Viðburðir
31.05.2022 kl. 17:30 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Aðalfundur Félags blikksmiðjueigenda

Aðalfundur Félags blikksmiðjueigenda fer fram þriðjudaginn 31. maí kl. 17.30 í salnum Hól á fyrstu hæð í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Dagskrá aðalfundar:

1. Skýrsla formanns um félagsstarfið á liðnu starfsári.

2. Gjaldkeri leggur fram til afgreiðslu reikninga félagsins fyrir liðið ár ásamt fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Hann skal ennfremur leggja fram tillögur stjórnar um árgjöld.

3. Tillögur uppstillinganefndar

4. Kosning stjórnar

5. Kosning fulltrúa og varafulltrúa í þær stjórnir og ráð sem félagið á rétt á að tilnefna til.

6. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.

7. Kosning uppstillinganefndar

8. Lagabreytingar

9. Önnur mál.

Bókunartímabil er frá 16 maí 2022 til 31 maí 2022