Viðburðir
20.11.2025 kl. 9:00 - 10:00 Rafrænn fundur

Innleiðing á umbúðaregluverki ESB (PPWR) - Zoom-fundur SVÞ, SI og Deloitte

Samtök verslunar og þjónustu, Samtök iðnaðarins og Deloitte standa fyrir Zoom-fundi fimmtudaginn 20. nóvember kl. 9-10 um innleiðingu á umbúðaregluverki ESB sem nefnt er PPWR. Evrópusambandið vinnur nú að einu umfangsmesta umhverfismálum sínum til þessa – nýju regluverki um umbúðir og umbúðaúrgang (Packaging and Packaging Waste Regulation – PPWR). Reglurnar munu hafa víðtæk áhrif á alla sem framleiða, flytja inn eða selja vörur í umbúðum á EES-markaði, þar á meðal íslensk fyrirtæki.

Á fundinum sem fer fram á Zoom, verður farið yfir hvað PPWR felur í sér, hvernig önnur Norðurlönd eru að undirbúa innleiðingu þess og hvað íslensk fyrirtæki þurfa að hafa í huga þegar breytingarnar taka gildi.


Fyrirlesarar:

  • Gunnar S. Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærniráðgjafar Deloitte

  • Edward Sims, Director, Deloitte Danmörk

  • Lyndsey Parette, Assistant Manager, Deloitte Danmörk


Helstu umræðuefni:

  • Hvað er PPWR og hver eru markmið reglugerðarinnar?

  • Reynslan af innleiðingu á Norðurlöndunum – hvað getum við lært?

  • Hvað þurfa íslensk fyrirtæki að gera til að undirbúa sig?

  • Hvar stendur Ísland í innleiðingu reglugerðarinnar?


Fyrir hvern er fundurinn?
Fyrirtæki í verslun, þjónustu og framleiðslu sem starfa með innflutning, pökkun, dreifingu eða sölu á vörum í umbúðum – og allir sem bera ábyrgð á sjálfbærni, rekstrarferlum eða stefnumótun í umhverfismálum.

Skráning er nauðsynleg.

Hér er hægt að skrá sig.