Viðburðir
SAMARK - Kynningarfundur um kjarasamning
Rafrænn kynningarfundur fyrir félagsmenn SAMARK um kjarasamning milli Samtaka atvinnulífsins og Arkitektafélags Íslands verður mánudaginn 12. apríl kl. 14.00-15.00. Guðmundur Heiðar Guðmundsson, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, mun fara yfir samninginn og helstu breytingarnar sem honum fylgja en kosið verður um samninginn á aðalfundi SAMARK sem fer fram síðar í mánuðinum. Hægt verður að bera fram spurningar á kynningarfundinum. Fundurinn verður haldinn rafrænt á Zoom en nauðsynlegt er að skrá sig. Þeir sem skrá sig fá sendan hlekk á fundinn fyrir hádegi á mánudag.