Aðalfundur Samtaka sprotafyrirtækja
Aðalfundur Samtaka sprotafyrirtækja, SSP, verður haldinn miðvikudaginn 30. janúar kl. 15.30 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.
Að aðalfundarstörfum loknum verður fjallað um þær breytingar sem nýlega gengu í garð á ýmsum lögum sem styðja við fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti. Sérstakur gestur fundarins verður Rünno Allikivi frá fyrirtækinu Funderbeam.
Dagskrá
15.30-16.00: Aðalfundur SSP
1. Kosinn fundarstjóri
2. Kosinn ritari fundarins
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar og flytur tillögur að verkefnaskrá næsta starfsárs
4. Breytingar starfsreglna, ef fyrir liggja
5. Kosning stjórnar:
a) formaður til eins árs
b) tveir meðstjórnendur og tveir til vara til eins árs
6. Lýst stjórnarkjöri
7. Önnur mál
16.00-17.30: Bætt fjármögnunarumhverfi sprotafyrirtækja
- Enn betri nýsköpunarlög - Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
- Reynslusaga um hvernig nýta má skattafrádrátt einstaklinga til fjármögnunar nýsköpunarfyrirtækis - Stefán Björnsson hjá Solid Clouds
- Funderbeam á Íslandi - Rünno Allikivi, framkvæmdastjóri Funderbeam
Aðeins þeir félagar sem senda fulltrúa á aðalfund hafa atkvæðisrétt. Athugið að tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði fyrir fundinn, þurfa að hafa borist stjórn félagsins að minnsta kosti 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund.
Fyrir frekari upplýsingar um fundinn er hægt að hafa samband við Eddu Björk Ragnarsdóttur, viðskiptastjóra á hugverkasviði SI, edda@si.is.