Viðburðir
26.02.2019 kl. 8:30 - 10:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Samevrópsk hæfislýsing bjóðenda

Samtök iðnaðarins og Félag vinnuvélaeigenda standa að fræðslufundi með Ríkiskaupum um samevrópska hæfisyfirlýsingu bjóðenda (ESPD) þriðjudaginn 26. febrúar kl. 8.30 – 10.00 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35. Allir félagsmenn SI eru velkomnir.

Samkvæmt nýjum lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 er nú heimilt að nota svokallaða samevrópska hæfisyfirlýsingu bjóðenda (ESPD). Þessi heimild felur í sér að framvegis þarf aðeins sá bjóðandi sem hlýtur samning að leggja fram skjöl til staðfestingar á hæfi sínu. Einnig má nota sömu hæfisyfirlýsingu aftur og aðeins þarf að uppfæra eftir þörfum. Vonast er til að þetta minnki vinnu við tilboðsgerð um 80%.

Fyrirlesarar frá Ríkiskaupum eru Dagmar Sigurðardóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs, og Guðrún Birna Finnsdóttir, teymisstjóri.

Bókunartímabil er frá 15 feb. 2019 til 26 feb. 2019