Viðburðir
25.11.2019 kl. 12:00 Hólmgarði 2c

Hver ber ábyrgð á mannvirkinu? Fræðslufundur í Reykjanesbæ

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi um ábyrgðir miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12.00 í húsnæði Meistarafélags byggingamanna Suðurnesjum að Hólmgarði 2c. Boðið verður upp á súpu í byrjun fundar. Á fundinum mun Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI, fara yfir minnisblað sem Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, tók saman fyrir samtökin og varðar lagareglur um ábyrgð hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara. Jafnframt verður fjallað um skaðabótaábyrgð vinnuveitenda, starfsábyrgðartryggingar og tímalengd ábyrgða. Fundarstjóri er Kristján Daníel Sigubergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.

Bókunartímabil er frá 21 nóv. 2019 til 25 nóv. 2019