Viðburðir
14.04.2018 Menningarhúsið Hof, Akureyri

Dagur byggingariðnaðarins á Akureyri

Dagur byggingariðnaðarins verður haldinn á Akureyri 14. apríl. Að deginum standa Akureyrarbær, Meistarfélag byggingamanna á Norðurlandi, Samtök iðnaðarins og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar.

Þennan dag verður byggingar og mannvirkjageiranum á Norðurlandi gert hátt undir höfði bæði með sýningu í Menningarhúsinu Hofi á og opnum húsum á byggingarstöðum og verkstæðum á Akureyri og víðar í landshlutanum.

Viðburður á Facebook.

Yfir 20 aðilar taka þátt í sýningunni

Yfir 20 aðilar verða með sýningarbása Í Hofi og þar verður einnig sett upp sérstök upplýsingamiðstöð. 
Sveitarfélög á Norðurlandi munu jafnframt kynna hvað er framundan í lóðaúthlutun. Fasteignasölur verða með opin hús og íbúðir til sölu á staðnum. Þá verður hægt að kynna sér fjármögnunarleiðir bankana og íbúðalánasjóðs. Verktakar kynna starfsemi sína bæði í Hofi og verða með opin hús á verkstæðum víða á svæðinu. Þá verða opnar íbúðir í byggingu út um allan bæ. Aðilar á Dalvík, Siglufirði, Sauðárkróki og Húsavík taka einnig þátt í verkefninu.

Eftirtalin fyrirtæki taka þátt í Degi byggingariðnaðarins á Norðurlandi.
  • Byko 
  • Húsasmiðjan
  • Arion banki 
  • BM Vallá 
  • Slippfélagið 
  • Rönning 
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri 
  • Raftákn 
  • Flugger 
  • Íbúðarlánasjóður 
  • Berg Félag stjórnenda 
  • Möl og sandur 
  • Steinull 
  • Blikk og tækniþjónustan
  • Búfesti hsf
  • Ferro Zink 
  • Hýsi Merkúr 
  • Íslandsbanki 
  • Akureyrarbær 
  • Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti Eyjafjarðar
  • Securitas 
  • Fasteignasala Akureyrar
  • IÐAN fræðslusetur
  • Norðurvík Ehf 
  • Nemar frá VMA
  • Trésmiðjan Rein
  • SS byggir 
  • Tak innréttingar 
  • Trétak ehf 
  • ÁK-smíði 
  • Rafeyri ehf 
  • Tréverk ehf
  • Tengi