Ráðherraskipti í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu
Jón Sigurðsson er nýr iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Um miðjan júní tók Jón Sigurðsson við stöðu iðnaðar- og viðskiptaráðherra af Valgerði Sverrisdóttir sem gegnt hefur því embætti frá ársbyrjun 2000.
Á þessum tímamótum flytja Samtök iðnaðarins Valgerði bestu þakkir fyrir ánægjulegt, farsælt og árangursríkt samstarf. Hún hefur reynst iðnaðinum í landinu öflugur banda-maður á miklum uppgangstímum í íslensku atvinnulífi. Valgerður hefur nú tekið við hinu vandasama og mikilvæga embætti utanríkisráðherra. Samtök iðnaðarins óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Jafnframt bjóða Samtökin Jón Sigurðsson velkominn til starfa og vænta góðs af samstarfi við hann. Jón flytur með sér mikilvæga reynslu og þekkingu inn í ríkisstjórnina úr starfi sínu sem bankastjóri Seðlabankans nú þegar efnahagsmál og viðnám við aukinni verðbólgu verða forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Jón Sigurðsson hefur á starfsferli sínum starfað í atvinnulífinu, stýrt fjölmiðli og verið rektor Háskólans á Bifröst svo að nokkuð sé nefnt. Víðtæk reynsla hans á ýmsum sviðum þjóðlífsins ætti að nýtast honum vel í embætti iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Samtök iðnaðarins fagna komu hans á þennan vettvang og munu leggja sig fram um að eiga við hann gott og öflugt samstarf.
Helgi Magnússon,
formaður Samtaka iðnaðarins

