast merki Samtaka iðnaðarins, fyrir prent- og vefmiðla auk hönnunarstaðal og ljósmyndir í hárri upplausn af stjórnendum og starfsstöðvum. Fjölmiðlum er heimilt að nota myndirnar í fjölmiðlum þegar fjallað er um Samtök iðnaðarins.
- [Fulltrúar SI í stjórnum og nefndum](https://www.si.is/starfsemi-fulltruar)
- [Fréttabréf SI](https://www.si.is/starfsemi-frettabref): Samtök iðnaðarins senda rafrænt fréttabréf með reglubundnum hætti til aðildarfyrirtækja.
- [Starfsreglur stjórnar](https://www.si.is/starfsemi-stjornir-og-rad-starfsreglur-stjornar): Hér má nálgast starfsreglur stjórnar SI.
- [Eldri stjórnir SI](https://www.si.is/starfsemi-stjornir-og-rad-eldri-stjornir-si): Stjórnir SI frá 1994.
- [Stefna Samtaka iðnaðarins](https://www.si.is/starfsemi-stefna): Við eflum íslenskan iðnað í þágu samfélagsins alls.
- [Saga Samtaka iðnaðarins](https://www.si.is/um-okkur/starfsemi-sagan): Samtök iðnaðarins voru stofnuð árið 1993 þegar sameinuð voru sex samtök.
- [Ársskýrslur](https://www.si.is/starfsemi-utgafumal-arsskyrslur): Hér er hægt að nálgast ársskýrslur SI í PDF formi.
- [Greiningar SI](https://www.si.is/starfsemi-utgafumal-greiningar)
- [About us](https://www.si.is/english): SI - the Federation of Icelandic Industries lead the reorganisation of the employers organisation. Our purpose is to rationalise business, increase collaboration between employers and clarify the role of each member. SI - the Federeation of Icelandic Industries is by far the largest member organisation of The Confederation of Icelandic Employers (SA).
- [Iðnaðurinn](https://www.si.is/idnadurinn): Innan Samtaka iðnaðarins eru fjölbreyttar greinar iðnaðar. Tækni- og hugverkaiðnaður, framleiðsluiðnaður, orkusækinn iðnaður og mannvirkjaiðnaður tilheyra samtökunum. Um 40 aðildarfélög og starfsgreinahópar eru innan Samtaka iðnaðarins.
- [Innviðir - grundvöllur fjárfestinga](https://www.si.is/idnadurinn/innvidir): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í innviðum landsins þar sem stefnt er að því að innviðir séu í góðu ástandi og uppfylli þarfir atvinnulífs og almennings.
- [Um okkur](https://www.si.is/um-okkur): Innan Samtaka iðnaðarins eru 1.700 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda. Þau eru mjög ólík innbyrðis, hvort sem litið er til stærðar, framleiðslu eða markaða.
- [Page - text (TBD)](https://www.si.is/starfsumhverfi/page-text-tbd): Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Donec congue posuere sapien, sit amet commodo augue dignissim at. Etiam non sem porta, lacinia dui sit amet, sollicitudin turpis. Aliquam lobortis, dui eget gravida luctus, eros magna finibus elit, at dignissim augue lacus in nulla. Phasellus sed sodales ipsum.
- [Nýsköpun - drifkraftur vaxtar](https://www.si.is/idnadurinn/nyskopun): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir eflingu nýsköpunarumhverfisins þar sem stefnt er að því að umgjörð og hvatar til nýsköpunar séu með því besta sem þekkist í heiminum.
- [Leit](https://www.si.is/leit)
- [Starfsumhverfi - skilvirkt, hagkvæmt og stöðugt](https://www.si.is/idnadurinn/starfsumhverfi): Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í starfsumhverfi fyrirtækja þar sem stefnt er að því að skilvirkt, hagkvæmt og stöðugt starfsumhverfi laði til landsins fjárfesta og fólk.
- [Stefna SI, hlutverk, sýn og gildi](https://www.si.is/stefna-si-hlutverk-syn-og-gildi): Stefna SI fjallar um áherslur í störfum samtakanna. Stefnumálin miða að því að efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar út frá þeim meginmálaflokkum sem mestu varða um framleiðniþróun og velmegun til framtíðar.
- [Félagatal](https://www.si.is/felagatal): Í Samtökum iðnaðarins eru 1.700 aðildarfyrirtæki og 40 aðildarsamtök einstakra starfsgreina. Hér er hægt að sækja um aðild að Samtökum iðnaðarins rafrænt. Aðildargjöld er hægt að reikna út hér . Fyrirspurnir um aðildarumsókn er hægt að senda á mottaka@si.is .
- [Miðlun](https://www.si.is/midlun): Samtök iðnaðarins láta til sín taka í öllum helstu málefnum íslensks iðnaðar. Samtökin eru kraftmikill málsvari íslensks iðnaðar og miðla því með öllum helstu boðleiðum.

## Aðildarfélög

- [Meistaradeild SI](https://www.si.is/meistaradeild-si): Tilgangurinn með Meistaradeild SI er að skapa öflugan þverfaglegan umræðuvettvang og auka samstarf félagsmanna í byggingargreinum innan Samtak iðnaðarins.
- [Samtök fyrirtækja í landbúnaði](https://www.si.is/samtok-fyrirtaekja-i-landbunadi): Samtök fyrirtækja í landbúnaði voru stofnuð í mars 2022. Samtök fyrirtækja í landbúnaði, SAFL , voru stofnuð í mars 2022. Samtökin gengu til liðs við Samtök iðnaðarins í febrúar 2024. Tilgangur SAFL er: Að efla ímynd og styrkja samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar. Að stuðla að hagkvæmni íslensks landbúnaðar og íslenskra landbúnaðarfyrirtækja. Að vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum í málum er snerta hagsmuni og réttindi félagsmanna. Að efla skilning og ímynd og stuðla að upplýstri umræðu um íslenskan landbúnað. Að taka þátt í alþjóðasamstarfi og gæta hagsmuna íslensks landbúnaðar á erlendum vettvangi. Að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna. Að styðja við nýsköpun og menntun tengda landbúnaði. Að vinna að eflingu rannsókna og sjálfbærni íslensks landbúnaðar. Vefsíða: https://safl.is/ Framkvæmdastjóri SAFL er Margrét Gísladóttir, margret@safl.is Tengiliður hjá SI: Sigurður Helgi Birgisson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sigurdurhelgi@si.is
- [Félag hársnyrtimeistara- og sveina í Reykjavík](https://www.si.is/meistarafelag-harsnyrtimeistara-og-sveina-i-reykjavik): Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík var stofnað 1999. Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík, FHMS, var stofnað 1999 og hét þá Meistarafélag hársnyrta. Í febrúar 2024 var félagið opnað fyrir hársnyrtisveina og nafni félagsins því breytt í Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík. Tilgangur félagsins er að: Efla samvinnu og samheldni meðal meistara í hársnyrtiiðn. Eiga samstarf við hliðstæð samtök erlendis. Leggja áherslu á að menntun starfsfólks og stjórnenda í greininni sé eins góð og kostur er og að hún stuðli að eðlilegri þróun og falli að þörfum greinarinnar. Stuðla að félagslegum og faglegum framförum í greininni með upplýsinga- og fræðslustarfsemi, sýningum og keppni. Vera málsvari félagsmanna út á við og varðandi mál sem varða hagsmuni þeirra og opinbera umfjöllun. Vefsíða félagsins: https://www.meistarafelagid.is/ Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is .
- [Samtök menntatæknifyrirtækja - IEI](https://www.si.is/samtok-menntataeknifyrirtaekja): Samtök menntatæknifyrirtækja vinna að hagsmunum og stefnumálum menntatæknifyrirtækja. Samtök menntatæknifyrirtækja (IEI) vinna að hagsmunum og stefnumótun fyrirtækja sem starfa í menntatækniiðnaði. Heiti samtakanna á ensku er Icelandic EdTech Industry (IEI). Samtökin voru stofnuð 23. nóvember 2022 og í þeim eru fyrirtæki sem öll starfa í ört vaxandi alþjóðlegum menntatækniiðnaði, sem er metinn á 24.000 milljarða króna með yfir 16% árlegum vexti. Menntatækni má almennt skipta í tvo meginflokka: Menntatækni fyrir skólastofnanir: lausnir sem bæta kennsluumhverfi kennara, námsgögnum, gæðamálum, inngildingu og hvatakerfum, lestri og stærðfræði. Menntatækni fyrir háskóla, fullorðinsfræðslu og fyrirtæki: Lausnir sem styðja við mannauðsmál, starfsþróun og námsgrunn innan háskóla og atvinnulífs. Þær ná meðal annars til inngildingar, kennslu í íslensku fyrir innflytjendur, utanumhalds um þekkingu og þjálfunar í gegnum leikjaumhverfi. Greinin á sér langa sögu á heimsvísu en er enn tiltölulega ung á Íslandi. Með aukinni nýtingu menntatækni má umbylta kennsluháttum og ná betri árangri í gæðamálum, hvatningu, læsi og stærðfræði. Markmið IEI er að efla hagsmuni og vaxtarskilyrði íslenskra menntatæknifyrirtækja og stuðla þannig að framgangi greinarinnar og íslensks menntakerfis í heild. Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is
- [Samtök íslenskra eldsneytisframleiðenda - SÍE](https://www.si.is/vetnis-og-rafeldsneytissamtokin): Tilgangur SÍE er að mynda öflugan faghóp fyrirtækja í vetnis- og rafeldsneytisstarfsemi gagnvart stjórnvöldum sem hvetur til stuðnings við rannsóknir, þróun og framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti. Samtök íslenskra eldsneytisframleiðanda, SÍE, sem áður hétu Vetnis- og rafeldsneytissamtökin voru stofnuð 18. nóvember 2021 og starfa sem starfsgreinahópur innan SI. Heiti samtakanna var breytt í maí 2026. Innan samtakanna eru fyrirtæki sem vinna að þróun og markaðssetningu á grænni tækni með framleiðslu og/eða tækniþróun er viðkemur vetni og rafeldsneyti. Samtökin er vettvangur fyrir aðila í þessum geira til að vinna að framþróun þessara mála og læra hver af öðrum, byggja upp tengslanet og nýta sér tengslanet hvors annars um leið og mótuð er skýr ásýnd á græna eldsneytisframleiðslu hér á landi, hvort sem um er að ræða framleiðslu á innlenda notkun eða til útflutnings á eldsneyti eða hugviti á því sviði. Áherslurnar liggja á mörgum sviðum: markaðsmálum, mennta- og upplýsingamálum, fjármögnun og styrkjaumhverfi, þátttöku í alþjóðlegu starfi og að vera stjórnvöldum innan handar við stefnumótun. Að sama skapi eru samtökunum ætlað að veita stjórnvöldum aðhald þegar kemur að laga- og reglusetningu sem og innleiðingu á alþjóðlegum reglum og stöðlum á sviði eldsneytisframleiðslu. Hér er hægt að nálgast fundargerð stofnfundar 18. nóvember 2021. Tengiliður hjá SI: Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sigurdurhelgi@si.is .
- [Meistarafélag byggingariðnaðarmanna í Vestmannaeyjum](https://www.si.is/meistarafelag-byggingaridnadarmanna-i-vestmannaeyjum): Meistarafélag byggingariðnaðarmanna í Vestamannaeyjum var stofnað 1972. Stofnfundur Meistarafélags byggingariðnaðarmanna í Vestmannaeyjum var haldinn mánudaginn 14. febrúar 1972 í Kiwanis-húsinu. Til fundarins voru boðaðir meistarar í byggingariðnaði þeir er með sjálfstæðan atvinnurekstur fara. Undirbúningsnefnd sem starfaði að stofnun félagsins boðaði til fundarins en í henni voru Hjörleifur Guðmarsson, Magnús Helgason, Einar Erlendsson og Garðar Björgvinsson. Formaður Meistarafélags byggingariðnaðarmanna í Vestmannaeyjum er Sigurður Oddur Friðriksson, húsasmíðameistari, sigurdur.o.f@gmail.com s. 6993367 og varaformaður er Þorsteinn Finnbogason, pípulagningameistari, steinipipari@simnet.is s. 8943473. Tengiliður hjá SI: Þorgils Helgason , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is . Hér er hægt að nálgast lög félagsins sem samþykkt voru 25. september 2017.
- [Múrarameistarafélag Reykjavíkur, MM](https://www.si.is/murarameistarafelag-reykjavikur-mm): Múrarameistarafélag Reykjavíkur var stofnað 18. mars 1933. Undirbúningsfundur að stofnun Múrarameistarafélags Reykjavíkur var haldinn 9. febrúar 1933 og sóttu hann 22 þeirra 28 múrarameistara, sem þá störfuðu í Reykjavík. Skoðanir voru nokkuð skiptar um félagsstofnunina, en ákveðinn kjarni var ákveðinn. Boðað var til stofnfundar 18. mars 1933. Þar voru félagslög samþykkt og kosin fyrsta stjórn Múrarameistarafélagsins. Sérstök laganefnd hafði setið að stórfum fyrir fundinn. Stofnendur voru 16 talsins. Eitt fyrsta verk nýkjörinnar stjórnar var að staðfesta samning við sveina um verkaskiptingu. Samningur þessi kvað á um skyldur beggja málsaðila. Sveinar skuldbundu sig til að vinna undir stjórn meistara og að bjóða ekki í byggingar og múrvinnu að undanskildum viðgerðum sem kostuðu 50 krónur eða lægri upphæð. Meistarar skuldbundu sig til að nota einvörðungu meðlimi sveinafélagsins til þeirra verka sem nefnd voru í verðskrá félagsins og einnig að vinna aðeins sem verkstjórar við múrverk. Samningurinn var undirritaður 22. apríl 1933 og tók þegar gildi. Hann tryggði báðum félögum og meðlimum þeirra starfsgrundvöll. Vefsíða MM: www.murarameistarar.is Tengiliður hjá SI: Íris Gunnarsdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, iris@si.is .
- [Meistarafélag byggingamanna Suðurnesjum, MBS](https://www.si.is/meistarafelag-byggingamanna-sudurnesjum-mbs): MBS er félag iðnmeistara á Suðurnesjum. Félagsmenn koma úr öllum greinum byggingariðnaðarins. Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum var stofnað 3. desember árið 1971. Félagið gekk til liðs við Samtök iðnaðarins árið 2013. Með tilkomu MBS starfa nú nær öll samtök atvinnurekenda í byggingariðnaði sameinuð undir merkjum Samtaka iðnaðarins. Vefsíða MBS: www.mb.is Tengiliður hjá SI: Kristján Daníel Sigurbergsson , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, kristjan@si.is .
- [Samtök skipaiðnaðarins - SSI](https://www.si.is/samtok-skipaframleidenda): Tilgangur SSI er að vinna að hugsmuna- og stefnumálum félagsmanna Stofnfundur Samtaka skipaiðnaðarins - SSI - fór fram 12. desember, 2014 í Húsi atvinnulífsins. SSI starfar sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Á stofnfundinum var formaður kjörinn Þröstur Auðunsson hjá Trefjum og varformaður Sverrir Bergsson í Seiglu. Aðrir í stjórn og varastjórn voru kjörnir Ari Elísson hjá Víkingbátum, Regin Grímsson hjá Mótun og Andri Þór Gunnarsson hjá Infuse ehf. Fyrir stofnfund samtakanna hafði átt sér stað þónokkur stefnumótunarvinna. Í því ferli kom fram lýsing á þeim árangri sem fyrirtæki í greininni vilja ná til ársins 2020 og hvaða forsendur þurfa að vera fyrir hendi til að sá árangur náist Tengiliður hjá SI: Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gudnyh@si.is
- [Samtök rafverktaka, Sart](https://www.si.is/samtok-rafverktaka-sart): Samtök rafverktaka eru samtök fyrirtækja í rafiðnaði. Stefna samtakanna er að veita félagsmönnum sínum margvíslega þjónustu og fyrirgreiðslu um hvað eina er snýr að atvinnurekstri og að vera málsvari þeirra gagnvart almenningi og opinberum aðilum. Rafiðnaður er vettvangur fagfólks og fyrirtækja sem virkja og nýta rafmagnið til að gera okkur lífið auðveldara frá degi til dags. Til þess að það gangi upp þarf áræðni, öryggi og fagmennska að fara saman. Rafiðnaðarmaðurinn sinnir hinum fjölbreyttu og krefjandi störfum í rafiðnaði. Í greininni eru gerðar miklar tæknilegar kröfur og í fáum greinum fleygir tækninni jafn hratt fram. Rafiðnaðurinn heyri undir löggiltar iðngreinar sem ávallt skulu reknar undir handleiðslu meistara. Vefsíða: www.sart.is Tengiliður hjá SI: Kristján Daníel Sigurbergsson , framkvæmdastjóri Sart, kristjan@si.is . Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar um rafmagn. Eftirtalin félög eru aðildarfélög Sart: Félag rafverktaka á Vesturlandi Félag rafverktaka á Vestjörðum Félag rafverktaka á Norðurlandi Félag rafverktaka á Austurlandi Félag rafverktaka á Suðurlandi Rafverktakafélag Suðurnesja Félag rafeindatæknifyrirtækja
- [Samtök arkitektastofa, SAMARK](https://www.si.is/arkitektar): Arkitektar koma að ráðgjöf við nær alla þætta umhverfis-, skipulags- og byggingamála. Samtök arkitektastofa voru stofnuð árið 1998. Fyrirtæki starfandi á sviði arkitektúrs, landslagsarkitektúrs, skipulags og umhverfismótunar geta sótt um aðild að samtökunum. Tilgangur SAMARK er að gæta hagsmuna félagsmanna, efla samkeppnishæfni og stuðla að bættum starfsskilyrðum innan greinarinnar. Tengiliður hjá SI: Íris Gunnarsdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, iris@si.is .
- [Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda - SÍK](https://www.si.is/samband-islenskra-kvikmyndaframleidenda-sik): Tilgangur SÍK, er að vinna að því að efla íslenska kvikmyndagerð og gæta hagsmuna og réttar sjálfstæðra kvikmyndaframleiðenda. Félagið kemur fram fyrir hönd aðildarfélaga gagnvart stjórnvöldum, menningarstofnunum, fjölmiðlum og öðrum félagasamtökum. Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, er samband sjálfstæðra íslenskra kvikmyndaframleiðenda sem framleiða allar gerðir kvikmynda. Heimili og varnarþing SÍK er í Reykjavík. Enskt heiti félagsins er Association of Icelandic Film Producers. SÍK gekk til liðs við Samtök iðnaðarins 2013. Tilgangur félagsins er að efla íslenska kvikmyndagerð og gæta hagsmuna og réttar sjálfstæðra kvikmyndaframleiðenda. Félagið kemur fram fyrir hönd aðildarfélaga gagnvart stjórnvöldum, menningarstofnunum, fjölmiðlum og öðrum félagasamtökum. Til að ná fram markmiðum sínum getur félagið leitað eftir samstarfi við félög kvikmyndaframleiðenda erlendis og önnur fagfélög í kvikmyndagerð heima og erlendis. Vefsíða: www.producers.is Tengiliðir hjá SI: Gunnar Sigurðarson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gunnar@si.is
- [Félag ráðgjafarverkfræðinga, FRV](https://www.si.is/felag-radgjafarverkfraedinga-frv): Ráðgjafarverkfræðingar hafa með höndum víðtæka starfsemi á sviði verkfræði, ráðgjafar, stjórnunar, hönnunar og verkefnastjórnunar svo fátt eitt sé nefnt. Félag ráðgjafarverkfræðinga er hagsmunafélag verkfræðistofa á Íslandi. Helsta markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og stuðla að bættum starfsskilyrðum og samkeppnishæfni þeirra. Félagið var stofnað árið 1961 en gekk til liðs við Samtök iðnaðarins árið 2013. Sökum eðlis starfseminnar hafa ráðgjafarverkfræðingar snertiflöt við nánast allt atvinnulíf og framkvæmdir í landinu. Tengiliður hjá SI: Íris Gunnarsdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, iris@si.is .
- [Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara](https://www.si.is/felag-duklagninga-og-veggfodrarameistara): Dúklagnir og veggfóðrun eru iðnir sem spanna vítt svið Saga veggfóðrunar í Reykjavík nær aftur til upphafs 19. aldar. Dúklagnir komu síðan til sögunnar upp úr 1910. Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara var stofnað í Reykjavík árið 1928. Félagið gekk til liðs við Samtök iðnaðarins árið 2011. Vefsíða Félags dúklagninga- og veggfóðrarameistara: www.dukur.is Tengiliður hjá SI: Íris Gunnarsdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, iris@si.is .
- [Meistarafélag húsasmiða, MFH](https://www.si.is/meistarafelag-husasmida-mh): Allt frá stofnun hagsmunafélags húsasmiða og fram til dagsins í dag hafa störf húsasmiða verið einkar fjölbreytt. Sérþekking húsasmiða er mikilvæg í dag sem aldrei fyrr, og mun halda áfram að vera lykilþáttur í áframhaldandi uppbyggingu íslensks samfélags. Húsasmiðir komu á fót hagsmunafélagi árið 1904 með stofnun Trésmíðafélags Reykjavíkur. Árið 1954 áttu sér stað þáttaskil þegar félagið skiptist í tvær sveitir, sveina og meistara. Varð þá Meistarafélag húsasmiða formlega til þann 4. júní 1954. Félagið gekk til liðs við Samtök iðnaðarins árið 2012 og er aðili að Meistaradeild Samtaka iðnaðarins og Ábyrgðarsjóði MSI. Vefsíða MFH: http://www.mfh.is/ Tengiliður hjá SI: Katrín Pétursdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, katrin@si.is .
- [Samál](https://www.si.is/samal): Samtök álframleiðenda á Íslandi (Samál) eru hagsmunasamtök álfyrirtækja á Íslandi, stofnuð þann 7. júlí 2010. Markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og efla upplýsingastreymi og fræðslu um áliðnaðinn. Aðilar að Samtökum álframleiðenda geta orðið allir íslenskir álframleiðendur. Félagsmenn þurfa jafnframt að vera aðilar að Samtökum iðnaðarins. Stofnfélagar Samáls eru þrjú álframleiðslufyrirtæki; Rio Tinto á Íslandi hf., Norðurál ehf. og Alcoa Fjarðaál sf. Vefsíða Samáls: www.samal.is Tengiliður hjá SI: Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gudnyh@si.is
- [Samtök leikjaframleiðenda - IGI](https://www.si.is/samtok-leikjaframleidenda-igi): Tilgangur IGI er að vera öflugur vettvangur leikjaframleiðenda þar sem öll leikjafyrirtæki landsins koma saman og vinna að því að gera Ísland áhugavert staðarval fyrir leikjaframleiðendur á alþjóðlegum markaði IGI er vettvangur leikjaframleiðenda þar sem leikjafyrirtæki landsins koma saman og vinna að því að skapa framúrskarandi og samkeppnishæft umhverfi fyrir leikjagerð IGI er ætlað að vera samráðsvettvangur leikjafyrirtækja á Íslandi sem vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum greinarinnar. Sem dæmi má nefna eflingu nýsköpunarumhverfisins, tengsl við skóla og atvinnulíf, aukið samstarf hagsmunaaðila, þekkingarmiðlun á milli aðildarfyrirtækja auk þess að stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi í leikjaiðnaði. IGI veitir stjórnvöldum stuðning þegar kemur að stefnumörkun og reglusetningu með umsögnum og virku samtali. IGI voru stofnuð 25. september 2009 af tíu leikjafyrirtækjum. Samtökin fara reglulega í stefnumótun, þar sem áhersluverkefni eru skilgreind og þeim fundinn farvegur til frekari uppbyggingar á iðnaðnum. IGI starfar sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Vefsíða IGI: https://igi.is/ Tengiliður hjá SI: Freyr Friðfinnsson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, freyr@si.is .
- [Úrgangur og endurvinnsla](https://www.si.is/urgangur-og-endurvinnsla): Endurvinnsluiðnaður er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og víðar. Með aukinni áherslu á flokkun úrgangs, endurnýtingu og endurvinnslu hafa skapast tækifæri til að byggja upp starfsemi sem nýtir það hráefni sem til fellur á heimilum landsmanna og hjá fyrirtækjum. Nokkur fyrirtæki í þessum hópi vinna við flokkun og meðhöndlun úrgangs, önnur við endurvinnslu en stærsti hluti fyrirtækja í þessum hópi eru söfnunar- og gámaþjónustufyrirtæki. Mikil tækifæri skapast fyrir þá starfsemi þegar sveitarfélögin draga sig út úr söfnun á úrgagni. Rétt er að taka fram að fjölmörg önnur fyrirtæki stunda endurnýtingu og endurvinnslu samtvinnaða annarri kjarnastarfsemi. Má þar nefna gúmmí- og plastiðnað og málmsteypur. Meðhöndlun sorps er eitt af stærstu umhverfismálunum sem við stöndum nú frammi fyrir. Á um áratug hefur orðið bylting í úrgangsmálum Íslendinga. Fyrsta skrefið var að hverfa frá því að fleygja öllu í sömu holuna, og moka yfir eða kveikja í, yfir í að byggja upp stranglega vöktuð urðunarsvæði og háhitabrennslur. Næstu áskoranir felast í að minnka úrgang sem er eytt og nýta hann til annarrar framleiðslu. Til að það sé mögulegt þarf að flokka úrgang. Löggjöf á þessu sviði er orðin nokkuð umfangsmikil. Meðal þess, sem þar er sett fram, eru markmið um að hér á landi skuli endurvinna eða endurnýta ákveðið magn af tilteknum úrgangi. Stjórnvöld setja þessi markmið en ljóst er að þau nást ekki nema með samstarfi þeirra við sveitarfélög og atvinnulífið. Samtök iðnaðarins og atvinnurekendur í þessum geira taka virkan þátt í þessari vinnu, m.a. með samstarfi við Úrvinnslusjóð og með starfi í fagfélaginu FENÚR. Tengiliður hjá SI: Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gudnyh@si.is .
- [Meistarafélag Suðurlands, MFS](https://www.si.is/meistarafelag-sudurlands-mfs): Meistarafélag Suðurlands er félag meistara og fyrirtækja í löggiltum byggingargreinum á Suðurlandi, í Árnes- Rangárvalla- og Vestur - Skaftafellssýslu. Félagsmenn eru aðallega í byggingariðnaði. Markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og stuðla að faglegum vinnubrögðum í greininni. Félagið vinnur meðal annars að aukinni menntun, verkkunnáttu og vandvirkni í byggingariðnaði og er félagsmönnum til aðstoðar í öllu sem viðkemur atvinnurekstri þeirra. Meistarafélag Suðurlands hefur komið sér upp sinni eigin gæðahandbók. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að Samtökum iðnaðarins ásamt öllum helstu bygginga- og verktakafyrirtækjum landsins Vefsíða MFS: www.mfs.is Tengiliður hjá SI: Þorgils Helgason , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is
- [Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði, MIH](https://www.si.is/meistarafelag-idnadarmanna-i-hafnarfirdi-mih): Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði er fagfélag löggiltra iðnmeistara í byggingariðnaði. Félagið var stofnað 1968 og félagsmenn eru vel á annað hundrað úr sjö greinum: húsasmíðameistarar, múrarameistarar, málarameistarar, pípulagningameistarar, húsgagnasmíðameistarar, dúklagningameistarar, blikksmíðameistarar, rafvirkjameistarar og vélvirkjameistarar. Félagið hefur það meðal annars að markmiði að efla samstarf milli aðildarfélaga og gæta hagsmuna þeirra almennt, að efla menntun, verkkunnáttu og verkvöndun í byggingariðnaði, sem og að leiðbeina félögum og vera þeim til aðstoðar í öllu því er viðkemur atvinnurekstri þeirra. Meistarafélagið er aðili að Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins og Menntafélagi byggingariðnaðarins til að markmið þess náist sem best. Sú aðild auk reksturs skrifstofu tryggir félagsmönnum aðgang að öflugu upplýsinganeti og margvíslegri þjónustu. Vefsíða MÍH: www.mih.is Tengiliður hjá SI: Þorgils Helgason , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is .
- [Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi, MBN](https://www.si.is/meistarafelag-byggingamanna-a-nordurlandi-mbn): Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi er félag meistara og fyrirtækja í löggiltum byggingargreinum á Norðurlandi. Félagsmenn eru aðallega í byggingariðnaði. Markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og stuðla að faglegum vinnubrögðum í greininni. Félagið vinnur meðal annars að aukinni menntun, verkkunnáttu og vandvirkni í byggingariðnaði og er félagsmönnum til aðstoðar í öllu sem viðkemur atvinnurekstri þeirra. Meistarafélag Norðurlands hefur komið sér upp sinni eigin gæðahandbók. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að Samtökum iðnaðarins sem eru heildarsamtök iðnaðarins í landinu með rúmlega 1300 fyrirtæki innan sinna raða, bæði stór og smá, þar á meðal öll helstu bygginga- og verktakafyrirtæki landsins. Vefsíða félagsins: www.mbn.is Tengiliður hjá SI: Katrín Pétursdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, katrin@si.is .
- [Málarameistarafélagið](https://www.si.is/malarameistarafelagid): Málarameistarafélag Reykjavíkur var stofnað þann 26. febrúar 1928 í baðstofu iðnaðarmanna við Vonarstræti. Stofnfélagar voru 16 að tölu. Tilgangur félagsins skyldi m.a. vera að efla samvinnu meðal málarameistara og stuðla að menningu og menntun stéttarinnar, gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna og vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi og hinu opinbera. Þessi atriði eru í fullu gildi enn þann dag í dag og má því segja að frumherjarnir hafi skynjað þann tilgang sem svona félag þyrfti að hafa með höndum. Og í dag njótum við góðs af störfum þessara félaga okkar og erum þeim innilega þakklátir fyrir. Nánari upplýsingar um Málarameistarafélagið eru á vefsíðu félagsins www.malarar.is Tengiliður hjá SI: Þorgils Helgason , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is .
- [Samtök innviðaverktaka](https://www.si.is/felag-vinnuvelaeigenda-1-e): Samtök innviðaverktaka hafa það hlutverk að stuðla að bættu starfsumhverfi innviðaverktaka. Samtökin innviðaverktaka voru stofnuð árið 1953 og hétu til ársins 2024 Félag vinnuvélaeigenda. Samtökin hafa átt aðild að Samtökum iðnaðarins frá stofnun þeirra árið 1993. Hlutverk Samtaka innviðaverktaka er að stuðla að bættu starfsumhverfi innviðaverktaka, vera sterkur málsvari félagsmanna, upphefja ímynd greinarinnar og tryggja öflugt alþjóðlegt samstarf við systursamtök. Samtökin hafa það að leiðarljósi að gott starfsumhverfi innviðaverktaka geri þeim kleift að mæta þarfri innviðauppbyggingu á heilbrigðum útboðs- og verktakamarkaði. Vefsíða samtakanna: samtokinnvidaverktaka.is Tengiliður hjá SI: Katrín Pétursdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, katrin@si.is .
- [Félag skrúðgarðyrkjumeistara](https://www.si.is/felag-skrudgardyrkjumeistara): Félag skrúðgarðyrkjumeistara gerðist aðili að Samtökum iðnaðarins árið 2003. Félagið leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og þjónustu við viðskiptavini ásamt fræðslu og endurmenntun fyrir félagsmenn. Félag skrúðgarðyrkjumeistara var stofnað 1967. Félagið var stofnað úr Garðyrkjuverktakafélagi Íslands í samvinnu við Félag garðyrkjumanna. Þessi félög höfðu þá unnið að því í sameiningu að fá skrúðgarðyrkju samþykkta sem lögfesta iðngrein. Erindi var tekið fyrir á iðnþingi 1966 og eftir miklar umræður varð niðurstaðan með 45 atkvæðum gegn 21 að samþykkja álit þess efnis að mælt yrði með því að skrúðgarðyrkja yrði löggild iðngrein. Ráðuneyti samþykkti svo umsókn félaganna um löggildingu fagsins 1967. Í grein í Vísi 1968 er sagt frá stofnun félagsins og almenningur varaður við réttindalausum mönnum. Það er málefni sem Félag skrúðgarðyrkjumeistara hefur unnið að í gegnum tíðina, að sýna fólki kosti þess að versla við faglærða aðila. Skrúðgarðyrkjumeistarar eru ýmist með eigin rekstur eða vinna hjá opinberum aðilum. Rétt til inngöngu í félagið hafa þeir sem lokið hafa meistaraprófi í skrúðgarðyrkju. Árið 2006 var ákveðið að gera sveinum einnig kleift að ganga í félagið og hafa nokkrir nýtt það tækifæri til að taka þátt í starfi félagsins. Í félaginu eru bæði einstaklingar og fyrirtæki og helsta markið þess er að hlúa að faginu og stuðla að fagmennsku. Tengiliður hjá SI: Katrín Pétursdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, katrin@si.is .
- [Mannvirki - félag verktaka](https://www.si.is/mannvirki-felag-verktaka-3718-e): Mannvirki gætir hagsmuna jarðvinnu- og byggingarverktaka Mannvirki – félag verktaka er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins sem hefur það að markmiði að gæta hagsmuna jarðvinnu- og byggingarverktaka. Tengiliður hjá SI: Katrín Pétursdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, katrin@si.is .
- [Prentiðnaður](https://www.si.is/prentidnadur): Prentfyrirtæki eru hátæknivædd þjónustufyrirtæki og hafa fáar starfsgreinar á undanförnum árum gengið í gegnum jafn stórstígar breytingar á tækni og prentiðnaðurinn. Innan SI starfar starfsgreinahópur fyrirtækja í prent- og pappírsiðnaði. Prent- og pappírsiðnaður er umhverfisvænn og sjálfbær Pappírsiðnaðurinn er leiðandi á heimsvísu í sjálfbærum aðföngum, endurnýjanlegri orku og hlutfalli endurvinnslu. Íslensk prentfyrirtæki eru brautryðjendur í umhverfismálum, nota virt vottunarkerfi sem nær til allrar aðfangakeðjunnar, nýta endurnýjanlega orku og stuðla að umhverfisvænni framleiðslu. Síðustu ár hefur orðið aukin vakning meðal almennings um sjálfbærni og umhverfisvernd. Í þeirri umræðu er mikilvægt að almenningur og stjórnvöld séu upplýst um framleiðsluferli atvinnugreina og umhverfisáhrif þeirra. Pappír sem hefur hlotið vottun stuðlar að ræktun heilbrigðra nytjaskóga sem binda kolefni og vega þannig á móti loftslagsáhrifum. Með því að velja innlenda prentsmiðju tekur neytandinn þannig ábyrga afstöðu með umhverfisvænni framleiðslu, minnkun kolefnisspors og styður jafnframt við íslenskt atvinnulíf. Tengiliður hjá SI: Gunnar Sigurðarson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gunnar@si.is . Rannsóknir Efla hefur gefið út skýrslur um rannsóknir á kolefnisspori prentiðnaðarins á Íslandi. Skýrslurnar eru gefnar út í maí 2024. Hér er hægt að nálgast skýrslu Eflu um kolefnisspor fyrir bók. Hér er hægt að nálgast skýrslu Eflu um kolefnisspor fyrir öskju. Fræðslurit Sleggjudómar og staðreyndir um pappír og prent er fræðslurit gefið út í samstarfi Iðunnar fræðsluseturs, Samtaka iðnaðarins, Grafíu og pappírsinnflytjenda. Stuðst er við rannsóknir Alþjóðaefnahagsþingsins og kynningarefni frá alþjóðlegu samtökunum Two Sides sem hafa það að markmiði að upplýsa um sjálfbærni pappírs- og prentiðnaðar. Sleggjudómar og staðreyndir um pappír og prent Greinar Er stefna hins opinbera að útrýma einum umhverfisvænasta iðnaði landsins? Arnaldur Þór Guðmundsson, ViðskiptaMogginn, 29. maí 2024. Íslenskir styrkir efla erlendar prentsmiðjur , Kristjana Guðbrandsdóttir og Georg Páll Skúlason, Morgunblaðið, 16. maí 2024 Pappírsframleiðendur hafa leitt baráttu fyrir margföldun nytjaskóga í rúma öld , Hörður Kristjánsson, 1. desember 2021 Léttum kolefnissporið, prentum innanlands , Kristjana Guðbrandsdóttir, Guðrún Birna Jörgensen og Georg Páll Skúlason, Vísir 28. ágúst 2020 Ef bókin hefði verið fundin upp í gær , Kristjana Guðbrandsdóttir, Morgunblaðið 11. maí 2020 Bækur, hvað skal segja? Andri Snær Magnason, Prentarinn í apríl 2020 Vottanir Svansmerkið Svansmerkið FSC – Sjálfbær skógræktun FSC er vottun um að ekki séu felld fleiri tré en skógurinn nær að endurnýja. Vottunin tryggir verndun dýra- og plöntulífs undir eftirliti vísindamanna. Vottunin tryggir að regluverk um öryggi starfsmanna skógræktarinnar sé framfylgt og að þeim sé veittur viðeigandi búnaður og laun. Evrópublómið EU Ecolabel er umhverfismerking Evrópusambandsins á vörum og þjónustu. Blómið sýnir að framleiðslan er viðurkennd og skrásett samkvæmt nákvæmu ferli sem snýr að áhrifum vörunnar á umhverfi sitt, allt frá hráefnum til affalls. ISO 14001 ISO 14001 staðallinn setur fram kröfur sem nauðsynlegt er að umhverfisstjórnunarkerfi uppfylli til þess að hljóta vottun. Með innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis í samræmi við kröfur staðalsins sýna fyrirtæki og stofnanir fram á að þau taki umhverfismál alvarlega, að þau beri samfélagslega ábyrgð á umhverfismálum sínum og að unnið sé að stöðugum umbótum á umhverfismálum. Cradle to Cradle Cradle to Cradle umhverfisvottunin er gefin út fyrir fyrirtæki sem hafa engin neikvæð umhverfisáhrif í framleiðslu sinni og gengur þannig lengra en aðrar vottanir sem lágmarka neikvæð áhrif á náttúru og umhverfi. Cradle to Cradle vottun tryggir að ekkert fari til spillis og úrgangur sem fellur til sé nýttur til hins ýtrasta. Enginn klór er nýttur til framleiðslunnar. Notaður er FSC vottaður pappír og vatnsnotkun er í lágmarki. Allir framleiðsluferlar eru hannaðir þannig að hráefni, orka og vatn eru nýtt á umhverfisvænan hátt. Varan er fullkomlega niðurleysanleg í náttúrunni.
- [Tannsmiðafélag Íslands, TÍ](https://www.si.is/tannsmidafelag-islands-ti): Tannsmiðafélag Íslands hefur það meðal annars að markmiðum að stuðla að samvinnu meðal tannsmiða í landinu, efla og vernda hagsmuni tannsmiða og réttindi þeirra og gæta faglegra og félagslegra hagsmuna iðngreinarinnar. Tannsmiðafélag Íslands var stofnað 15. maí 2003 með sameiningu tveggja eldri félaga tannsmiða. Tannsmiðum þótt hag sínum betur borgið í einu félagi og vildu vinna saman að hagsmuna- og framfaramálum. Þennan dag voru aðalfundir félaganna haldnir samtímis að Hallveigarstíg 1 og í framhaldi af því að hvort félag um sig samþykkti sameiningu var gengið til stofnfundar nýs félags. Var eftir því tekið að sameining var samþykkt án mótatkvæða í báðum félögum. Á stofnfundinum urðu mestar umræður um hvert skyldi vera heiti hins nýja félags. Nauðsynlegt reyndist að knýja fram úrslit með atkvæðagreiðslu og varð niðurstaðan sú að félagið heitir Tannsmiðafélag Íslands eins og hið eldra af fyrri félögunum tveimur. Á aðalfundi 2005 var kosið um nýtt merki félagsins að undangenginni hugmyndasamkeppni meðal félagsmanna. Félagar eru um áttatíu, flestir sjálfstæðir atvinnurekendur eða einyrkjar. Meginmarkmið félagsins eru að: stuðla að kynnum og samvinnu meðal tannsmiða í landinu, efla og vernda hagsmuni þeirra og réttindi, gæta faglegra og félagslegra hagsmuna iðngreinarinnar, stuðla að menntun og endurmenntun tannsmiða. Tengiliður hjá SI: Sigurður Helgi Birgisson , viðskiptastjóri á iðanaðar- og hugverkasviði SI, sigurdurhelgi@si.is .
- [Ljósmyndarafélag Íslands](https://www.si.is/ljosmyndarafelag-islands-2210-e): Samstarfsvettvangur allra starfandi ljósmyndara á Íslandi Ljósmyndun er löggilt iðngrein. Starfsvettvangur ljósmyndara er fjölbreyttur og á mörgum sviðum sérhæfður. Á ljósmyndastofum eru teknar hefðbundnar portrett myndir, barna- og fjölskyldumyndir, passamyndir o.fl. Myndir dagblaða og tímarita eru teknar af fagljósmyndurum á því sviði og auglýsinga- og iðnaðarljósmyndarar sérhæfa sig í framleiðslu hágæða myndefnis til notkunar m.a. á umbúðir, í auglýsingar og kynningarefni eða til annarra nota fyrir stofnanir og fyrirtæki landsins. Ljósmyndarafélag Íslands er fagfélag greinarinnar og samstarfsvettvangur allra fagmenntaðra ljósmyndara í landinu. Markmið félagsins er að efla samvinnu félagsmanna, stuðla að símenntun í greininni og tryggja árangur þeirra á markaði. Vefsíða félagsins: www.ljosmyndarafelag.is Tengiliður hjá SI: Sigurður Helgi Birgisson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sigurdurhelgi@si.is .
- [Klæðskera- og kjólameistarafélagið](https://www.si.is/klaedskera-og-kjolameistarafelagid-10033-e): Klæðskera- og kjólameistarafélagið hefur að markmiði að efla samvinnu félagsmanna, tryggja árangur þeirra á markaði og stuðla að símenntun í greininni. Fataiðn er löggild iðngrein. Meistarar í greininni bjóða neytendum alhliða þjónustu í hönnun og framleiðslu á hverskyns fatnaði til daglegra nota – ásamt samkvæmisfatnaði, yfirhöfnum, vinnufatnaði og fleiru – sérsniðið að þörfum hvers og eins. Tilgangur Klæðskera- og kjólameistarafélagsins á Íslandi er að efla samvinnu félagsmanna, stuðla að símenntun í greininni og tryggja árangur þeirra á markaði. Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is .
- [Félag íslenskra snyrtifræðinga](https://www.si.is/felag-islenskra-snyrtifraedinga-10032-e): Félag íslenskra snyrtifræðinga er fagfélag sem flestar snyrtistofur landsins eru aðilar að. Markmið félagsins er að viðhalda menntun snyrtifræðinga og faglegu starfi landsmönnum til góða. Snyrtifræði er löggild iðngrein. Menntun snyrtifræðinga tryggir neytendum faglega ráðgjöf og sérhæfða meðhöndlun andlits og líkama með heilbrigði og vellíðan í huga fyrir konur og karla. Snyrtifræðingar snyrta meðal annars hendur og fætur og þeir lita, plokka og farða einstaklinga fyrir öll tækifæri. Að auki bjóða þeir upp á fjölda sérhæfðra meðferða og veita ráðgjöf um notkun á snyrtivörum. Snyrtifræðingar meðhöndla ýmis húðvandamál ásamt því að viðhalda eðlilegri starfsemi heilbrigðrar húðar. Eftir nákvæma greiningu húðar sérsníða þeir meðferð að þörfum hvers og eins. Félag íslenskra snyrtifræðinga er fagfélag sem flestar snyrtistofur landsins eru aðilar að. Markmið félagsins er að viðhalda menntun snyrtifræðinga og faglegu starfi landsmönnum til góða. Vefsíða félagsins: fisf.is Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is .
- [Félag íslenskra gullsmiða](https://www.si.is/felag-slenskra-gullsmida-10029-e): Markmið félagsins er að standa vörð um réttindi íslenskra gullsmiða, viðhalda menntun þeirra og stuðla að þróun og nýsköpun í greininni. Gullsmíði er löggilt iðngrein. Fagleg menntun íslenskra gullsmiða og metnaður þeirra í hönnun og smíði skartgripa, tækifærisgjafa og annarra hluta úr eðalmálmum, demöntum og íslenskum steinum er mikil gæðatrygging fyrir íslenska neytendur. Félag íslenskra gullsmiða er fagfélag sem velflestir gullsmiðir landsins eru aðilar að. Markmið félagsins er að standa vörð um réttindi íslenskra gullsmiða, viðhalda menntun þeirra og stuðla að þróun og nýsköpun í greininni. Meðal verkefna félagsins er að skerpa á gæðavitund almennings, efla nám og endurmenntun í greininni, eiga samskipti við erlenda starfsfélaga og standa fyrir kynningum, sýningum og vinnuskiptum. Vefsíða félagsins: www.gullsmidir.is Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is . Stjórn 2025-2026 Hadda Rakel Marteinsdóttir, formaður Auðun Steinsen Birna Sigfríður Björgvinsdóttir Guðrún Auður Kristinsdóttir Hildur Ósk Sigurðardóttir Þórdís Björnsdóttir Thoroddsen Sigrún Birna Pétursdóttir Einarsson Stjórn 2024-2025 Arna Arnardóttir, formaður Halla Bogadóttir Hrannar Hallgrímsson Kristinn Þór Ólafsson Lilja Unnarsdóttir Sólborg Sumarrós Sigurðardóttir Unnur Eir Björnsdóttir
- [Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi](https://www.si.is/felag-harsnyrtimeistara-a-nordurlandi): Eflum samvinnu félagsmanna, viðhöldum öflugri endurmenntun og stuðlum að framförum Hársnyrting er löggilt iðngrein. Á hársnyrtistofum er veitt fagleg þjónusta meistara í hárgreiðslu og hárskurði ásamt ráðgjöf við val á þvotta-, litunar- og næringarefnum og meðferð hársins eftir þörfum hvers og eins. Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi er fagfélag hárgreiðslu- og hárskerameistara. Tilgangur félagsins er að efla samvinnu félagsmanna, eiga gott samstarf við hliðstæð samtök erlendis, viðhalda öflugri endurmenntun fagfólks í greininni og stuðla að framförum með upplýsinga- og fræðslustarfsemi, sýningum og keppnum. Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is .
- [Matvælafyrirtæki](https://www.si.is/matvaelafyrirtaeki): Matvælaiðnaður á Íslandi skapar 4,6% landsframleiðslunnar sem eru ríflega 122 milljarðar króna og í greininni eru starfandi um 10.400 sem er 5% af heildarfjölda starfandi í landinu. Fyrirtæki í matvælaiðnaði í Samtökum iðnaðarins eru um 90 talsins og af fjölbreyttum toga. Þar á meðal eru fyrirtæki í brauð- og kökugerð, framleiðslu tilbúinna rétta, kaffiframleiðslu, kjötiðnaði, kornvöruvinnslu, krydd- og bragðefnaframleiðslu, mjólkuriðnaði, sultu- og smjörlíkisgerð, súkkulaði- og sælgætisframleiðsla og snakk- og poppframleiðsla svo dæmi séu tekin. Þá eru einnig framleiðendur drykkjarvöru og áfengis. Innan SI er starfrækt Matvælaráð SI sem er vettvangur um stöðu matvælaiðnaðar á Íslandi, greininga og margvíslegrar stefnumótunar ólíkra matvæla- og drykkjarframleiðenda. Bakarar eru í sérstöku félagi, Landsambandi bakarameistara, sem er með eigin stjórn og fjárhag. Tengiliður hjá SI: Sigurður Helgi Birgisson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sigurdurhelgi@si.is
- [Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði](https://www.si.is/malmur-samtok-fyrirtaekja-i-malm-og-skipaidnadi-10027-e): Tilgangur Málms er að vinna að hagsmunum aðildarfyrirtækja og efla samkeppnishæfni þeirra og arðsemi Frá 1992 hefur félagið starfað undir nafninu Málmur – samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Árið 1993 komu þau að stofnun Samtaka iðnaðarins í gegnum Samband Málm- og skipasmiðja. Félagið hefur það að markmiði að auka vöxt og vegsemd málmiðnaðarins, meðal annars með aukinni framleiðni og skýrri menntastefnu innan greinarinnar. Málmiðnaður er tæknigrein framtíðarinnar og ljóst að framtíðin er björt – ef rétt er staðið að málum. Þar skiptir mestu máli að nýta þekkingu og hæfni til að komast í fremstu röð. Slíkt krefst skipulegrar og markvissrar vinnu innan samtakanna sem og í fyrirtækjunum. Tengiliður hjá SI: Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gudnyh@si.is .
- [Félag blikksmiðjueigenda, FBE](https://www.si.is/felag-blikksmidjueigenda-10019-e): Tæknigrein nútímans sem byggir á gömlum og traustum grunni Allt frá stofnfundi Félags blikksmiðjueigenda, FBE, þann 6. júlí 1937, hefur félagið unnið hörðum höndum að hagsmunamálum starfsgreinarinnar. Í félaginu eru blikksmiðjur, blikksmiðjudeildir og sjálfstætt starfandi blikksmíðameistarar. Mikið starf á sviði grunn- og endurmenntunar á síðustu misserum skilar greininni góðum árangri með meiri hæfni starfsmanna. Vefsíða Félags blikksmiðjueigenda: www.fbe.is Tengiliður hjá SI: Þorgils Helgason , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is .
- [Félag húsgagnabólstrara](https://www.si.is/felag-husgagnabolstrara): Tilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni félagsmanna og efla menntun innan stéttarinnar Skilyrði félagsaðildar eru að aðili hafi hlotið sveinsréttindi í húsgagnabólstrun og stundar sjálfstæðan atvinnurekstur í greininni. Skilvísir greiðendur gjaldsins til SI og SA fá 5% afslátt. Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir , viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is .
- [Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda](https://www.si.is/felag-husgagna-og-innrettingaframleidenda): Tilgangur félagsins er að efla samstöðu og gæta hagsmuna félagsmanna sem og að vera málsvari iðnaðarins gagnvart almenningi, öðrum hagsmunasamtökum og hinu opinbera. Þá leggur félagið áherslu á að stuðlað sé að vandaðri framleiðslu og framförum í greininni og menntamálum Rétt til aðildar að Félagi húsgagn- og innréttingaframleiðenda eiga þau skrásett fyrirtæki sem starfa í húsgagna- og innréttingaiðnaði og meistarar, sem reka sjálfstætt húsgagna- og eða innréttingaverkstæði. Að auki halda rétti sínum þeir meistarar, sem voru félagsmenn fyrir nafnbreytingu félagsins og ekki fullnægja ofangreindum skilyrðum. Félagið er málsvari félagsmanna gagnvart almenningi, öðrum hagsmunasamtökum og hinu opinbera. Þau hafa það meðal annars að markmiði að efla samstöði innan stéttarinnar og gæta hagsmuna húsgagna- og innréttingafyrirtækja í því er iðngreinina varðar. Vefsíða FHIF: https://fhif.is/ Tengiliður hjá SI: Íris Gunnarsdóttir , viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, iris@si.is .
- [Samtök gagnavera - DCI](https://www.si.is/samtok-gagnavera-dci): Tilgangur Tilgangur Samtaka gagnavera, DCI, er að vinna að stefnu og hagsmunum rekstraraðila gagnavera á Íslandi. Samtök gagnavera - Data Centers Iceland - voru stofnuð 2. mars 2012 og starfa sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Hlutverk DCI er að vinna að stefnu og hagsmunum rekstraraðila gagnavera á Íslandi. Þetta eru samtök fyrirtækja sem starfrækja gagnaver á Íslandi og vinna á alþjóðlegum mörkuðum. Helstu áhersluþættir Samkeppnishæft lagaumhverfi Starfsskilyrði Tryggja orkuöryggi Byggja upp ímynd Íslands sem ákjósanlegt land til varðveislu gagna. Tengiliður hjá SI: Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gunnar@si.is .

## Nýjustu fréttir og greinar

- [SI vilja að eftirlit með lögum um handiðnað verði fært frá lögreglu](https://www.si.is/midlun/si-vilja-ad-eftirlit-med-logum-um-handidnad-verdi-faert-fra-logreglu): Í umsögn vekja Samtök iðnaðarins athygli á langvarandi skorti á eftirliti með lögum um handiðnað.
- [Tækni- og hugverkaráð SI - 10 ára afmæli](https://www.si.is/midlun/taekni-og-hugverkarad-si-10-ara-afmaeli)
- [Loftlagsdagurinn 2026](https://www.si.is/midlun/loftlagsdagurinn-2026)
- [Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins](https://www.si.is/midlun/gagnaver-a-islandi-renna-styrkari-stodum-undir-utflutningstekjur-hagkerfisins): Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.
- [Gagnaver á Íslandi eru ört vaxandi útflutningsgrein](https://www.si.is/midlun/gagnaver-a-islandi-eru-ort-vaxandi-utflutningsgrein): Í nýrri greiningu SI kemur fram að gagnaver séu ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra.
- [Reglubyrði veikir viðnámsþrótt](https://www.si.is/midlun/reglubyrdi-veikir-vidnamsthrott): Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, skrifar í Bændablaðið um reglubyrði í landbúnaði og matvælaframleiðslu.
- [Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins](https://www.si.is/midlun/heimsokn-i-ny-husakynni-blikksmidsins): Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.
- [Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum](https://www.si.is/midlun/spretthopur-um-taekifaeri-og-askoranir-i-utanrikisvidskiptum): Gert er ráð fyrir að spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum skili af sér aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.
- [Elkem, Icelandair og Ístak eru tilnefnd sem Umhverfisfyrirtæki ársins 2026](https://www.si.is/midlun/elkem-icelandair-og-istak-eru-tilnefnd-sem-umhverfisfyrirtaeki-arsins-2026)
- [Menntadagur atvinnulífsins 2027](https://www.si.is/midlun/menntadagur-atvinnulifsins-2027)
- [Persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði](https://www.si.is/midlun/personuvernd-i-taekni-og-hugverkaidnadi)
- [Atvinnuleysi í byggingariðnaði langt umfram það sem sést í hefðbundinni árstíðasveiflu](https://www.si.is/midlun/atvinnuleysi-i-byggingaridnadi-langt-umfram-thad-sem-sest-i-hefdbundinni-arstidasveiflu): Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði.
- [Blikksmíði í sviðsljósinu á TikTok](https://www.si.is/midlun/blikksmidi-i-svidsljosinu-a-tiktok)
- [Við getum ákveðið að íslensk matvælaframleiðsla eigi sér sterka framtíð](https://www.si.is/midlun/vid-getum-akvedid-ad-islensk-matvaelaframleidsla-eigi-ser-sterka-framtid)
- [Gervigreind í arkitektúr - tækifæri og áskoranir](https://www.si.is/midlun/gervigreind-i-arkitektur-taekifaeri-og-askoranir)
- [Vinnustofa um vernduð afurðaheiti](https://www.si.is/midlun/vinnustofa-um-verndud-afurdaheiti)
- [Netnámskeið fyrir félagsmenn SI um umsóknir í Vinnustaðanámssjóð](https://www.si.is/midlun/netnamskeid-fyrir-felagsmenn-si-um-umsoknir-i-vinnustadanamssjod)
- [SI og Íslandsstofa efla samstarf um alþjóðlega sókn fyrirtækja](https://www.si.is/midlun/si-og-islandsstofa-efla-samstarf-um-althjodlega-sokn-fyrirtaekja)
- [Mögulegar viðskiptahindranir geta haft veruleg áhrif á íslenskan iðnað](https://www.si.is/midlun/mogulegar-vidskiptahindranir-geta-haft-veruleg-ahrif-a-islenskan-idnad): Rætt er við Lilju Björk Guðmundsdóttur, yfirlögfræðing SI, í frétt FF7 um áhyggjur norsku systursamtaka SI, NHO, af vaxandi spennu í samskiptum ESB og Kína.
- [Ný rafmagnsöryggisgátt HMS kynnt í samstarfi við rafverktaka](https://www.si.is/midlun/ny-rafmagnsoryggisgatt-hms-kynnt-i-samstarfi-vid-rafverktaka)
- [Mikilvægt að menntakerfið geti tekið við auknum fjölda í iðnnám](https://www.si.is/midlun/mikilvaegt-ad-menntakerfid-geti-tekid-vid-auknum-fjolda-i-idnnam)
- [SI vilja að fjárlagafrumvarpið styðji betur við samkeppnishæfni](https://www.si.is/midlun/si-vilja-ad-fjarlagafrumvarpid-stydji-betur-vid-samkeppnishaefni): Samtök iðnaðarins hafa skilað inn umsögn um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027.
- [Innviðaskuld vegakerfisins velt yfir á framtíðarkynslóðir](https://www.si.is/midlun/innvidaskuld-vegakerfisins-velt-yfir-a-framtidarkynslodir): Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Síðdegisútvarpi Rásar 2 og Morgunblaðinu um vaxandi bil á milli gjaldheimtu ríkisins af bifreiðum og útgjalda til viðhalds og uppbyggingar á vegakerfinu.
- [Gjaldheimta af bifreiðum langt umfram útgjöld til viðhalds og uppbyggingar vegasamgangna](https://www.si.is/midlun/gjaldheimta-af-bifreidum-langt-umfram-utgjold-til-vidhalds-og-uppbyggingar-vegasamgangna): Í nýrri greiningu SI kemur fram að gjaldheimta af bifreiðum er langt umfram útgjöld til viðhalds og uppbyggingar vegasamgangna. Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum. Árið 2025 nam bein gjaldheimta um 64,9 mö.kr., samanborið við 43,9 ma.kr. í heildarútgjöld til vegasamgangna. Mismunurinn var því um 21 ma.kr.
- [Gervigreindin hefur jákvæð áhrif inn í hagkerfið hjá okkur](https://www.si.is/midlun/gervigreindin-hefur-jakvaed-ahrif-inn-i-hagkerfid-hja-okkur): Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, tók þátt í umræðum um áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn í Silfrinu á RÚV.
- [Aukin samþætting norrænna markaða í brennidepli](https://www.si.is/midlun/aukin-samthaetting-norraenna-markada-i-brennidepli): Fulltrúar SI tóku þátt í árlegum fundi formanna og framkvæmdastjóra norrænna systursamtaka SI sem haldinn var í Kaupmannahöfn.
- [Iðan með nýtt hlaðvarp um bygginga- og mannvirkjagreinar](https://www.si.is/midlun/idan-med-nytt-hladvarp-um-bygginga-og-mannvirkjagreinar)
- [Samtök rafverktaka gefa út nýjar leiðbeiningar um úttektarmælingar](https://www.si.is/midlun/samtok-rafverktaka-gefa-ut-nyjar-leidbeiningar-um-uttektarmaelingar)
- [Þrír fundir um persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum](https://www.si.is/midlun/thrir-fundir-um-personuvernd-i-taekni-og-hugverkaidnadi-a-naestu-manudum)
- [Tilnefningar fyrir Íslensku menntaverðlaunin sem afhent verða á Bessastöðum](https://www.si.is/midlun/tilnefningar-fyrir-islensku-menntaverdlaunin-sem-afhent-verda-a-bessastodum)
- [Skýr merki um samdrátt í byggingariðnaði](https://www.si.is/midlun/skyr-merki-um-samdratt-i-byggingaridnadi): Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, segir í Morgunblaðinu að samdrátturinn í byggingariðnaði sé klárlega mestur í íbúðaruppbyggingu.
- [Heimsókn til Securitas](https://www.si.is/midlun/heimsokn-til-securitas)
- [Aðalfundur Iðunnar fræðsluseturs](https://www.si.is/midlun/adalfundur-idunnar)
- [Landbúnaður í heimi breytinga](https://www.si.is/midlun/landbunadur-i-heimi-breytinga)
- [Skattlagning aukin í þungri stöðu á nýbyggingamarkaði](https://www.si.is/midlun/skattlagning-aukin-i-thungri-stodu-a-nybyggingamarkadi)
- [Gervigreind til umræðu á fundi fulltrúa frá KAIT í Suður-Kóreu og SI](https://www.si.is/midlun/gervigreind-til-umraedu-a-fundi-fulltrua-fra-kait-i-sudur-koreu-og-si)
- [Stilla þarf saman strengina í alþjóðlegri hagsmunagæslu](https://www.si.is/midlun/stilla-tharf-saman-strengina-i-althjodlegri-hagsmunagaeslu)
- [Fulltrúar SI í Brussel](https://www.si.is/midlun/fulltruar-si-i-brussel): Fulltrúar Samtaka iðnaðarins áttu fundi með hagaðilum í evrópsku atvinnulífi, fulltrúum stofnana og fulltrúum Íslands í Brussel.
- [Mannvirkjaráð SI virkjað að nýju](https://www.si.is/midlun/mannvirkjarad-si-virkjad-ad-nyju): Mannvirkjaráð SI er samstarfsvettvangur innan Samtaka iðnaðarins sem hefur það hlutverk að stuðla að umbótum í mannvirkjaiðnaði.
- [Fulltrúi SI á norrænum fundi um mannauð í mannvirkjaiðnaði](https://www.si.is/midlun/fulltrui-si-a-norraenum-fundi-um-mannaud-i-mannvirkjaidnadi-1): Árlegur fundur norrænna systursamtaka SI í mannvirkja- og byggingagreinum fór fram í Malmö í Svíþjóð.
- [Sveinsbréf afhent í klæðskurði og kjólasaumi](https://www.si.is/midlun/sveinsbref-afhent-i-klaedskurdi-og-kjolasaumi)
- [Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma](https://www.si.is/midlun/bodud-skattahaekkun-a-husnaedisuppbyggingu-kemur-a-versta-tima)
- [Afleiðingarnar blasa við í verulegum samdrætti íbúðauppbyggingar](https://www.si.is/midlun/afleidingarnar-blasa-vid-i-verulegum-samdraetti-ibudauppbyggingar): Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í Morgunblaðinu að nauðsynlegt sé að ríki, sveitarfélög og byggingariðnaðurinn taki höndum saman um aðgerðir til að snúa þróuninni við.
- [Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins](https://www.si.is/midlun/taekni-og-hugverkaidnadur-eykur-stodugleika-hagkerfisins)
- [Fjölmenni á fundi um starfsmannamál í mannvirkjagreinum](https://www.si.is/midlun/fjolmenni-a-fundi-um-starfsmannamal-i-mannvirkjagreinum)
- [Prentmet Oddi yfirtekur rekstur og fasteign Héraðsprents á Egilsstöðum](https://www.si.is/midlun/prentmet-oddi-yfirtekur-rekstur-og-fasteign-heradsprents-a-egilsstodum)
- [Verulegur samdráttur í byggingu íbúða kallar á viðbrögð](https://www.si.is/midlun/verulegur-samdrattur-i-byggingu-ibuda-kallar-a-vidbrogd): Niðurstöður talningar HMS á íbúðum í byggingu sýnir samdrátt sem er í samræmi við þróun íbúðauppbyggingar sem Samtök iðnaðarins hafa ítrekað varað við og kalla á viðbrögð stjórnvalda.
- [Tækni- og hugverkaiðnaður hefur gert íslenskt hagkerfi stöðugra](https://www.si.is/midlun/taekni-og-hugverkaidnadur-hefur-gert-islenskt-hagkerfi-stodugra): Í nýrri greiningu SI kemur fram að með tilkomu tækni- og hugverkaiðnaðar hafi sveiflur í útflutningi þjóðarbúsins orðið 12–16% minni en þær hefðu ella orðið. Greinin sem hefur áttfaldast frá 2008 er ein af fjórum stoðum útflutnings á Íslandi og skilar 369 milljörðum króna í útflutningstekjur.
- [Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 - opnað hefur verið fyrir tilnefningar](https://www.si.is/midlun/umhverfisfyrirtaeki-arsins-2026-opnad-hefur-verid-fyrir-tilnefningar)
- [Stjórnvöld ganga gegn eigin yfirlýsingum í pizzaostamálinu](https://www.si.is/midlun/stjornvold-ganga-gegn-eigin-yfirlysingum-i-pizzaostamalinu): Ný tollaglufa sem getur grafið undan innlendri framleiðslu - „Ostur er og verður ostur þótt jurtaolíu sé bætt við hann. Nú virðast stjórnvöld ætla að snúa við eigin málflutningi og breyta lögunum til að ná fram annarri niðurstöðu í þágu fárra innflutningsaðila,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

## Optional

- [Fréttastraumur (RSS)](https://www.si.is/frettasafn/rss.xml)
- [Veftré](https://www.si.is/sitemap.xml)
