29. jan. 2008

Velheppnaður fundur með alþingismönnum

Góð mæting var á kynningarfund sem stjórn Samtaka iðnaðarins bauð alþingismönnum til í húsakynnum CCP hf. föstudaginn 25. janúar. Um 20 þingmenn komu á fundinn, ræddu málefni iðnaðar við stjórn og forsvarsmenn samtakanna og hlustuðu á stórskemmtilegan fyrirlestur um CCP og tölvuleikinn EVE online.

Fundurinn var haldinn í þeim tilgangi að efla tengsl þingmanna og atvinnulífsins og auka gagnkvæman skilning hvorum tveggja til hagsbóta. Í ljósi þess voru nýir alþingismenn sérstaklega boðnir velkomnir.

Helgi Magnússon, formaður SI, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Þá tók til máls Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, og kynnti uppbyggingu, starfsemi og áherslumál samtakanna. Þegar kynningu lauk var orðið gefið laust og stýrði Helgi umræðum með þátttöku þriggja stjórnarmeðlima SI, þeirra Önnu Maríu Jónsdóttur, Lofts Árnasonar og Sigurðar Braga Guðmundssonar. Þingmennirnir höfðu margs að spyrja og umræðurnar voru bæði fróðlegar og gagnlegar fyrir alla aðila.

Að umræðum loknum hélt Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, stórskemmtilegt erindi um fyrirtækið og framleiðslu þess, tölvuleikinn EVE online, sem hlotið hefur alþjóðlega útbreiðslu. CCP hf. er gott dæmi um útflutning á hugviti og þekkingu ungs fólks enda fundarstaðurinn valinn til að leggja áherslu á mikilvægi nýsköpunar og endurnýjunarkraft í atvinnulífinu.

Þegar formlegri dagskrá lauk var boðið upp á léttar veitingar og Hilmar fór með gestina í kynnisferð um fyrirtækið.