6. maí 2008

Þolum ekki svona ástand mjög lengi

„Við þolum ekki svona ástand mjög lengi,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Fréttablaðið í dag, um þann mikla skort á lánsfé sem varað hefur mánuðum saman. Fyrirtækjum reynist erfitt að fá lán, jafnt til nýrra sem eldri verkefna, og er svo komið að ágætlega stæð fyrirtæki fá ekki fyrirgreiðslu í bönkum sem þau hafa átt viðskipti við um árabil. Fyrir vikið hafa framkvæmdir stöðvast og ekki er ráðist í ný verkefni. Eina fyrirgreiðslan sem er í boði er í formi lána til mjög skamms tíma á mjög háum vöxtum. Í forsíðugrein Fréttablaðsins í dag segir Jón Steindór þanþolið lítið og tiltekur sérstaklega erfiðleika í byggingariðnaði þar sem kælingin hefur orðið einna sneggst. Jón Steindór segir nauðsynlegt að auka lánsfé. „Ríkisstjórnin hefur sagt að unnið sé að því að gera eitthvað en okkur finnst langur tími liðinn. Það er kominn tími til að menn sýni spilin.“

Sjá Fréttablaðið hér.