Aðalfundur SÍK
Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur verið ákveðið að færa aðalfund SÍK alfarið yfir á rafrænt form. Fundurinn verður því haldinn á Zoom fimmtudaginn 24. september klukkan 17.00.
Á fundinum hefur hvert aðildarfélag eitt atkvæði. Vinsamlega takið fram hver fer með atkvæði ykkar aðildarfélags þegar þátttaka er skráð.
Dagskrá aðalfundar Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðanda 2020
Kl. 17.00 Kristinn Þórðarson, formaður SÍK, opnar fundinn og fjallar um málefni kvikmyndaiðnaðarins og framtíðarhorfur.
Kl. 17.10 Hefðbundin aðalfundarstörf skv. samþykktum sambandsins:
1. Lögð fram kjörgögn
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar SÍK 2019 lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Laun stjórnar
6. Stjórnarkjör
7. Kjör endurskoðenda
8. Félagsgjöld ákvörðuð
9. Önnur mál, löglega upp borin
Kl. 17.50 Pallborðsumræður um stefnu sjónvarpsstöðva hér á landi þegar kemur að íslensku dagskrárefni.
Gestir: Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Símans, Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Sýnar. Umræðum stýrir: Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur SI.
Kl. 18.30 Fundi slitið.