Nýr aðstoðarframkvæmdastjóri SI
Jón Bjarni Gunnarsson hóf störf 1. desember sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Samtökum iðnaðarins.
Jón Bjarni er viðskiptafræðingur frá HÍ auk þess að hafa lokið námssamningi í trésmíði. Jón Bjarni starfaði áður sem framkvæmdastjóri Ofnasmiðjunnar en þar áður var hann fjármálastjóri í 17 ár hjá Hörpu Sjöfn sem nú heitir Flügger.

