Nýr starfsmaður SI - Bryndís Skúladóttir
Bryndís Skúladóttir hóf störf hjá SI í byrjun september. Hún tók við verkefnum Ólafs Kjartanssonar sem starfað hefur hjá SI frá stofnun. Bryndís er efnaverkfræðingur að mennt, lærði í Háskóla Íslands og í DTU í Danmörku. Hún hefur áður starfað sem verkefnisstjóri í umhverfismálum hjá Iðntæknistofnun, hjá Hollustuvernd ríkisins sem sérfræðingur um hættuleg efni og einnig á rannsóknastofu Hörpu hf.
Bryndís sinnir verkefnum á sviði umhverfis- og orkumála og þar nýtist vel reynsla hennar af umhverfismálum fyrirtækja, s.s. þekking á laga- og reglugerðarumhverfi, umhverfisstjórnun, úrgangsmálum og fleiru sem varðar þennan víðfeðma málaflokk. Bryndís starfar einnig sem tengiliður við fyrirtæki í efnaiðnaði, gúmmíiðnaði, endurvinnslu og líftækni.
