Viðburðir
25.09.2018 kl. 8:30 - 10:00 Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35

Persónuvernd í atvinnurekstri – kynning á hagnýtum upplýsingum

Samtök iðnaðarins bjóða félagsmönnum sínum á kynningarfund um hagnýtar upplýsingar sem hægt er að fá á vinnumarkaðsvef Samtaka atvinnulífsins. Á vefnum eru gögn sem nýtast fyrirtækjum til að aðlaga starfsemi sína að nýlega samþykktum persónuverndarreglum. 

Á fundinum kynnir Guðmundur Heiðar Guðmundsson, lögfræðingur á vinnumarkaðssviði SA, gögnin sem standa félagsmönnum SI til boða.

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 25. september kl. 8.30-10.00 í Hyl á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Bókunartímabil er frá 5 sep. 2018 til 25 sep. 2018