Viðburðir
14.01.2019 kl. 11:30 - 13:00 Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35

Menntamál í iðnaði

Framleiðsluráð SI stendur fyrir fundi um menntamál í iðnaði, mánudaginn 14. janúar kl. 11.30-13.00 í fundarsalnum Hyl í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.

Markmiðið með fundinum er að sýna fram á mikilvægi þess að starfsmenn fái góða þjálfun til þeirra verka sem þeim er ætlað að sinna og miðla reynslu þeirra fyrirtækja sem standa vel að slíkum málum. Á fundinum verður farið yfir menntastefnu Samtaka iðnaðarins, símenntun í iðnaði og raunfærnimat,  ásamt vel heppnuðum menntaverkefnum hjá fyrirtækjum innan raða SI. 

Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI.

Dagskrá

  • Menntastefna Samtaka iðnaðarins – Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri menntamála hjá SA.
  • Reynslusögur frá félagsmönnum – Snorri Jónsson, Dominos, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Prentmet, Hekla Gunnarsdóttir, Norðurál, Rut Jónsdóttir og Einar Skaftason, Hampiðjan.
  • Umræður

Boðið verður upp á hádegishressingu.

Bókunartímabil er frá 7 jan. 2019 til 14 jan. 2019