• Bjarni Már veitir bikarnum viðtöku

6. júl. 2009

Hjólað í vinnuna

Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI sigraði í átakinu "Hjólað í vinnuna". Hann hjólaði tæplega 400 km á þeim 14 dögum sem átakið stóð yfir. Að þessu sinni var skipt í tvö lið sem Bjarni og Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfissviðs leiddu.  

Lið Bjarna, Mótvindur, sigraði lið Bryndísar, Hjól atvinnulífsins, naumlega í æsispennandi keppni. Bjarni Már sigraði síðan einstaklingskeppnina en hann hjólaði tæplega 400 km. Bryndís var í öðru sæti og Sigurður B. Halldórsson, lögfræðingur SI í því þriðja. Sigurður sem sigraði keppnina á síðasta ári veitti Bjarna Má farandbikarinn til varðveislu.