Viðburðir
25.05.2022 kl. 17:00 - 19:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Frumsýning á myndbandi YR og Mentor-erindi

Nýtt kynningarmyndband Yngri ráðgjafa um ráðgjafarverkfræðinginn verður frumsýnt miðvikudaginn 25. maí í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35 kl. 17.00. Stjórn Yngri ráðgjafa hefur unnið að gerð myndbandsins síðan í janúar á þessu ári og er nú komið að frumsýningu myndbandsins sem ætlað er til kynningar á starfi ráðgjafarverkfræðingsins á framhalds- og háskólastigi.

Síðar á sama viðburði mun Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Landsvirkjun, segja frá starfi sínu sem verkfræðingur og verður erindi hennar í Mentor-formi.

Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan á viðburðinum stendur. 

Bókunartímabil er frá 18 maí 2022 til 25 maí 2022