Samningur SI og EJS um viðskiptakjör
Afslátturinn gildir við öll almenn innkaup aðildarfélaga SI óháð magni. Þegar um einstök magninnkaup er að ræða eða kaup á dýrari búnaði leitast EJS við að afla ,,sérverðs" frá birgjum eftir því sem við á og leggur það fram í sértilboði til aðildarfélaga SI. Afsláttarkjörin gilda ekki þegar um sérstök tilboð er að ræða.
Ljóst er að afsláttarkjör þessi geta haft talsvert að segja fyrir félagsmenn Samtaka iðnaðarins. Þess má geta að Samtökin hafa einmitt haft Dell tölvur í sinni þjónustu um tíma svo og Dell netþjón (miðlara) á innra neti sínu. Þar sem góð reynsla er af þessum tölvubúnaði var tekin ákvörðun um gerð þessa samnings. Dell hefur frá upphafi framleitt tölvubúnað með það að leiðarljósi að tryggja hámarks rekstraröryggi og sem lægstan rekstrarkostnað. EJS býður þriggja ára ábyrgð á öllum Dell tölvum sem þýðir að tölvan er í ábyrgð mestan hluta líftíma síns.
Ávinningur smærri fyrirtækja
Smærri fyrirtækjum hefur oft reynst erfitt að fá góð tilboð í tölvur og aðrar vörur sem þau þurfa að fjárfesta í þar sem sjaldan er um magninnkaup að ræða líkt og hjá stærri fyrirtækjum. Þess vegna hafa smærri fyrirtæki oft freistast til að snúa sér að "tilboðum" þar sem gæði og þjónusta eru oftar en ekki til lítillar fyrirmyndar. Samningi Samtaka iðnaðarins og EJS er m.a. ætlað að gera þessum fyrirtækjum auðveldara fyrir að eignast góða og áreiðanlega vöru, með traustri ábyrgð og þjónustu. Samtök iðnaðarins hafa fullan hug á að gera fleiri samninga af þessu tagi, í fleiri vöruflokkum, og eru þeir í farvatninu.
Öryggi og áreiðanleiki
EJS býður netþjóna frá tveimur traustum framleiðendum, Sun og Dell. Sun netþjónar eru hannaðir fyrir ört vaxandi og síbreytilega markaði Internetsins. Auðvelt er að stækka búnaðinn þegar kröfur um afköst aukast. Sun netþjónar eru gerðir til að skila alltaf hámarks afköstum. Dell PowerEdge netþjónar eru ávallt útbúnir nýjustu tækni, enda Dell í nánu samstarfi við leiðandi framleiðendur eins og Intel og Microsoft. Dell netþjónar eru þekktir fyrir öryggi og áreiðanleika. Þessa dagana eru kynningartilboð á netþjónum í söludeild EJS.
Vottað gæðakerfi
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi. En hvað er ISO 9001 og hvaða ávinning hafa fyrirtæki og viðskiptavinir þeirra af því að verða sér úti um formlega gæðavottun af þessu tagi? Þetta eru spurningar sem hafa vaknað í kjölfarið á aukinni gæðavæðingu fyrirtækja hér á landi.
Gæðakerfi eftir ISO 9001 staðlinum er formlegt kerfi, þar sem reynt er að leggja allt það sem hefur áhrif á gæði vörunnar í fastar skorður. Það veitir viðkomandi fyrirtæki visst öryggi og gerir það minna viðkvæmt, til dæmis fyrir starfsmannabreytingum. Kerfið gefur þess vegna viðskiptavininum vissa tryggingu fyrir því að gæði vörunnar séu alltaf þau sömu.
Til að geta sýnt fram á að fyrirtæki uppfylli þann ISO staðal sem valinn hefur verið, þarf að fá vottunarstofu til að gera úttekt á fyrirtækinu og votta að gæðakerfið standist allar kröfur og þjóni sínum tilgangi. Eftir að vottun hefur verið fengin gerir vottunarstofa úttekt u.þ.b. tvisvar á ári til að fylgjast með að gæðakerfið sé virkt.
Tilgangurinn með gæðastjórnun er að vinna skipulega að því að tryggja að gæði vöru og þjónustu uppfylli stöðugt þarfir og væntingar viðskiptavinarins.
Önnur þjónusta sem EJS býður
Þess má einnig geta að EJS býður nú stofnunum og fyrirtækjum upp á Alrekstur. Í Alrekstri eru tölvu- og upplýsingakerfi fyrirtækja tekin í fóstur. Sérfræðingar EJS gera nákvæma úttekt á tölvukerfum viðkomandi fyrirtækja og þau löguð að breyttum aðstæðum eftir þörfum. Þannig sér EJS um alla þjónustu, rekstur og viðhald á vél- og hugbúnaði. Öflugt og vel rekið tölvu- og upplýsingakerfi stuðlar að auknum afköstum, sparar fé og fyrirhöfn.
Rekstrarþjónusta EJS er oft góður kostur þegar afkoma fyrirtækisins og gæði þjónustunnar eru háð áreiðanlegu upplýsingakerfi. Með rekstrarþjónustu njóta fyrirtæki fyrirbyggjandi viðhalds á tölvukerfum sínum. Kostnaði við eftirlit og fyrirsjáanlegt viðhald er jafnað niður á árið. Rekstrarþjónusta EJS er sett saman úr mörgum mismunandi þjónustuþáttum. Þannig getur viðskiptavinurinn valið það þjónustustig sem honum hentar og tryggt nauðsynlegt rekstraröryggi án óþarfa útgjalda.