Aðalfundur VOR
Aðalfundur Vetnis- og rafeldsneytissamtakanna, VOR, mun fara fram mánudaginn 11. nóvember nk. kl. 15:00 í Veröld á 4. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Léttar veitingar verða í boði.
Dagskrá
1. Fundarsetning.
2. Kjör fundarstjóra og ritara
3. Ársskýrsla stjórnar
4. Umræður um verkefni komandi starfsárs
5. Önnur mál og almenn umræða
6. Auglýst er eftir framboði til eins meðstjórnanda til tveggja ára. Framboð berist fyrir 10. nóvember á gudnyh@si.is.
Eftir að aðalfundarstörfum lýkur flytur Barbara Zuiderwijk, framkvæmdastjóri og stofnandi Green Giraffe Group, erindi kl. 16.00.
Barbara er með umfangsmikla reynslu af fjármögnun vindorkuvera í Norður-Evrópu og hefur stutt við fyrirtæki í viðskiptaþróun í þeim tilgangi að stuðla að orkuskiptum, m.a. á sviði rafeldsneytisframleiðslu. Hún er á lista Tamarindo yfir þá 100 aðila sem leiða orkuskiptin í heiminum. Í erindi sínu fer hún yfir vetnismarkaðinn með sérstakri áherslu á Evrópu, tækifæri vetnisframleiðslu og hvers vegna Ísland er í einstakri stöðu til að vera meðal þeirra fyrstu til að ná árangri í orkuskiptunum.
Í kjölfarið verða verkefni nokkurra fyrirtækja innan VOR kynnt.
