Viðburðir
20.11.2019 kl. 18:00 Tanginn, Vestmannaeyjum

Hver ber ábyrgð á mannvirkinu? Fræðslufundur í Vestmannaeyjum

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi um ábyrgðir miðvikudaginn 20. nóvember kl. 18.00 á veitingastaðnum Tanganum í Vestmannaeyjum. Boðið verður upp á léttan kvöldverð að fundi loknum. Á fundinum mun Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, fara yfir minnisblað sem Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, tók saman fyrir samtökin og varðar lagareglur um ábyrgð hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara. Jafnframt verður fjallað um skaðabótaábyrgð vinnuveitenda, starfsábyrgðartryggingar og tímalengd ábyrgða. Fundarstjóri er Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI. 

Bókunartímabil er frá 11 nóv. 2019 til 20 nóv. 2019