Viðburðir
06.10.2021 kl. 8:30 - 10:30 Norðurljós í Hörpu

Umhverfisdagur atvinnulífsins

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn í Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 6. október kl. 8.30-10.30. Dagurinn er árviss viðburður og að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Dagskrá umhverfisdagsins lýkur með ávarpi forseta Íslands og afhendingu Umhverfisverðlauna atvinnulífsins og við tekur kaffi og tengslamyndun fyrir fundargesti til kl. 11.00. 

Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Dagskrá

Setning

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA

Orkuskipti – Leiðin fram á við

Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri

Orkuskipti Bílaleigu Akureyrar

Jón Gestur Ólafsson, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri Hölds ehf.

Orkuskipti í sjávarútvegi

Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum SFS

Vistvænni mannvirkjagerð

Sigrún Melax, gæðastjóri Jáverk ehf.

Fjármögnun orkuskipta – tækifærin og áskoranir frá sjónarhóli banka

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni Íslandsbanka

Í pallborðsumræðum taka þátt:

Bjarni Herrera, forstöðumaður sjálfbærni KPMG
Sigríður Ósk Bjarnadóttir, byggingarverkfræðingur Ph.D. VSÓ og dósent við Háskóla Íslands
Sigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins:

Forseti Íslands afhendir viðurkenningu
fyrir umhverfisframtak ársins og til umhverfisfyrirtækis ársins.

Kaffi og tengslamyndun


Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.