Viðburðir
Framtíðarráðgjafinn – tækifæri og áskoranir
Yngri ráðgjafar, sem er deild innan Félags ráðgjafarverkfræðinga, stendur fyrir rafrænum fundi þriðjudaginn 18. maí kl. 9.00-10.00. Á fundinum velta Yngri ráðgjafar fyrir sér hvernig starf ráðgjafans muni breytast á næstu árum, m.a. í tengslum við starfsumhverfi, loftslagsbreytingar og tækniþróun ásamt því að bjóða til viðræðna reyndu fólki úr atvinnulífinu.
Hér er hægt að fylgjast með viðburðinum: https://us02web.zoom.us/j/82545853044
Fundarstjóri er Eyrún Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.
Dagskrá
- Starfsumhverfi ráðgjafans – Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mannvit og formaður YR
- Loftslagsbreytingar – Sigríður Ósk Bjarnadóttir, byggingarverkfræðingur, Ph.D., sérfræðingur í sjálfbærni og loftslagsmálum í mannvirkjahönnun hjá VSÓ ráðgjöf og stjórnarmaður í YR
- Tækniþróun – Hjörtur Sigurðsson, framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu, stjórnarmaður í FRV og fyrrverandi stjórnarmaður í YR
Pallborðsumræður:
- Arnar Kári Hallgrímsson, byggingarverkfræðingur hjá Eflu og fyrrverandi formaður YR
- Egill Viðarsson, sviðsstjóri á sviði samgangna og umhverfis hjá Verkís
- Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
- Jóhannes B. Bjarnason, verkefnastjóri hjá Isavia