Iðnþing 2005 í dag
Samtök iðnaðarins vekja hér með athygli á að Iðnþing 2005 verður haldið í dag, föstudaginn 18. mars, í Versölum að Hallveigarstíg 1.
Venjulegum aðalfundarstörfum lýkur fyrir hádegi en opin dagskrá hefst kl. 12:00 með hádegisverði í boði Samtaka iðnaðarins. Að honum loknum verða veitt verðlaun úr Verðlaunasjóði iðnaðarins. Að því búnu flytja ræður Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra.
Hátækniiðnaður efstur á baugi
Iðnþing er að þessu sinni helgað hátækniiðnaði og að loknum ræðum formanns SI og iðnaðarráðherra færir Ingvar Kristinsson, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, ráðherranum tilboð til stjórnvalda sem nefnist Þriðja stoðin.
Þá kynnir Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, skýrslu sem Samtök iðnaðarins og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hafa látið gera um þróun, stöðu, framtíð og tækifæri hátækniiðnaðar á Íslandi og stöðu hans og stefnu á Norðurlöndum og Írlandi.
Fimm valinkunnir menn færa fundarmönnum skilaboð frá hátæknifyrirtækjum en þeir eru:
- Stefán Jökull Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Actavis Group hf.
- Jón Ágúst Þorsteinsson, formaður Samtaka sprotafyrirtækja
- Hörður Arnarsson, forstjóri Marels hf.
- Einar Mäntylä, í stjórn Samtaka líftæknifyrirtækja
- Hilmar B. Janusson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Össurar hf.
