Viðburðir
07.10.2020 kl. 17:00 Rafrænn fundur

Aðalfundur Félags vinnuvélaeigenda

Aðalfundur Félags vinnuvélaeigenda verður miðvikudaginn 7. október 2020 kl. 17.00. Í ljósi aðstæðna verður fundurinn haldinn með rafrænum hætti. Fundargestir fá hlekk í tölvupósti 6. október til að komast inn á fundinn.

Skráningu á fundinn þarf að vera lokið þriðjudaginn 6. október kl. 12.00. Ástæðan er sú að staðfesta þarf að fundargestir séu örugglega félagar í Félagi vinnuvélaeigenda. Skráningarhlekkur er hér fyrir neðan.

Áður en formleg aðalfundarstörf hefjast mun Rafn Magnús Jónsson, verkefnastjóri/kennari hjá Tækniskólanum, kynna fyrirhugað nám í jarðvirkjun við Tækniskólann en félagið hefur unnið að því verkefni, ásamt samstarfsaðilum, sl. starfsár.

Í samræmi við lög félagsins er dagskrá fundarins eftirfarandi:

1. Formaður skýrir frá störfum félagsins á liðnu ári

2. Féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins

3. Ákveðin árgjöld fyrir næsta ár

4. Kosinn formaður; varaformaður og stjórn

5. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga

6. Kosning í starfsnefndir félagsins

7. Önnur mál

Bókunartímabil er frá 23 sep. 2020 til 7 okt. 2020