Menntadagur atvinnulífsins
Menntadagur atvinnulífsins 2018 verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30-12.00. Dagurinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Hér er hægt að skrá sig.
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða veitt í fimmta skiptið en Alcoa Fjarðaál og Keilir hlutu verðlaunin 2017. Svipmyndir og upptökur frá sameiginlegri dagskrá 2017 eru aðgengilegar í Sjónvarpi atvinnulífsins.
DAGSKRÁ
8.30 Setning
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir.
Færni er framtíðin: Hvað átt þú eftir að læra?
Lilja Dögg Jónsdóttir, starfsmannastjóri Burning Glass Technologies
Hvað geta fyrirtæki gert?
Jón Björnsson, forstjóri Festi
Amma, hvað er stundaskrá?
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect
Hugvekjur
Ragnar Kjartansson, listamaður.
Fida Abu Libdeh, frumkvöðull og eigandi GeoSilica Iceland
Marinó Páll Valdimarsson, teymisstjóri IoT og gervigreindar hjá Marel
Menntaverðlaun atvinnulífsins 2018
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhendir verðlaunin.
10.00 Kaffi og með því.
Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi. Óskir um sýningarpláss sendist á sa@sa.is.
10.30 Málstofur
A) Hvað verður um byggðirnar?
Árný Elíasdóttir, ráðgjafi hjá Attentus
Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Attentus
Hilmar Janusson, forstjóri Genís
Ingvi Hrannar Ómarsson, grunnskólakennari
Sigrún Björnsdóttir, fræðslustjóri Alcoa Fjarðaáls
Málstofustjóri er Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins
B) Tæknileg áhrif
Iðnbyltingar og innviðir
Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og þróunarsviðs Vodafone
Snjallnet - Landsnets
Guðjón Hugberg Björnsson, Landsnet
Snjallsamgöngur (e. Smart Mobility)
Hrönn Sch. Hallgrímsdóttir – Samgönguverkfræðingur - Mannvit
Framþróun í bolfiskvinnslu
Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Valka
Málstofustjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku
C) Framlínan - tækni, hæfni og þjónusta
Hæfnikröfur starfa í framtíðinni og raunfærnimat
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs Icelandair hótela
Hugarflug – framtíðarsýn
Hrund Gunnsteinsdóttir, þróunarfræðingur og frumkvöðull
Áhrif tæknibreytinga á framlínustörf
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania
Málstofustjóri er Áslaug Hulda Jónsdóttir, forstöðumaður menntasviðs SVÞ
12.00 Málstofum lýkur
Allir velkomnir ekkert þátttökugjald.
Hægt er að horfa á svipmyndir frá Menntadegi atvinnulífsins 2017 í Sjónvarpi atvinnulifsins.